Frjáls verslun - 01.09.1979, Síða 55
farið með allt að 'A hluta innfluttra
bíla. Þá hafa gengismálin einnig
verið okkur óhagstaeð. Þannig að
við höfum ekki getað séð við
þessu ennþá en við erum samt
sem áður með ýmislegt í huga."
Lán
Áður en við Ijúkum þessu grein-
arkorni þykir rétt aö minnast lítil-
lega á greiðsluskilmála þegar um
kaup á nýjum bílum er að ræða.
Meginreglan er sú að því dýrari
sem bíllinn er, því meira er lánað í
honum. Á millistórum bílum og
minni bílum er algengt að lánuð sé
um hálf milljón til 700 þúsund sem
greiðist á 5 til 7 mánuðum. Þó fer
þetta allt upp í eina milljón króna.
Nokkuð hefur verið talað um sér-
tilboð á bílunum og þegar um slíkt
er aó ræða er heldur dregið úr
lánum eins og gefur að skilja.
Hækkað benzínverð hefur valdið verulegum samdrættl í sölu amer-
ískra bíla — þeirra eyðslufrekari.
Niðurstöður
Ef draga má einhverjar niður-
stöður af þessum svörum, sem hér
hafa birst á undan, þá virðist ekki
vera mikill samdráttur ennþá í inn-
flutningi nýrra bifreiða. Þó má
greina, að það er að harðna í ári
hjá flestum fyrirtækjanna en þau
eru færri sem eru enn á uppleið.
Þá kemur glögglega í Ijós að al-
mennt er mikió fráhvarf frá stórum
bílum og eyðslufrekum, s.s. jepp-
um með stórar vélar. Japanskir og
rússneskir bílar eru ótvírætt þeir
sem standa upp úr, eins og er, þó
að eitthvað sé farið að halla undan
fæti, allavega hjá japönsku bílun-
um. Það má kannski draga þetta
saman í eitt og segja: Nokkur
samdráttur hefur orðið í bílainn-
flutningi þó að ástandið sé ekki
alvarlegt sem stendur.
Sólaðir
hiólbardar
Eigum á lager allar stærðir jeppa- og
fólksbifreiðahjólbarða.
Sendum um land allt.
Opiðfráö—19,
Iaugardaga8—16
Hjólbarðasólun Hafnarfjardarh.f.,
Trönuhrauni 2, sími52222.