Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1989, Síða 61

Frjáls verslun - 01.07.1989, Síða 61
Risarnir í Bretlandi. Rupert Murdoch og Robert Maxwell. Maxwell gefur út dagblaðið Daily Mirror í Bretlandi. Efnistök blaðsins eru svipuð og hjá Sun og News of the World. Munurinn er sá að Mirror styður Verkamannaflokk- inn með ritstjórnarstefnu sinni en blöð Murdochs hrópa húrra fyrir Thatcher. Maxwell hefur verið að færa sig yfir í sjónvarpsrekstur og á meðal annars stóran hlut í MTV Europe gervihnattastöðinni. Maxwell Communications Corporation velti 869.6 milljónum punda á síðasta ári. réttamennskunni. Blaðamennskan sem stunduð er á þessum blöðum Murdochs í Bretlandi hefur verið gagnrýnd harðlega og margar spurningar hafa vaknað um það hversu langt blaðamenn megi ganga svo og um ritfrelsi í Bretlandi. Vanda- málið er að lágstéttarblöð eins og The Sun og News of the World bera sig ekki nema að þau höfði til fjöldans og innihald blaðanna virðist svo sannarlega höfða til múgsins í Bretlandi. Þetta kemur til af því að auglýsendur vilja ekki auglýsa í blöðum sem verkalýðurinn les. Hann hefur ekki nægan kaupmátt. Þess vegna verður lágstéttarblað eins og Sun að seljast í minnst tveimur milljónum eint- aka á hverjum degi til þess að bera sig, en miðstéttarblað eins og The Times, sem er einnig í eigu Murdochs, selst í 500.000 eintökum á hverjum degi en hefur margfalt hærri auglýsingatekjur sem vega upp á móti færri seldum ein- tökum. Murdoch festi síðan kaup á tveimur virðulegustu blöðunum í Bretlandi, The Times og The Sunday Times. Hann hef- ur látið breyta útliti beggja blaðanna mik- ið og aukið upplag þeirra en þau hafa samt sem áður haldið virðuleikablæ sín- um sem traustir og vandaðir fjölmiðlar. Á árinu 1973 hóf Murdoch innreið sína í Ameríku. Hann keypti tvö dagblöð í San Antonio í Texas og breytti öðru þeirra í æsif- réttablað. Árið 1974 kom hann á fót landsblaði, The Star, sem kemur út vikulega. Tveimur árum síðar keypti hann síðdegisblaðið The Post í New York. Árið 1982 keypti hann blaðið Her- ald American af Hearst samsteypunni í Boston. Öll þessi blöð urðu æsifrétta- blöð í höndunum á Murdoch. Samstarfs- menn hans segja að hann sé ótrúlega harður en hæfur blaðamaður. Þegar hann vann að útbreiðslu The Sun í Bret- landi vann hann eins og hest- ur við blaðið og átti margar af hug- myndunum sem urðu til þess að blað- ið náði svo feikilegri út- breiðslu sem raun ber vitni. Sagt er að Murdoch njóti þess enn að ganga inn á ritstjórnarskrif- stofur The Sun til þess að skrifa fyrir- sagnir. Hann hefur hirt upp hvert tapfyrirtækið á fætur öðru og hamrað í gegn breytingar á þeim þannig að þau skili honum gróða. 61

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.