Frjáls verslun - 01.03.1979, Side 43
samvinnu við MITI. Að Keidanren eiga aðild 6-700
stærstu fyrirtækin og skiptast eftir viöskiptagreinum í
ákveðna hópa.
Keidanren hefur yfir að ráða sérmenntuðu starfsliði
sem vinnur að rannsóknum og áætlanagerð fyrir
hinar ýmsu nefndir og undirbýr ráðstefnur þar sem
ráöamönnum samtakanna gefst kostur á að fræðast
og mynda sér skoðun í þýðingarmiklum málum.
MITI tekur sjaldnast formlegar ákvarðanir án við-
ræðna og oftast er um samkomulag að ræða milli
fyrirtækja og ríkisvalds um stefnuna í viðskiptamálum.
Ef ákvörðun er þannig tekin sem kemur hart niður á
einhverri grein atvinnulífsins þá er alltaf hugsað fyrir
því að bæta það á annan hátt. Til dæmis má taka í
þessu sambandi að fái Sumitoma samsteypan aðstoð
við verkefni í Singapore þá getur Mitsui átt von á hinu
sama í íran og Mitsubishi í Saudi-Arabíu.
Raunhæft dæmi um þetta eru olíufélögin eftir olíu-
kreppuna 1973. Til að milda verðbólguáhrif olíu-
hækkunar OPEC-landanna á efnahagslífið í Japan,
bannaði MITI hækkun á olíu sem svaraði hækkun
OPEC-landanna. Vitaskuld kom þetta mjög niður á
olíufyrirtækjunum uns svo var komið að þau töpuðu
stórfé. Þegar tækifærið kom var ætlast til þess að
MITI kæmi til móts við olíufélögin þannig að þau gætu
bætt sér skaðann. Sumarið 1977 þegar yenið steig
mjög í verði varð olía hagstæðari í innflutningi og
hagur olíufyrirtækjanna vænkaðist. Samkvæmt því
sem olíufélögin höfðu lagt á sig var þeim leyft að njóta
fyrri samstarfsvilja lengur en annars hefði orðið.
Embættismenn ráðuneytanna og kaupsýslumenn
hittast reglulega í sérstökum umræðunefndum, en
allar stærri ríkisstofnanir og ráóuneyti starfrækja
slíkar nefndir. í þeim er rætt um stefnumótunina á
hinum ýmsu sviðum.
Opinberlega eiga menn sæti í umræðunefndum
þessum sem einstaklingar, en þess er vandlega gætt
að fulltrúar hinna ólíku fyrirtækja, verkalýðsleiðtogar
og sérfræðingar séu til staðar. Þannig að í raun er
allra sjónarmiða gætt. Umræðunefndir þessar eru í
eðli sínu nokkuð ólíkar, en oftast mun um að ræða
tæki stjórnvalda til stefnumörkunar þar sem starfs-
menn ráðuneytanna velja sjálfir nefndarmennina,
undirbúa og velja umræðuefniö. Skýrslur þessara
nefnda eru einnig ritaöar af embættismönnunum.
Þingið (Diet) ákveður vitaskuld stefnuatriðin endan-
lega, en ef um samstöðu embættismanna og um-
ræðunefnda er að ræða gerir þingið lítið annað en að
samþykkja það sem þar hefur verið ákveðið.
Niðurstöður umræðunefndanna eru birtar opin-
berlega og þeim er veitt mun meiri athygli en títt er á
Vesturlöndum um hliðstæöar skýrslur. Almenningur
er því betur að sér um þau mál sem stjórnvöld fást við
hverju sinni og áhugasamir borgarar koma ekki af
fjöllum þegar þýðingarmiklar ákvarðanir eru teknar
um atriði sem snerta þjóðarhag. Tilgangurinn er að
skapa traust almennings á embættismönnunum og
stuðning við ákvarðanir þeirra áður en þær eru end-
anlega teknar.
Þau málefni sem rædd eru af helstu embættis-
mönnum MITI eru einnig til umræðu hjá háttsettum
ráðamönnum innan Keidanren. Stundum komast
þessir aðilar aö gagnstæðum niöurstööum og hags-
munaáreksturinn getur orðið harður. MITI tekur sínar
ákvarðanir óháð fyrirmælum viðskiptalífsins sem
stundum veldur gagnrýni aðila í viðskiptalifi þess
efnis að MITI eigi ekki að skipta sér af málum sem
þeim komi ekki við. Aðrir viöurkenna að aðila viö-
skiptalífsins skorti þá heildaryfirsýn sem nauðsynleg
sé til þess að geta leyst ágreining og togstreitu milli
hinna ýmsu greina eða fyrirtækja. Þessa yfirsýn hafi
MITI hinsvegar og þess vegna séu menn þrátt fyrir allt
reiöubúnir til þess að treysta á ákvarðanir MITI.
Forsvarsmenn Keidanren foröast á hinn bóginn að
taka afstöðu sem iíklegt er að mæti mótstöðu innan
þeirra eigin raða og þess vegna er stundum hentugra
að MITI sé í hlutverki blóraböggulsins sem allir mega
skamma. MITI tekur þó ekki neinar afgerandi ákvarð-
anir í reynd nema hafa tryggt sér nægilegan stuðning
og hefur auk þess yfir að ráða þvingunartækjum ef
annað bregst. Þá neita hinir stærri bankar að lána til
framkvæmda sem eru í andstöðu við áætlanir MITI.
Rétt upplýsingastreymi getur haft æskileg áhrif á
hugmyndir forstöðumanna fyrirtækjanna. Til dæmis
eru lýsingar á nýrri tækni og skipulagningu líklegar til
þess að skapa umræður og áhuga hinna ýmsu fyrir-
tækja á því að endurnýja hjá sér. Samkeppnin virkar
þannig til góðs. Þetta, fremur en boðvald frá MITI, er
líklegt til að hafa áhrif í þá átt að fyrirtækin þróist í
samræmi við vilja embættismanna MITI. Það er þessi
félagslegi þrýstingur milli forráöamanna hinna ýmsu
fyrirtækja, jafnt sem álit þeirra innan fyrirtækisins,
sem hvetur þá til viðbragða.
Fjármálaráöuneytið (MOF) hefur yfirumsjón meö
starfsemi japanska seðlabankans sem er banki 12
stærstu viðskiptabankanna sem fjármagna höfuðstól
fyrirtækjanna. MOF setur reglur um verðbréfamark-
aðina og hefur tryggt að fjármagnið í fyrirtækjunum
kemur aðallega úr bönkunum fremur en úr kauphöll-
unum. Það er auðveldara fyrir ráðuneytið að fylgjast
með starfsemi bankanna en að ráða við sveiflurnar á
verðbréfamörkuðunum.
Efnahagsstefnan.
41