Frjáls verslun - 01.07.1977, Blaðsíða 31
skattprósentan innan við 10%.
Það er því tiltölulega lítið mál
hérlendis fyrir fjölskyldufyrir-
tæki að standa undir greiðslu
erfðafjárskatts, móts við hvað
það er á hinum Norðurlöndun-
um, sérstaklega ef um náinn
skyldleika er að ræða. Sá þriðj-
ungur sem arfleifanda er frjálst
að ráðstafa með erfðaskrá lend-
ir hér í lægsta flokki, en í hin-
um löndunum í hæsta flokki,
nema að skyldleiki við hinn
látna sé nánari en sem því
svarar. Einnig ber að nefna að
mat á eignum er stífara þar.
Upphæð erfðafjárskatts er
ákveðin þannig: A. Af því
erfðafé, sem hverfur til þess
hjóna sem lifir hitt, til niðja,
kjörniðja og fósturbarna, svo
og af þriðjungshluta, ef ráðstaf-
að hefur verið með erfðaskrá
til annarra, skal svara af arfi
hvers erfingja um sig:
Af fyrstu 200.000 kr 5%
af næstu 200.000 kr. 6%
af næstu 200.000 kr. 7%
af næstu 200.000 kr. 8%
af næstu 200.000 kr. 9%
og þar yfir 10%
B. Af erfðafé sem hverfur tii
fcreldra hins látna eða niðja
þeirra er heyra undir staflið
A, skal svara af arfi hvers erf-
ingja um sig, af samsvarandi
upphæðum og í lið A: 15%,
17%, 19%, 21%. 23% og
25%.
C. Af erfðafé, sem hverfur til
afa eða ömmu hins látna eða
niðja þeirra, sem ekki heyra
undir stafliðina A og B, eða til
fjarskyldari erfingja eða ó-
skyldra, skal svara af arfi
hvers erfingja um sig, af sam-
svarandi upphæðum og í lið
A: 30%, 34%, 38%, 42%,
46% og 50%.
D. Af erfðafé til kirkna, opin-
berra sjóða, gjafasjóða, félaga,
líknar- og menningarstofnana,
skal greiða 10%. Heimilt er að
lækka skattinn niður í 5% í
þessu tilfelli.
Fari opinber skipti fram, þarí
að greiða í skiptagjald 114%
af öllum eignum búsins, þar
með talinni búshelft maka, án
tillits til skulda, er á því hvíla.
Skiptagjald var 3% fram á sein-
asta ár, en það var lækkað þeg-
ar nýtt fasteignamat kom.
Skrifstofu
SKRIFBORD
Vönduð sterk
skrifetofu skrif-
boró i þrem
stærðum.
:
1
A.GUÐMUNDSS0N
Húsgagnaverksmiöja,
Auöbrekku 57, Kópavogi, Sími 43144
FV 7 1977
31