Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1989, Qupperneq 10

Frjáls verslun - 01.07.1989, Qupperneq 10
FRETTIR SKAGSTRENDINGUR HF.: KVOTIT1L EIGNAR! Ársreikningur útgerð- arfélagsins Skagstrend- ings hf. á Skagaströnd fyrir síðasta ár hefur tals- vert verið til umræðu að undanförnu. Viðskipta- blað Morgunblaðsins hef- ur m.a. tvívegis gert hann að umtalsefni vegna eign- færslu á togurum félags- ins sem leitt hafa til hækkunar á bókfærðri eiginfjárstöðu fyrirtækis- ins um 140 milljónir króna. Álitsnefnd Félags löggiltra endurskoðenda hefur úrskurðað að sú að- ferð sem beitt er við eign- færslu togaranna hjá Skagstrendingi hf. sam- rýmist ekki viðteknum reikningsskilavenjum. En fleira vekur athygli SAMKEPPNI UM NÖFN Frjálst framtak hf. efndi á sínum tíma til verðlaunasamkeppni um tillögur að nöfnum á göt- ur í landi sínu í Kópavogi. Tillögur bárust frá 330 manns. Ýmsir gerðu margar tillögur og skiptu nöfnin þúsundum. Dómnefnd skipuðu Heimir Pálsson forseti bæjarstjórnar Kópavogs, Guðrún Kvaran ritstjóri Orðabókar Háskóla ís- lands og Hallgrímur T. Ragnarsson fram- kvæmdastjóri byggingar- sviðs Frjáls framtaks. Að mati dómnefndar báru nokkrar tillagnanna af. í þeim öllum var síð- asti liður heitanna -smári og forliðir sóttir í ein- kenni landsins. Dregið var úr nöfnum þessara höfunda og kom upp nafn Erlu Indriðadóttur. í ársreikningi fyrirtækis- ins. Þannig hafa veiði- réttindi að fjárhæð kr. 48,4 milljónir verið eign- færð. Fram kemur að ætl- unin er að afskrifa þau á 5 árum frá 1989 til 1993. Eignfærsla veiðirétt- indanna hefur vakið undrun og fimm ára af- skriftartíminn kemur ekki síður á óvart í ljósi þess að lög um stjórnun fiskveiða renna út á árinu 1990 og þá veit enginn hvað tekur við. Þannig segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra í viðtali við Sjávarfréttir nýlega þegar rætt var um þá togstreytu sem nú er í landinu um fiskveiðik- vótann: „Ef þessi ófriður eykst mikið er hætt við að upp úr sjóði og einhvers konar fiskvinnslukvóti verði settur á.“ Þess má geta að hluta- bréf Skagstrendings hf. hafa verið skráð ineð kaupgengi hjá þeim fyrir- tækjum sem annast við- skipti með hlutabréf. Fróðlegt verður að fylgj- ast með því hvort þessar sérstæðu reikningsskila- aðferðir muni hafa áhrif á skráð gengi í félaginu. Endurskoðandi Skag- strendings hf., Valdimar Guðnason, áritar þennan ársreikning án fyrirvara og telur hann sýna glögga mynd af stöðu og afkomu félagsins. Meðfylgjandi mynd sýnir sigurvegarann ásamt dóm- nefndinni. KRON OG Fll: SAMANI SÖLUÁTAK Félag iðnrekenda mun standa fyrir miklu átaki til kynningar og sölu á ís- lenskum neytendavörum í samstarfi við KRON, Miklagarð, Kaupstað og Kaupgarð dagana 10. til 25. ágúst. Það er Gísli Blöndal viðskiptafulltrúi hjá aug- lýsingastofunni Argusi sem mun stjórna þessu verkefni. Hann segir að íslenskar vörur verði sér- merktar í búðunum þenn- an tíma, þær verði boðnar á tilboðsverðum og aug- lýstar og kynntar með ýmsum hætti meðan á þessu átaki stendur. Auk þess verður ýmislegt gert til skemmtunar þá daga sem átakið stendur yfir. TELEFAXITRUNAÐI Heimilistæki hf. hafa nýlega selt Búnaðar- bankanum telefaxkerfi af Infotec gerð sem notað verður fyrir aðalbankann og útibúin öll. Þetta sam- tengda kerfi hefur upp á að bjóða kosti sem eru um margt merkilegir. Þar er átt við skjalleynd og fjöl- sendingu skjala. Með skjalleynd er átt við að unnt sé að senda skjöl milli telefaxtækja þannig að móttakandinn þarf leyninúmer til að viðtökutækið prenti skjalið út. Þannig er hægt að gæta trúnaðar og bankaleyndar gagnvart viðskiptavinum þó upp- lýsingum sé komið milli staða innan bankans. Fjölsending skjala felst í því að sendar eru sömu upplýsingar til margra aðila án þess að endurtaka þurfi sending- una fyrir hvern og einn. 10
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.