Frjáls verslun - 01.07.1977, Blaðsíða 12
Afkoma verzlunarinnar 1976
Veltuaukning mest í bíla-
verzlun en minnst í olíuverzlun
Við athugun á veltu samkvæmt söluskattSframtölum í Reykjavík og á Reykjanesi árin 1975—1976
kemur fram 27,0% veltuaukning í verzlun alls, 24,1% 1 heildverzlun og 33,4% í smásöluverzlun.
Benda má á mikla veltuaukningu í bílaverzlun eða 55% árið 1976, en samdráttur varð í þessari
grein milli áranna 1974 og 1975. Hins vegar nam veltuaukning olíuverzlunar aðeins 14,8% árið
1976, enda dróst gasolíusala olíufélaganna saman um 10% að magni á árinu og benzínsala jókst
aðeins um rúm 2%.
Nýjustu áætlanir fyrir smá-
söluverzlun árið 1976 benda til
þess, að afkoma hennar hafi
heldur batnað. Veltan er talin
hafa aukizt um 20,5 milljarða
króna eða um röskan þriðjung
er er þá miðað við sölutekjur.
markaðsvirði. Umboðslaun og
aðrar tekjur eru taldar hafa
aukizt um rúmlega 29%, þann-
ig að heildartekjur smásölu-
verzlunar árið 1976 eru áætlað-
ar 72,1 milljarður króna en
voru 53,5 milljarðar 1975, og
nemur aukningin því rúmum
þriðjungi. Hækkun aðfanga hjá
smásöluverzlun er áætluð 34%,
laun eru talin hafa hækkað um
rúmlega 24% og vaxtagjöld um
30%, þannig að útgjaldaaukn-
ingin er talin nema tæpum 17,2
milljörðum króna eða um þriðj-
ungi, en þá á eftir að taka til-
lit til tekju- og eignarskatta.
Vergur hagnaður fyrir skatta
jókst þar með verulega og hlut-
fall hagnaðar af heildartekjum
er mun hærra 1976 en næsta ár
á undan. Þessi mikla aukning
hagnaðar stafar aðallega af lít-
illi hækkun launa og mikilli
veltuaukningu. Við áætlun
launa er aðeins tekið tillit til
breytinga á mánaðarkauptaxta
verzlunar- og skrifstofufólks en
ekki gert ráð fyrir breytingum
á vinnutíma, fjölda starfs-
manna né breyttum yfirborgun-
um og er því áætlunin óviss.
Afkoma heildverzlunar
lakari
Afkoma heildverzlunar án
olíu-, byggingarvöru- og bíla-
verzlunar virðist hins vegar
hafa orðið lakari á árinu 1976.
Veltuaukning er áætluð nema
tæpum 22% og hefur þá verið
gert ráð fyrir 3% magnaukn-
ingu. Umboðslaun og aðrar
tekjur eru taldar hafa aukizt
um 18%. þannig að aukning
heildartekna nemur tæpum
22% eða 6,8 milljörðum í
krónutölu. Hækkun aðfanga hjá
heildverzlun er áætluð nema
22%, laun hækka um rúm 24%
og vextir um 17%. Útgjalda-
aukningin er talin nema rúm-
lega 22% eða 6,7 milljörðum í
krónutölu, áður en tekið er til-
lit til tekju- og eignaskatta.
Vergur hagnaður fyrir skatta
eykst því óverulega og hlutfall
hagnaðar af heildartekjum er
raunar lægra árið 1976 en árið
1975.
Áætlanir Þjóðhagsstofnunar
um verzlunarrekstur við rekstr-
arskilyrði í marz 1977 gefa til
kynna, að afkoma smásölu-
verzlunar hafi þá verið svipuð
árið 1977 og hún var 1976. Hins
vegar virðist hagur heildverzl-
unar nokkuð lakari.
3.3. Heildverzlunargreinar
1971—1975
Afkoma heildverzlunar var
betri árið 1975 en næsta ár á
12
FV 7 1977