Frjáls verslun - 01.07.1989, Blaðsíða 6
EFNI
5 RITSTJÓRNARGREIN
8 FRÉTTIR
14 FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI
Fjallað er um íjölskykldufyrirtæki frá
ýmsum sjónarhomum. Rætt er um kosti
þeirra og galla og það hvort umrætt
fyrirkomulag í rekstri sé líklegt til að
halda velli í framtíðinni. Fyrst er leitað
eftir skoðunum sérfræðinga og að því
búnu er rætt við þrjá þekkta íslendinga
sem allir eru í forsvari fyrir
gölskyldufyrirtæki í þremur mismunandi
atvinnugreinum. Um er að ræða fulltrúa
fyrstu, annarrar og þriðju kynslóðar í
rekstri flölskyldufyrirtækja. Gunnar
Jóhannsson stjómarformaður
Holtabúsins, Fóðurblöndunnar, Ewos og
Komax er fulltrúi fyrstu kynslóðarinnar.
Þá er rætt við Ingimund Sigfússon
forstjóra Heklu en hann er fulltrúi
annarrar kynslóðar. Loks er rætt við
Harald Sturlaugsson forstjóra Haraldar
Böðvarssonar og Co. á Akranesi. Hann
er fulltrúi þriðju kynslóðar í rekstri
fjölskyldufyrirtækis
26 ÁR FRÁ BREYTINGU
Sumarið 1988 ákvað Frjáist framtak hf.,
útgáfufyrirtæki Frjálsrar verslunar, að
sameina þrjú af atvinnulífsblöðum sínum
undir nafni Frjálsrar verslunar og efla
tfmaritið jafnframt til muna. Nú er eitt ár
liðið frá breytingunni og af því tilefni er
staldrað örh'tið við.
28 HÓTELSTJÓRIÁ HILTON
Halldór Briem er 39 ára gamall
íslendingur sem gegnir starfi hótelstjóra
á Hiltonhótelinu á Guam sem er suðræn
sælueyja í miðju Kyrrahafinu.
30 HLUTABRÉFA-
MARKAÐURINN
Frosti Sigurjónsson er ungur
viðskiptafræðingur sem starfar hjá
Verðbréfamarkaði Iðnaðarbankans.
Hann hefur ritað grein fyrir Frjálsa
verslun um hlutabréfamarkaðinn á
íslandi þar sem m.a. er fjallað um
arðsemi fjárfestinga í hlutabréfum hér á
landi.
35 VIÐTAL VIÐ MAGNUS
PÉTURSSON
Magnús Pétursson flutti sig um
stundarsakir úr Arnarhvoli og vestur um
haf til höfuðstöðva
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington.
Hann hvílir sig nú á embætti
hagsýslustjóra en er hluti af norrænu
starfsliði sem undirbýr og kynnir
sjónarmið Norðurlandanna varðandi
skuldir þróunarlanda og stöðu
efnahagsmála víða um heim.
41SKJALASKIPTI MILLI
TÖLVA
Ilér heldur Arnþór Þórðarson
verkfræðingur hjá Félagi íslenskra
iðnrekenda áfram umfjöllun um
pappírslaus viðskipti, skjalaskipti milli
tölva.
44 NYIUNGAR
48SAGACLASS
Þægindi, þjónusta og sveigjanleiki eru
þeir þættir sem einkenna þann
ferðamáta að fljúga með Saga Class.
51UMHVERFI
IÐNFYRIRTÆKJA
Nú er hásumar og á þeim tíma tökum við
hvað best eftir umhverfinu. Frágangur
húsa og lóða í atvinnurekstrinum er
vægast sagt mismunandi. Því miður er
hann allt of víða til háborinnar skammar
en sem betur fer finnast einnig fjölmörg
dæmi um hið gagnstæða. Við fórum á
stúfana til að kynna okkur umhverfi
iðnfyrirtækja og birtum hér niðurstöður
okkar í máli og myndum.
60 MURDOCH BLAÐAKÓNGUR
Hann er nefndur stálmaðurinn með
jámviljann. Murdoch blaðakóngur er
einhver umsvifamesti útgefandi í heimi.
Hami er löngu orðinn þjóðsagnarpersóna
í lifanda lífi. Fjölmiðlafyrirtæki hans
skjóta fótum víða um heim en mest fer
þó fyrir umsvifum hans í Bretlandi,
Bandaríkjunum og Astralíu. Ferill hans
er stórmerkilegur og við fáum nokkra
innsýn í hann í þessari grein eftir Bjarna
Brynjólfsson blaðamann hjá Frjálsu
framtaki hf.
66 BRÉF FRÁ ÚTGEFANDA