Frjáls verslun - 01.07.1977, Blaðsíða 93
rafeindaefnum í sérstökum pok-
um, en með hverjum poka
fylgja mjög nákvæmar upplýs-
ingar um hvernig setja eigi
hina ýmsu hluti saman. Mjög
áhugavert er að takast á við
þau verkefni, sem þessi raf-
eindaefni bjóða upp á, en í
þessum pokum má finna eitt-
hvað við hæfi flestra eins og
t.d. rafeindaefni í stereomagn-
ara og útvörp, spenna, sem eru
til ýmissa nota og mæla, en
Jostykit hefur hannað sérstaka
seríu af litlum mælum fyrir
raðeiningar og svo mætti lengi
telja.
Sameind hefur á boðstólum
mikið úrval af kössum utan um
rafeinda raðeiningar eins og
t.d. útvörpin og magnarana.
Einnig eru til sérhannaðir
kassar, en þeim fylgja allir
nauðsynlegir hlutir til samsetn-
ingarinnar. Mini modul kassinn
er meðal annars sérhannaður,
en slíkir kassar eru notaðir ut-
an um margar hinna nýju rað-
eininga. Auðvelt að koma rað-
einingunum fyrir inn í honum.
Jostykit hefur gefið út ýms-
ar bækur um rafeindafræði,
m.a. AE bókina, sem er mjög
yfirgripsmikil kennslu- og upp-
lýsingabók, bæði fyrir þá sem
vilja kynna sér rafmagnsfræði
sjálfir svo og skóla. Bókin er
á dönsku, en í haust er vænt-
anleg ensk útgáfa af henni.
Með bókinni fylgir m.a. prent-
rás.
Á sýningunni í Laugardals-
höll er lögð áhersla á að sýna
ljósastýringar (ljósashow)
sem mikið er notað í diskótek-
um svo og magnarakerfi, en
básinn sem Sameind hefur til
umráða er hinn athyglisverð-
asti og þar eru veittar þær
upplýsingar, sem gesti fýsir
að vita varðandi rafeinda rað-
einingar. Sameind hefur einn-
ig gefið út vandaðan litprent-
aðan bækling um Jostykit raf-
einda raðeiningar.
Loks má geta þess að nýlega
fékk fyrirtækið umboð fyr-
ir bandaríska stórfyrirtækið
Heathkit, sem framleiðir slík
rafeindaefni og gefst þá áhuga-
jafnt sem atvinnumönnum kost-
ur á að kynnast enn fleiri verk-
efnum sem takast má á við á
þessu sviði.
HIJSGAGIVAVERZLUI\II\ DÚIXIA:
Ensk Old Charm eikarhúsgögn
Húsgagnaverslunin Dúna,
Síðumúla 23. Ieggur áherslu á
að sýna ensk eikarhúsgögn frá
Old Charm fyrirtækinu á sýn-
ingunni Heimilið ’77, en þar
hefur Dúna til umráða einn
stærsta og glæsilegasta sýning-
arbásinn. Old Charm húsgögn-
in eru vönduð og fjölbreytileg
úr gegnheilli eik. Stíll þeirra er
runninn frá Tudor tímabilinu,
allt frá því er Hinrik konungur
VIII ríkti yfir Englandi, og
licfðarfólkið prýddi stofur sín-
ar útskornum eikarhúsgögnum.
Old Charm fyrirtækið hefur
varðveitt þennan stíl allt fram
á okkar daga, og gert húsgögn-
in sígild og mjög vinsæl bæði
hjá ungum sem eldri á heima-
markaði og crlendis.
Old Charm húsgögnin eru
handútskorin í ljósa og dökka
eik. Þau eru til í fjölbreyttu úr-
vali bæði borðstofuhúsgögn,
sófasett og ýmsar stakar ein-
ingar eins og skápar, veggein-
ingar, sem unint er að raða sam-
an á ótal vegu, rúm, klukkur,
Vönduö og fjölbreytileg
stakir stólar og skrifborð svo
eitthvað sé nefnt. Old Charm
húsgögnin geta prýtt alla íbúð-
ina og eiga alls staðar við.
Þau eru einnig hagkvæm,
hvert rúm er nýtt til fulls, m.a.
má fá fallega útskorna skápa
fyrir hljómflutningstæki og
sjónvörp. Við Old Charm hús-
gögnin má alltaf bæta við nýj-
um einingum og húsgögnum,
því litur eikarinnar er alltaf
hinn sami jafnt sem stillinn og
útskurðurinn.
í sýningarstúku Dúna er
komið fyrir á smekklegan hátt
ensku Old Charm húsgögnun-
um, en möguleikarnir eru tak-
markaðir af rúminu. Hins veg-
ar sýnir Dúna í yfir 400 m2 hús-
næði sínu úrval af Old Charm
húsgögnum, auk annarra inn-
fluttra húsgagna og eigin fram-
leiðslu.
FV 7 1977
93