Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1977, Blaðsíða 22

Frjáls verslun - 01.07.1977, Blaðsíða 22
um meðalmennskunnar, og tókst það svo sannarlega. Faðir Williams átti sápugerð í Wayne Junction í Fíladelfíu og þar byrjaði strákur að hræra í sápupottunum um leið og hann náði upp í þá. Á hverjum föstudegi tróð hann einum dal og fimmtíu í sparibaukinn sinn, staðráðinn í því að verða ríkur. Tólf ára gömlum tókst honum að telja föður sínum trú um að hann væri fær um að starfa sem sölumaður og áður en hann náði 13 ára aldri var hann orðinn fídonssölumaður á far- aldsfæti og það í síðbuxum. Árið 1891 settist William að í Chicago þá þrítugur. Hann reyndist snemma skrattanum snjallari í því að ná til sín við- skiptum frá keppinautum sín um. Þegar þeir lækkuðu verð- ið á sinni sápu til að slá út sápu Wrigley-feðganna, hækk- aði William verðið á sinni sápu samstundis, en bauð kaup- mönnum bökunarsóda í kaup- bæti fyrir hvert sápupund sem þeir seldu. Og áður en nokkur vissi af var eftirspurnin eftir bökun- arsódanum orðin miklu meiri en á sápunni. William dembdi sér án umhugsunar út í heild- sölu á bökunarsóda og verð- launaði kaupmennina með tyggigúmi fyrir hverja tylft dósa sem þeir seldu af bökun- arsóda. Fór þá að vonum sem fyrri daginn að eftirspurnin eft- ir tyggigúminu óx og óx þang- að til William Wrigley ákvað að snúa sér að tyggigúmi, ekki einungis að selja það, heldur á kvað hann að framleiða það líka. Framleiðslufyrirtækið Willi- am Wrigley, Jr., Company varð til í snatri, hlutafé samtals 32 dalir. # Glæfraleg tiltæki Á síðasta áratug 19. aldar hafði fyrirtækinu vaxið fiskur um hrygg og nú hugðist Willi- am láta í alvöru reyna á hvað 22 hann dygði í viðskiptum. Á þessum tíma var auglýsingaiðn- aður, í þeirri mynd sem hann er nú á tímum, ekki til, enda trúðu menn ekki á mátt aug- lýsinganna meira en svona i meðallagi. William Wrigley var á ann- arri skoðun. Hann gekkst fyrir auglýsingaherferð og varði til hennar 100 þúsund dölum. síð- an annarri álíka dýrri, en út úr þeim kom ekkert nema skuld. En hann var ekki á því að láta sig svo hann lagði enn undir og nú 250 þúsund dali. Og viti menn, nú byrjaði ballið. Fram- leiðslan óx, hún tók kipp, hún margfaldaðist og rauk svo upp úr öllu valdi. Um 1920 varði William röskum 4 miljónum dala í auglýsingar á hverju ári og græddi alltaf meira og meira. Á sama tíma sátu keppi- nautarnir með sárt ennið og botnuðu ekkert í þessum vit- leysistiltækjum Williams Wrig- leys, en biðu eftir því að hann færi á hausinn. Sjálfir tímdu þeir ekki að sjá af nokkrum pening í auglýsingar, nema í mesta lagi á eigin umbúðum. Wrigley fyrirtækið óx stöð- ugt og áhrif Williams um leið. Philip sem fæddur er 1894 seg- ist muna vel þessa daga: ,,Pabbi var vanur að taka tvær síður fyrir auglýsingar okkar í The Saturday Evening Post öðru hvoru, og það voru fyrstu aug- lýsingarnar í lit sem þekktust þá. Og það var alltaf hægt að sjá það á forsíðu blaðsins ef í því var auglýsing frá okkur því þá var forsíðan alltaf prentuð í rauðu og grænu, en það voru litirnir sem við notuðum í okk- ar auglýsingum“. William Wrigley gerðist nú einn af litríkustu viðskiptajöfr- um Ameríku og upp úr 1920 byggði hann skýjakljúf í göml- um borgarhluta Chicago á bökkum Chicago-árinnar sem kostaði tæpar átta milljónir dala. Stórveldið var staðreynd. Þegar William Wrigley lést ár- ið 1932 tók sonur hans við stjórninni. Þegar hann lætur af störfum, sem óumflýjanlega verður áður en langt líður, mun William Wrigley, sá þriðji í röðinni taka við af föður sínum. Á við og drcir Nor'ðmenn hafa flutt meira út á f.yrra árshelmingi 1977 en búizt hafði verið við. Hreinn vtíruútflutningur hef- ur vaxið mest, eða um 10,5% miðað við árið í fyrra. Utflutningur fyrra árshelm- ings í Noregi nam 20 millj- örðum norskra króna en var 18,9 inilljarðar á sama tíma í fyrra. ----9 ---- Sala á bandarískum bílum minnkaði á heimamarkaði í júlí og fór niður fyrir með- altal, sem er 9 milljónir bíla á ársgrundvelli. Hefur salan ekki verið svo lítil síðan í janúar. Salan á innfluttum bílum í Bandaríkjunum hélzt þó yfir meðaltali sem er 2 milljónir bíla á ársgrund- velli. Sýnist þetta ætla að verða metár í sölu erlendra bíla á Bandaríkjamarkaði. Afstaða Dana til lagning- ar 440 kílómetra langrar olíuleiðslu frá Ekofisk- svæðinu á Norðursjó tíl Em- den í Þýzkalandi veldur töf- um á bví að leiðslan verði tekin í notkun en í júlíbyrj- un átti að hefja flutning á gasi um hana. Danir hafa haldið uppi mótmæluin vegna þess að þeir telja að leiðslan sé ekki nægilega vel grafin niður í hafsbotn- inn á beim 18 kílómetrum sem hún liggur um danskt yfirráðasvæði. Frá Washington berast fréttir um að vinir Geralds Ford, fyrrverandi forseta telji hann ætla að sækjast eftir útnefningu til forseta- framboðs Repúblikana í næstu forsetakosningum ár- ið 1980, ef Ronald Regan ætlar að gera alvarlega til- raun til að komast í fram- boð. FV 7 1977
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.