Frjáls verslun - 01.07.1977, Blaðsíða 21
leggja sig. En þótt það kunni
að hljóma undarlega þá hefur
P. K. Wrigley ætíð dreymt um
að vera utan sviðsljósanna og
geta dundað sér í ró og næði
við að lappa upp á gamla bíla
eða sækja knattleiki eins og
hver annar meðalborgari. En
það er síður en svo auðvelt
þegar nafn manns er í öllum
fjölmiðlum, annað hvort í aug-
lýsingum eða á íþróttasíðun-
Mýtt sykurefni notað
í tyggigúmmí
— birkisykur
# Það byrjaði svona
Þetta er sagan af þessum
dæmalausa unga Ameríkana í
landi tækifæranna, með talfær-
in í lagi, hugmyndaflug á við
þúsund manns, ódrepandi
bjartsýni og yfirgengilegt
vinnuþrek. Ekkert getur stöðv-
að slíka menn vestur í henni
Ameríku, en þeir eru sagðir
vera u.þ.b. einn á móti hverj-
um 1200 þúsund.
Philip með liðstjóra hornabolta-
liðs síns 1939.
Sé P. K. Wrigley á flótta und-
an frægðinni þá var því öfugt
farið með föður hans William
Wrigley yngra, því sá beinlínis
eltist við hana og vildi fyrir
alla muni rífa sig upp úr viðj-
Rannsóknir sem fram hafa farið um langt skeið við tann-
læknadeild háskólans í Abo í Finnlandi hafa einkum beinst
að því að kanna ýmsar tegundir sæti- og sykurefna og hver
ahrif þau hefðju á tannskemmdir. Undir stjóm prófessor-
anna Arje Scheinin og Kauku Makinen hefur einnig verið
unnið að könnun á öðrum efnum sem gætu komið í stað
sykurs án þess að valda tannskemmdum.
Eitt athyglisverðasta efnið sem rannsakað hefur verið
nefnist xylitol, en það er kolvetni jafnsætt sykri auk þess
að hafa sama næringargildi. Efnið hefur lengi verið þekkt
sem birkisykur og er það framleitt úr birkitrjám samhliða
hcmiscllulósa. Xyliitöl finnst einnig í ávöxtum, berjum,
grænmeti og sveppum. Það merkilega við þetta efni er að
við rannsóknirnar í Ábo kom í ljós að þótt xylitoi sé eins
og sykur á bragðið veldur það ekki tannskemmdum. Or-
sökin reyndist vera sú að þær bakteríur sem til staðar eru
í munni fólks og valda tannskemmdum með hjálp sykurs,
geta ekki klofið xylitol eins og sykur og þannig myndað
sýruna sem leysir upp glerung tannanna. Tveggja ára rann-
sóknir sýndu að tannskemmdir hjá þeim sem neyttu ein-
göngu sykurs vor,u frá 85 til 130% meiri en hjá þeim sem
neyttu xylitols að nokkru Ieyti ásamt venjulegum sykri.
Frekari rannsóknir hafa leitt í ljós að xylitol er ekki ein-
göngu skaðlaust tönnunum heldur verndar það tennurnar
gegn skemmdum.
Matvælaframleiðendur um allan heim hafa fylgst náið
með þessum rannsóknum og binda miklar vonir við efnið,
en vegna þess hve notkun þess er enn lítil er það mjög
dýrt. Eitt fyrirtæki hefur þó riðið á vaðið og not'ar xylitol
í sína framleiðslu, en það er bandaríska tyggigúmsfyrirtæk-
ið Wrigley. Nú er komið á markaðinn nýtt tyggigúm,
Wrigley’s Dentokej sem inniheldur xylitol í stað sykurs
og varnar þannig gegn tannátu. Fleiri þekkt framleiðslu-
merki eru nú að fikra sig áfram með xylitol og stöðugt
bætast nýjar vörur við sem innihalda þeitta efni í stað
sykurs.
FV 7 1977
21