Frjáls verslun - 01.07.1977, Blaðsíða 48
lö|íjpögu yfir öllum nema helztu
forsvarsmönnum fyrirtækisins
og úr þessum ágreiningi verður
skorið fyrir dómi, væntanlega
nú í september.
F.V.: — Hver er annars af-
staða þín til gr,undvallarhug-
mynda um hið svokallaða at-
vinnulýðræði, sem settar hafa
verið fram erlendis og menn
hafa viljað hrinda í fram-
kvæmd, t.d. á Norðurlöndum?
Jón: — Margt í hinni norrænu
atvinnulýðræðisstefnu er fárán-
legt. Það dytti engum í hug hér
í þessu fyrirtæki að taka mann
inn af götunni og láta hann
fara að stjórna. Það á enginn
að fá neitt fyrir ekki neitt.
F.V.: — Hvað er langt síðan
þú hófst sjálfur störf hjá Kristj-
áni Ó. Skagfjörð?
Jón: — Við Ingi Jónsson,
sölustjóri, erum elztu starfs-
menn í fyrirtækinu, komum
hingað 1954. Ég er elzti starfs-
maðurinn að árum en yfirleitt
er hér ungt fólk í starfi og með-
alstarfsaldur er eitthvað á bil-
inu 12—15 ár, gæti ég trúað.
Það var framkvæmdastjóra-
staðan, sem ég var ráðinn í
upphaflega en áður hafði ég
verið sölustjóri hiá O. Johnson
& Kaaber í 13 ár og verzlunar-
maður hjá Geysi í 8 ár þar á
undan.
F.V.: — Hver er í stuttu
máli saga þessa fyrirtækis,
Kristjáns Ó. Skagfjörð h.f.?
Jón: — Það var Kristján Ó.
Skagfjörð, sem það stofnaði,
árið 1912 vestur á Patreksfirði,
þar sem hann rak umboðsverzl-
un. Svo var það 1916 að hann
fluttist til Reykjavíkur og rak
hér eina af athafnasömustu um-
boðs- og heildverzlunum. Við-
skiptin voru mest við Bretland,
þar sem hann hefði fengið
mörg ágætis umboð. En svo
sneri Kristján sér að ferðamál-
unum og varð forstjóri Ferðo-
félags íslands þó hann héldi
áfram umboðum sínum.
Hlutafélag var stofnað um
fyrirtækið Kristján Ó. Skag-
fjörð árið 1952 og ég ráðinn
framkvæmdastjóri þess tveim-
ur árum seinna. Því starfi
gegndi ég til ársins 1964, þegar
Þórarinn Jónsson tók við. Hann
var hér í 8 ár en það er Bragi
Ragnarsson, sem nú gegnir
stöðu framkvæmdastjórans. Ég
er forstjóri og stjórnarformaður
í fyrirtækinu.
Eftir stofnun hlutafélagsins
var fyrirtækið fyrst til húsa
í Túngötu 5 en 1956 var flutt
í gamla Hamarshúsið við
Tryggvagötu og það keypt ári
síðar. Þetta hús hér í Örfiris-
ey keyptum við hins vegar hálf-
byggt árið 1967 og höfum ver-
ið hér starfandi í þrjú ár.
F.V.: — Hvað er þetta stórt
húsnæði, sem þið eigið hér?
Jón: — Þetta eru 1500 fer-
fermetrar á tveim hæðum og
hér að norðanverðu er búið að
reisa hluta af húsnæði sem
verður jafnstórt og það, sem
við höfum fyrir. Þar munum
við hafa þjónustu við skuttog-
araflotann.
F.V.: — Er liún vaxandi þátt-
ur í starfseminni?
Jón: — Já. Við höfum lagt
áherzlu á að sérhæfa okkur í
bjónustu við skuttogarana.
hvað viðhald og eftirlit með
tækjabúnaði þeirra snertir.
Þarna er um að ræða mörg
mjög flókin og vandmeðfarin
tæki. sem sum eru þannig að
enginn má snerta á þeim nema
sérbiálfaðir eftirlitsmenn Við
höfum sent menn út til fram-
leiðenda til að iæra viðgerðir
og eftirlit með þessum tækjum.
Svona starfsemi í bágu fiski-
skÍDaflotans er plássfrek og
bað barf stórt og velhúið verk-
stæði hér í Vesturhöfninni.
F.V.: Þið verzlið með svo ó-
líkar vörur sem matvörur, út-
gerðarvörur og flókin rafe>nda-
tsní'd. Hvernig er deildaskipt-
in<ru hjá fyrirtækinu háttað?
.Tón: — Matvörudeildin og
veiðarfæradeildin eru stærstu
einingarnar. Síðan koma bygg-
ingavörudeild og tæknideild,
sem aftur skiptist í tölvudeild
og véladeild. í tæknideildinni
hefur aukningin orðið mest upp
á síðkastið en matvörudeildin
og veiðarfæradeildin eru elztar.
Það væri of langt mál að fara
að telja upp einstakar vöruteg-
undir eða merki, sem við verzl-
um með. í matvörunni erum
við með innflutning á mörgum
mjög kunnum vörutegundum,
sem koma inn á svo til hvert,
einasta heimili á landinu. Cere-
bos-salt og Scotties-pappírsvör-
ur eru aðeins tvö dæmi.
Veiðarfæradeildin flytur inn
alls kyns veiðarfæraútbúnað
fyrir fiskiskipin og flytur mik-
ið inn frá Bretlandi og Japan.
Véladeildin hefur á boðstólum
stórvirkar vinnuvélar, lyftara
og krana, bátavélar og færi-
bönd, svo að eitthvað sé nefnt.
f byggingavörudeildinni hefur
áherzla verið lögð á gólfdúk og
fúavarnarefni og fleira af því
tagi en ekki grófari vöruna
eins og timbur og járn. Þá má
ekki glevma fiskleitar- og fjar-
skiptatækjum, rannsókna- og
lækningatækjum. Ennfremur
setjaravélar og prentvélar fyrir
offset.
Tæknideildin var sett á stofn
fvrir 8 árum og hefur verið í
mjög örum vexti. Okkur hefur
tekizt að fá til starfa nokkra af
færustu mönnum, sem fáanlegir
eru á bessu sviði og höfum haft
sournir af áður fyrir mikla
kunnáttu og góð vinnubrögð.
Þetta eru nú um 20 manns. Og
til þess að geta gegnt hlutverki
okkar sem skvldi. höfum við
komið upp fullkomnum vara-
hlutalager og þjónustu fyrir all-
an þennan tæknibúnað.
F.V.: — Hvernig hefur fvrir-
tækinu gengið að selja tölvur
o" hvemig er samkeppnisað-
st.aðan á því sviði hér á landi?
.Tón: — Við erum með um-
b°ð fvrir Digital-tölvur af ýms-
um stærðum og tengibúnað,
sem önnur fvrirtæki framleiða
Peg.ia má að markaður okkar sé
á öllum sviðum viðskiota og í
iðnaði. Það eru þó fyrst og
fremst oninberar stofnanir. sem
hafa verzlað við okkur hingað
48
FV 7 1977