Frjáls verslun - 01.07.1989, Page 20
FORSÍÐUGREIN
ÚT FYRIR FJÖLSKYLDUNA
En hvað sem öðru líður er ég sannfærður um að ef
Hekla hf. á að halda áfram að vera til og dafna í framtíðinni
er nauðsynlegt að fleiri en meðlimir fjölskyldunnar fari
með stjórn og rekstur fyrirtækisins. Við systkinin erum
búin að hugsa um þessi mál og ræða þau heilmikið. Við
reynum að líta hlutlægt á málin og með hagsmuni fjölskyld-
unnar og fyrirtækisins í huga,“ sagði Ingimundur og var
greinilega mikið niðri fyrir.
Er Ingimundur með þessum orðum að spá fyrir um
útrýmingu fjölskyldufyrirtækja yfirleitt? Er það framtíð
allra íjölskyldufyrirtækja sem dafna vel í dag að breytast í
almenningsfélög? „Nei, ég er ekki endilega að segja það.
Ég hef mikla trú á framtíð fjölskyldufyrirtækja og vona að
ávallt verði grundvöllur í þjóðfélaginu fyrir slík fyrirtæki og
að þau fái að blómstra. Það má ekki gleymast að yfirleitt
eru svona fyrirtæki byggð upp af mikilli alúð og vinnu-
hörku. Menn gefa allt sem þeir eiga og það hlýtur að vera
fyrirtækjunum og þjóðfélaginu öllu til góðs. Hins vegar
geta ijölskyldufyrirtækin tekið breytingum í tímans rás og
eins og önnur fyrirtæki verða þau að fylgjast vel með því
sem er að gerast og því sem mun gerast í framtíðinni, ef
þau eiga að lifa af,“ sagði Ingimundur að lokum.
HARALDUR BÖÐVARSSON OG CO.
EKKIAFDREP FYRIR AFÆTUR
„Það er stundum sagt um mig að ég sé fæddur
með silfurskeið í munni. Eg vil nú svara slíkum
ummælum á þá leið að mjög auðveldlega falli á
silfurskeiðar sem ekki eru fægðar reglulega. Allir
hlutir þurfa sína umhirðu því ekkert varir að ei-
lífu,“ sagði Haraldur Sturlaugsson, framkvæmda-
stjóri Haraldar Böðvarssonar og Co., sem er fjöl-
skyldufyrirtæki á Akranesi.
Haraldur Böðvarsson og Co. er eitt af elstu útgerðar-
og fiskvinnslufyrirtækjum landsins en það var stofnað af
Haraldi Böðvarssyni árið 1906. Fyrirtækið hefur ávallt
verið í eigu sömu fjölskyldunnar og er stjórnun fyrirtækis-
ins nú í höndum hins svokallaða 3. ættliðs. Yfirumsjón með
rekstrinum hefur erfst í beinan karllegg og nú eru allir
sonarsynir Haraldar Böðvarssonar að vinna við stjórnun
fyrirtækisins en það eru auk Haraldar Sturlaugssonar þeir
Sveinn Sturlaugsson og Sturlaugur
Sturlaugsson.
Bræðurnir Sveinn, Haraldur og Sturlaugur Sturlaugssynir.
GAF SYNISÍNUM HELMINGINN
Sjálfur eignaðist frumkvöðullinn,
Haraldur Böðvarsson, einn son og
eina dóttur. Sonurinn, Sturlaugur H.
Böðvarsson, byrjaði ungur að starfa
við hlið föður síns enda gaf Haraldur
honum helminginn í fyrirtækinu árið
1938. Sturlaugur eignaðist síðan sjö
böm, fjórar dætur og þrjá syni, sem
allir vinna við stjómun fyrirtækisins
eins og áður sagði. Dætur Sturlaugs
eiga sinn hlut en koma að öðru leyti
ekki nálægt rekstrinum.
En þrátt fyrir að rekstur fyrirtæk-
isins sé eingöngu í höndum karlpen-
ingsins í fjölskyldunni er karlaveldið
þó ekki algjört hjá þessu fyrirtæki því
eiginkona Sturlaugs heitins og móðir
þeirra Haraldar, Sveins og Sturlaugs,
Rannveig Böðvarsson, er stjómarfor-
maður fyrirtækisns og stærsti eigandi
þess. Og dóttir hennar, Matthea
20