Frjáls verslun - 01.03.1977, Síða 97
— Þegar svona kalt er í veðri vill hann alltaf kyssa í gegnuin
filter.
hótel í fjarska. Hann heldur í
áttina að því og mælir fram af
skorpnum vörum:
— Vatn, vatn, mér er borgið.
Fyrir framan hótelið stendur
stór Bedúíni með sveðju sér í
hönd. Hann litur andartak á
gestinn og hristir svo höfuðið.
— Hér fær enginn að fara
inn án þess að vera með bindi.
Úr Playboy-klúbbnum:
— Mér bætti gaman að ræða
málin við „kanínuna“ þarna.
— Stattu þá upp og veifaðu
gulrótinni.
— • —
Úr kennslustofunni:
— Og nú ætla ég að segja
ykikur söguna af því, börnin
góð, hvernig tvær fyrstu mann-
verurnar voru skapaðar.
Pési í öftustu röðinni grettir
sig og segir:
— Við vitum allt um það.
Segðu okkur frekar, hvernig sú
þriðja varð til.
— Og hvers vegnia viljið þér
skilja við konuna?
— Konan mín er sífellt á
hlaupum frá einum barnum til
annars. Næstum öll kvöld vik-
unnar.
— Er hún ölkær í meira lagi?
— Nei, hún er að leita að
mér.
Ég verð að segja, að þú ert
að taka þig á, sagði eiginmað-
urinn við konu sína, sem var
óhóflega mikið gefin fyrir að
tala mikið og lengi í síma. —
Þú varst ekki nema 20 mínútur
í símanum núna. Hver var
þetta?
— Það var nú einhver, sem
ætlaði að ihringja í annað núm-
er.
Greifinn við einkabílstjór-
ann:
— Heyrið þér. Vilduð þér
ekki aka yfir einhverja ójöfnu
á veginum. Ég þarf að losna
við ösku af vindlinum mínum.
— Núna þegar við erum gift,
sagði brúðurin, þá getum við
ákveðið að eignast þrjú börn,
tvær telpur og einn strák.
— Já, en ástin mín. Við get-
um ekki ákveðið þetta svona
fyrirfram.
— Jú. Þau bíða nefnilega
heima hjá mömmu.
— • _
— Heyrðu hvemig gekk í
verklega bílprófinu?
— Heldur illa. Ég féll en á að
taka það upp eftir þrjár vikur.
— Við skulum vona að þú
fáir ekki sama prófdómarann.
— Enginn hætta á því. Þeir
segja að hann verði að vera að
minnsta kosti þrjár vikur á
spítalanum.
Þær verða alltaf svo skratti illar margar, þegar ég gifti mig.
FV 3 1977
97