Frjáls verslun - 01.07.1979, Side 9
Björn Teitsson, magister hefur verið settur
skólameistari Menntaskólans á ísafirði frá 1.
september n.k.
— Meirihluti nemenda skólans er af Vest-
fjörðum, en stærsti hópurinn er frá ísafirði.
Síðastliðin ár hafa að jafnaði 150—160 nem-
endur stundað nám við skólann, en um helm-
ingur nemenda er í heimavist. Skólinn hefur
útskrifað stúdenta frá því 1974. S.l. níu ár hefur
Jón Baldvin Hannibalsson veriö skólameistari
viö skólann, sagði Björn.
— Námsbrautum er skipt í félagssvið og
raungreinasvið, en næsta skólaár er fyrirhugað
að byrja með nýtt svið, verslunarsvið, sagði
Björn ennfremur.
Björn Teitsson er fæddur 11. október 1941 á
Brún í S-Þingeyjarsýslu. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri 1962 og lauk mag.
art. prófi við Háskóla íslands 1970. Um eins árs
skeið var hann við framhaldsnám og störf við
háskólann í Bergen.
Björn hefur undanfarin ár verið kennari í
sagnfræði við Háskóla íslands. Hann hefur
tvisvar verið lektor um hríð, en annarsstunda-
kennari við skólann. Frá 1972 hefur Björn verið
ritstjóri Sögu, tímarits Sögufélagsins.
Hann hefur jafnframt stundað sagnfræði-
rannsóknir og staðið fyrir byggðasögurann-
sóknum, sem eru hluti af rannsóknum á sögu
byggðar á síðmiööldum á Norðurlöndum.
Þessum rannsóknum lýkur á þessu ári.
Á árunum 1972—1976 hafði Björn umsjón
með þáttum um störf Alþingis í sjónvarpinu
ásamt Birni Þorsteinssyni.
Hinrik Bjarnason hefur verið ráðinn deildar-
stjóri Lista- og skemmtideildar sjónvarpsins.
— Stjórnandi þessarar deildar sér um þá
efnisflokka, sem í nafni deildarinnar felast, þ.e.
lista og skemmtiefni. í því felast m.a. innkaup
og val á erlendu efni og framleiðsla á innlendu
efni svo og upptökur. Þetta starf er stjórnunar-
starf og felur í sér mikil samskipti við fólk, sagði
Hinrik.
Hinrik er fæddur 8. júlí 1934 á Stokkseyri.
Hann lauk prófi frá Kennaraskóla íslands 1954.
1956—58 var hann skólastjóri við Vistheimilið
Breiðuvík í Rauðasandshreppi. 1958—60 var
hann við nám í Danmörku og Bandaríkjunum í
félagsgreinum, sérstaklega er lýtur að barna-
vernd. Samtímis kennaranáminu var hann í
leikskóla Lárusar Pálssonar í þrjú ár.
Hinrik hefur verið kennari við Breiöagerðis-
skóla og Réttarholtsskólann, en frá 1972 hefur
hann verið framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs
Reykjavíkur.
Þegar íslenska sjónvarpið tók til starfa 1966
tók Hinrik að sér umsjón með barnaefni sjón-
varpsins, þ.e. Stundarinnar okkar, og var hann
umsjónarmaður þáttarins til 1968. Hinrik sótti
námskeið á vegum sjónvarpsins í upptöku-
stjórn hjá sænska sjónvarpinu 1968. Hann
hefur gert kvikmyndir fyrir sjónvarpið, m.a.
þætti fyrir börn. Hann hefur einnig stjórnað
upptöku þátta hjá fréttadeild sjónvarpsins,
þ.á.m. Landshorns sem síðar varð Kastljós í tvo
vetur. Síðast stjórnaði Hinrik umræðuþætti í
sjónvarpinu sl. vetur.