Frjáls verslun - 01.07.1977, Blaðsíða 79
Bækistöðvar Rafmagnsvei'fu Reykjavíkur sem hafa hlotið viður-
kenningu fyrir snyrtimennsku.
Um þar fyrir innan er Iselco,
Pólólakkrís og Júdódeild Ár-
manns til húsa og ekki má
gleyma Múlalundi, plastiðjunni,
sem veitir öryrkjum tækifæri
til starfa á vernduðum vinnu-
stað.
Innst í Ármúla, hægra megin
eru síðan verzlanirnar Virkni
með fjölbreyttu framboði af
veggfóðri og öðrum bygginga-
vörum, þar næst er teppaverzl-
un og nokkru innar koma verzl-
um Jes Zimsen, sú gamalgróna
búsáhaldaverzlun Reykvíkinga.
Þeir, sem eru í gardínuhugleið-
ingum, eiga erindi í Zetu-búð-
ina og þeir sem ætla að verja
eigur sínar bak við eldtraust-
an hurðabúnað fara í Glófaxa.
VERÐLAUNABYGGING
Þar sem við nú stöndum á
mótum Ármúla og Grensásveg-
ar og lítum yfir farinn veg,
beinast augu okkar strax að
snyrtilegum húsakynnum,
bækistöðvar Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, sem hefur gengið
mjög snyrtilega frá umhverfi
húsa sinna og hlotið sérstaka
viðurkenningu fyrir það frá
fegrunarnefndinni.
í SÍÐUMÚLA
Næst förum við eins konar
húsabaksleið upp í Síðumúlann
og lítum þar til suðurs út að
Fellsmúla. Þar blasir við nafn
fyrirtækisins P. Stefánsson,
sem er á síðustu árum aftur
orðið eitt af umsvifameiri bíla-
umboðum landsins, með inn-
flutning á jafnkunnum bílateg-
undum og Land Rover og Aust-
in. Enn utar í götunni er annað
bílaumboð, ekki minna í snið-
um, Davíð Sigurðsson, sem flyt-
ur inn Fíat-bíla, ítalska og
pólska.
Hinum megin Síðumúlans
Torfærur á húsabaksleið.
eru húsgagnaverzlanir og næst
er röðin komin að fangelsinu í
Síðumúla, þar sem gæzluvistar-
fangar, sem komið hafa við
sögu í nokkrum hrikalegustu
glæpamálum að undanförnu
eru hafðir í haldi. Vonandi að
menn gefi sér einhvern tíma
til að ihuga af hverju við sjá-
um á eftir góðum drengjum inn
á braut ógæfu og glötunar, sem
endar við þessar dyr.
HANNYRÐIR
I Síðumúla 29 er verzlunar-
fyrirtæki, sem lætur lítið yfir
sér og sker sig nokkuð úr þeirri
starfsemi sem þarna fer fram
að öðru leyti. Þetta er hann-
yrðaverzliunin Ellen. Einhverj-
um varð á orði, að gróðurinn
ofan á búðinni hefði greinilega
ekki komið til í sumar og væri
heldur þyrrkingslegur. Þetta
var nú reyndar steypujárn, sem
stóðu upp úr gólfinu til marks
um að húsið er enn ekki full-
byggt. Hús Stáltækni og Runt-
al-ofna er heldur ekki fullfrá-
gengið að utan og það er greini-
legt, að menn leggja ekki allir
jafnmikið upp úr að hafa út-
lit húsa sinna snyrtilegt og til
prýði. Ekki verður þó að neinu
leyti kvartað undan slíku hjá
húsgagnaverzluninni Dúna í
Síðumúla 23 en í sama húsi er
arkitekt’astofa Ormars Þór og
Örnólfs Hall ásamt verkfræði-
stofunni Rafteikning.
BLAÐAHEIMURINN
Og svo koma fyrirtækin í
prentiðnaðinum og blaðaheim-
inum íslenzka hvert af öðru,
Horft suður Síðumúla, út að Fellsmúla. Bílaumboð P. Stefáns-
sonar og Davíðs Sigurðssonar blasa við framundan.
FV 7 1977
79