Frjáls verslun - 01.09.1979, Síða 19
,,Hvað með gámaflutninga út á
land“?
,,Vegna erfiðra hafnarskilyrða
og fækjaskorts hefur Eimskip ekki
gefað komið við eins miklum
gámaflutningum út á landsbyggð-
ina og æskilegt hefði verið. Þó má
koma við gámaflutningum i nokkr-
um mæli s.s. til Akureyrar og ísa-
fjarðar, en stefnt er að því að auka
gámaflutninga á ströndina eins og
hægt er“.
Innflutningur frekar í
gámum
en útflutningur
„Hvaða vörutegundir í inn- og
útflutningi eru mest í gámum' ?
„í innflutningi eru gámar notaðir
fyrir allan venjulegan stykkjavöru-
flutning. Þá þarf m.a. sérbyggða
gáma fyrir vissar vörutegundir. I
dag er e.t.v. réttara að teija upp
þær vörutegundir sem ekki er
hægt að flytja í gámum og má þar
helst nefna vörur í stórum send-
ingum, fleiri hundruð tonn, s.s.
timbur og járn, auk þess stór stykki
og/eða þung, sem ekki komast í
gáma".
„Hvað borga viðskiptavinirnir í
leigu fyrir gámana"?
„Meó eðlilegu viðhaldi má
reikna með að venjulegur gámur
kosti um 3—4 dollara á dag í leigu,
en frystigámur um 20 dollara.
Undir öllum venjulegum kringum-
stæðum er gámakostnaður inni-
falinn í flutningsgjaldinu".
Margt í vegi fyrir hag-
kvæmu skipulagi gáma-
flutninga
„Hvaða framtíð telur Eimskipa-
félagið vera í gámaflutningum"?
„Almennt séð er það talið höf-
uðskilyrði til þess að gámaflutn-
ingar til og frá ákveðinni höfn verði
hagkvæmir, að flutningalínur (in-
fra structure) að og frá höfninni
séu það greiðar, að flutningur
gáma geti farið fram hindrunar-
laust og á ódýran hátt. Því miður
vantar mikið á að þessi skilyrði séu
til staóar hér á landi. Auk þess er
núverandi skipan og aðbúnaður
inn- og útflutningsverslunar og
þar með skipun verðlagsmála ekki
til þess fallin að komió verði við
hagkvæmasta skipulagi flutning-
anna. Má þvi búast við að þessi
atriði geti að einhverju marki
hindrað eðlilega framþróun í
þessum efnum, í náinni framtíð".
19