Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1979, Side 75

Frjáls verslun - 01.09.1979, Side 75
um stjórnvölinn fyrirtæki ein, þá er ekki víst að ég hefði haldið út í þetta ævintýri fyrir rúmum þrem árum. Hingað kom ég praktískt talað bara með tann- burstann. Og aðeins einn maður var eftir í verksmiðjunni. Ég dreif í að auglýsa eftir mannskap og tókst að koma framleiðslunni í gang. Auðvitað kann ég ekkert í rafsuðu, en ég hef góða menn hér í verksmiðjunni og nú hrannast inn pantanirnar, og ég var einmitt á fundi með mínum mönnum og var að skýra þeim frá auknu álagi á okkur. Ég hef þetta nokkuð frjálst. Menn fá bónusgreiðslur þannig að aukin afköst hvers og eins gefa betri laun. Við erum hér fá, en eins og bezta fjölskylda.“ ,,Ég sé ekki eftir að hafa hellt mér út í þetta. Auðvitað var þaö gjörbreyting frá því að vera daginn út og inn í pottum og pönnum og barnauppeldi. Eg geri ekki annað en að brosa að vinum mínum sem eru að reyna að fá mig burtu frá þessu ,,járnarusli", eins og sumir hafa orðað það." Margir framleiða Runtal-eftirlíkingar Ofnasmiðja Norðurlands fram- leiðir eftir einkaleyfi Runtal i Sviss eins og Runtal-verksmiðjan í Reykjavík og Ofnasmiðja Suður- nesja. Guðrún kvað hinsvegar marga aðra aðila hafa tekið upp patent Runtal og hefðu málaferli risið vegna þess. Þau hefðu tapað málinu og sætu uppi með það að borga árlega einkaleyfisgjöld, meðan aðrir framleiddu eftirlíking- ar án þess að þurfa að greiöa fyrir. ,,En ég er ákveðin í að halda ótrauð áfram," sagði Guðrún, ,,hér hefur mér verið vel tekið og mér líkar vel við það fólk, sem ég hef kynnzt hér og það hefur reynzt mér vel. Ég ætla ekki aó fara út í nein ævintýri með verksmiðjuna, held frekar áfram í sama anda og fyrr. Þetta er erfitt, ég reyni að vera mætt klukkan 8 á hverjum morgni, og losna sjaldnast fyrr en 6—7 á daginn. Ég er forlagatrúar og þetta hefur átt að verða mitt hlutskipti, og því uni ég vel," sagði Guðrún Einarsdóttir. Því má skjóta inn í aö lokum að Guörún er dóttir Einars Péturs- sonar, sem frægur varð í júnímán- uði 1913, þegar hann ögraði danska herveldinu með því að róa um höfnina í Reykjavík með blá- hvíta fánann. Yfirmenn dansks herskips létu gera fánann upp- tækan og handtóku Einar, sem þá var innanbúðarmaður í Liver- pool-verzluninni. Atburður þessi kveikti hið fræga fánamál. Hann og Sigurjón í Álafossi voru bræð- ur. Móöir Guðrúnar er Unnur Pjetursdóttir, Ingimundarsonar fyrsta slökkviliösstjórans í Reykja- vík. BÓKHALD Glerárgötu 20 PÉTUR OG VALDIMAR Akureyri Skipagötu 14 Sími: 96-24870 Símar: 96-23917, 23017 F ramkvæmdast jóri: • Jón G. Gíslason. Vöruflutningar með bifreiðum BÓKHALDS- og SKATTSKILA- milli Akureyrar og Reykjavíkur. • ÞJÓNUSTA. UMBOÐ FYRIR: Coca-Cola og Sælgætisgerðina Opal hf., Reykjavík. 75

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.