Frjáls verslun - 01.07.1977, Blaðsíða 14
Verkfræðistofa Guðmundar Ólafssonar:
Algjör ríkisforsjá í ráðgjafa-
þjónustu í sambandi við síma-
búnað fyrirtækja mjög neikvæð
— Tímabært að stofna félag pósts- og símnotenda hér
— Það sem hefur komið mér mest á óvart er að símareikningar eru alls ekki í samræmi við
raunverulegan búnað fyrirtækja og gjaldskrá Pósts og síma. Bæði er um að ræða hreinar vitleys-
ur, þar sem greitt er fyrir búnað sem ekki er fyrir hendi og einnig getur verið um að ræða túlk-
lUnaratriði á gjaldskrá Pósts og síma. Fyrir stærri fyrirtæki eða stofnanir getur verið um að
ræða upphæðir, sem nemur hundruðum þúsunda á ári.
Þessi orð eru höfð eftir Guð-
mundi Ólafssyni, verkfræðingi,
þegar F.V. spurði hann um
reynsluna af ráðgjafarstarfsemi
fyrirtækis hans, en í maí í vor
setti hann á stofn verkfræði-
stofu, sem veitir fyrirtækjum
og stofnunum síma- og fjar-
skiptaráðgjöf m.a. Guðmundur
hefur áhuga á að vinna að
stofnun félags Pósts- og sím-
notenda og telur að tímabært
sé að stofna slíkt félag hér á
landi. Slík félög starfa í ýms-
um löndum, en í viðtalinu kem-
ur fram margt fróðlegt varð-
andi þessi mál.
— Hver er aðdragandinn að
stofnun fyrirtækisins?
— Hann má rekja til þess
tíma er ég vann hjá Pósti og
síma, en starf mitt þar var
m. a. fólgið í því að fylgjast
með tækniþróun í símabúnaði
og símaþjónustu fyrirtækja, sjá
um innkaup á þeim búnaði sem
stofnunin gaf viðskiptavinum
sínum kost á og aðstoða þá við
val á hagkvæmustum símabún-
aði.
En einmitt i þessu starfi fann
ég til vanmáttar míns, vegna
þess að ég þekkti allt of lítið
til reksturs viðkomandi fyrir-
tækja og starfa einstakra starfs-
manna. Ráðleggingar til við-
skiptavina voru því reistar á
mjög óljósum og yfirborðs-
kenndum hugmyndum um
starfsemi fyrirtækja þeirra.
Eg komst að þeirri niður-
stöðu að útilokað væri að veita
góða ráðgjafarþjónustu og
Guðmundur Ólafsson,
verkfræðingur.
finna bestu lausn varðandi
símakerfi stærri fyrirtækja
nema hvort tveggja kæmi til:
í fyrsta lagi ítarleg úttekt á
starfsemi viðkomandi fyrirtæk-
is með tilliti til símaþarfa ein-
stakra starfsmanna, samstarfs-
hópa og deilda og í öðru lagi
staðgóð þekking á öllum mögu-
Jeikum varðandi símakerfi og
gímaþjónustu, sem völ er á
hverju sinni.
— En á ekki Póstur og sími
að veita slíka þjónustu?
— Vissulega gæti Póstur og
sími veitt slíka þjónustu, en
spyrja mætti á móti. A að fela
ríkisfyrirtæki, sem eins og í
þessu tilfelli er jafnframt ein-
okunaraðili, alla þá þjónustu
sem með nokkru móti er hægt
að troða upp á hana, eða á að
reyna að einskorða sig við þá
þætti sem telja verður nauð-
synlegt eða eðlilegt að sé í
höndum opinbers aðila
Þótt leiða megi ótal rök að
því að rekstur almenna síma-
kerfisins skuli vera í höndum
hins opinbera, eiga slík rök á
engan hátt við ráðgjafaþjón-
ustu í sambandi við símabúnað
fyrirtækja. Þvert á móti tel ég
að algjör ríkisforsjá á því sviði
sé mjög neikvæð. bjóði upp á
óeðlilega stöðnun og sé nánast
niðurlægjandi fyrir stjórnend-
ur fyrirtækja.
— Hvernig er síma og fjar-
skiptaþjónusta fyrirtækisins
byggð upp?
— Ef fyrirtæki eða stofnun
hefur áhuga á þessari þjónustu
fyrirtækisins er gerður samn-
ingur um úttekt á símakerfi og
símaþjónustu fyrirtækisins, og
tillögur um breytingar og ný-
skipan þessara mála. Símnot-
andi veitir fyrirtækinu umboð
til upplýsingaöflunar hjá Pósti
og síma varðandi núverandi
búnað og notkun hans og til
að semja um álagsmælingar.
Athuganir eru gerðar á
símabúnaði og símanotkun ein-
stakra starfsmanna og deilda.
Gerð er könnun hjá starfsfólki
um símanotkun þess með spurn-
ingalista og færslu dagbókar
um símanotkun þess vissan
tíma t.d. eina viku. Síðan er
unnið úr þessum upplýsingum
og samin skýrsla. Þar er síma-
kerfið kortlagt eins og það er
14
FV 7 1977