Frjáls verslun - 01.07.1977, Blaðsíða 52
Bæjarstjórinn á Akureyri:
„Árið í fyrra mikið veltiár
eins og skattskrá ber með sér”
Fjögur fyrirtæki meö 1500 manns í þjónustu sinni
Fyrir ári urðu bæjarstjóraskipti á Akureyri. Þá lét Bjarni Einarsson af því starfi, en við tók
Helgi Bergs. Þegar hann hóf störf biðu hans mörg umfangsmikil verkefni úrlausnar og þar bar
hæst hitaveituframkvæmdir, sem er tvímælalaust lang stærsta verkefnið sem Akureyrarbær
hefur ráðist í. Miklar framkvæmdir við vöruhófn stóðu yfir, afar mikil viðbótarbygging við
Fjórðungssjúkrahúsið var í gangi og fyrir dyrum að hefja smíði svæðisíþróttahúss sem Akiureyr-
ingar voru orðnir mjög langeygir efitir. Auk þessara verkefna biðiu fjölmörg önnur, sem of langt
yrði að telja upp. En bara af þessu sem hér var nefnt að framan má ljóst vera að Helga beið
erilssamt starf.
— Jú, víst hefur verið nóg
að gera, sagði Helgi, þegar
Frjáls verslun heimsótti bæj-
arskrifstofur Akureyrar fyrir
skömmu. En starfið er skemmti-
legt og fjölbreytt og þá er auð-
veldara að horfa fram hjá þeim
göllum sem á því eru. En
þar sem við erum að tala um
starfið mitt. þá vil ég ekki láta
hjá líða að nefna samstarfs-
menn mína þá Valgarð Stefáns-
son, bæjarritara og Stefán Stef-
ánsson bæjarverkfræðing. Ég
veit ekki hvað hefði orðið úr
mér hér til að byrja með í þessu
starfi ef þeirra hefði ekki notið
við. Þeir hafa stutt mig á allan
hátt og leiðbeint og það hefur
verið mér ómetanlegt.
Þegar við komum á bæjar-
skrifstofuna var nýbúið að
leggja fram skattskrá Norður-
landskjördæmis eystra fyrir yf-
irstandandi ár. Hækkun út-
svara milli ára var 42% og að
sögn Helga er sú hækkun mun
meiri en verið hefur milli ára
að undanförnu. Hækkun milli aðeins meiri á Vestfjörðum en
þessara tveggja síðustu ára var á Akureyri.
Helgi Bergs, er nú hefur starfað sem bæjarstjóri á Akureyri
í rétt ár.
52
FV 7 1977