Frjáls verslun - 01.09.1979, Qupperneq 65
Þelr hafa verið t flutnlngum mllli Reykjavfkur og Akureyrar f 30 ár, bræðurnlr
Pétur og Valdimar. Eflaust kannast allir við stóru flutningabílana þeirra, sem
sífellt eru í törum. Og fyrirtæki þeirra er síungt, og nú eru þeir að byggja stórhýsi
fyrir vöruafgreiðslu sína að Draupnisgötu 6 í vesturhluta bæjarins.
með Pétri og Valdimar:
Úr 3 torma
bílum upp í
allt að 23 tonn
Aðstaðan að Skipagötu 14 er
líka fyrir löngu orðin bágborin.
Aökeyrslan hentar illa 13 tonna
bílum, og vöruskemman ákaflega
óhentug, þegar mikið er að gera
hjá fyrirtækinu.
,,Þetta byrjaði allt með Chevro-
let '42, þriggja tonna bíl," sagði
Pétur Jónsson, þegar FV hitti hann
að máli nyrðra. ,,Ég hafði verið í
mjólkurflutningum og tók svo að
mér að aka suður með osta. Gall-
inn var bara sá aö það var ekkert
að flytja til þaka. Fyrsta afgreiðslan
min var hjá Sigurði Ólafssyni
skrifstofustjóra í Hörpu í Reykja-
vík. Hann sá um þetta meðan hægt
var, þá tók Frímann í Hafnarhúsinu
við afgreiðslunni. Þetta jókst mikið
og bólgnaði út. Núna erum við
með eina sex bíla, þetta 12 til 13
tonn hver, reyndar 22—23 tonn
þegar tengivagnar eru notaðir.
„Svakalegt í gamla daga“
„Þessir flutningar gátu verið
nokkuð svakalegir í gamla daga,
við þurftum að láta fyrirbérast í
bílunum upp á heiðum stundum,
en einhvern veginn baksaðist
þetta áfram," sagði Pétur.
Þráinn Jónsson er fram-
kvæmdastjóri Péturs og Valdim-
ars. Hann kvaðst ekki geta sagt til
um hvenær flutt yrði í nýja hús-
næðið við Draupnisgötu. Enn ætti
eftir að selja húsnæðið við Skipa-
götu, og allir vissu hversu erfitt er
að afla lána í dag. Grunnur ný-
byggingarinnar hefði reynzt
þungur í skauti. Tólf milljónir fóru í
uppfyllingu á fúamýrinni þar sem
byggingalóö þeirra er, og gatna-
gerðargjöldin námu 7 milljónum
króna. Er nú verið að reisa þakið á
þessu 600 fermetra húsi.
Pétur og Valdimar aka á milli
Akureyrar og Reykjavíkur daglega
og allt að tíu ferðir í viku árið um
kring. Stærsti viðskiptaaðilinn er
Vífilfell h.f., framleiðandi Coca--
Cola. Fyrir almenning er smá-
pakkaþjónustan mjög vinsæl og
þýðingarmikil.
Bifreiðasala
Viðgerðaþjónusta
Almennar
bifreiðaviðgerðir
Vlymoulfí
SNIDILL HF. x
Óseyri 8
Póstnúmer 602
Símar: 96-22520, 96-22255
65