Frjáls verslun - 01.07.1989, Qupperneq 24
mmmmmmm^m^mj
| FORSÍÐUGREIN
HOLTABÚSBRÆÐURNIR:
SAMEIGINLEGUR FJÁRHAGUR
„Okkar styrkur er okkar samstaða. Við bræð-
urnir værum ekki þar sem við erum í dag hefðum
við farið hver sína leið. Velgengni okkar er sam-
starfinu að þakka,“ sagði Gunnar Jóhannsson en
hann og bræður hans, Jón Jóhannsson og Garðar
Jóhannsson, eiga og reka fyrirtækin Holtabúið hf.
og Fóðurblönduna hf. Jafnframt reka þeir og eiga
meirihluta í fyrirtækjunum Kornax hf. og Ewos
hf.
Þeir Garðar, Jón og Gunnar fæddust ekki inn í þessi
fyrirtæki, ef svo mætti að orði komast, og fyrirmyndina að
samstarfinu fengu þeir ekki frá fjölskyldu sinni. Faðir
þeirra keyrði t.d. leigubíl í mörg ár og starfaði þar af
leiðandi mest einn síns liðs. Þeir voru heldur ekkert öðru-
vísi en aðrir bræður á sínum uppvaxtarárum. Þeir rifust og
slógust og voru góðir inn á milli. Sameiginlegur fyrirtækja-
rekstur var eitthvað sem þeir höfðu aldrei leitt hugann að
og það má segja að tilviljun hafi ráðið því að framtíð þeirra
varð eins samofin og raun ber vitni.
„Við áttum í raun og veru ekkert sameiginglegt í upphafi
annað en þá staðreynd að við erum bræður. Að vísu höfðu
tveir okkar áhuga á hestamennsku og það má kannski
segja að það áhugamál sé upphafið að öllu saman. Ég og
Jón bróðir keyptum jörðina, As-
mundarstaði II, undir hrossin.
Við eigum ættir okkar að rekja
til Holtanna og okkur langaði að
stunda hestamennskuna á þeim
slóðum. Jörðin, Ásmundarstað-
ir III, varð síðan föl og við Jón
ákváðum í samvinnu við Garðar
bróður að slá til og kaupa þá jörð
einnig. Þegar hér var komið
sögu fórum við að íhuga hugs-
anlega nýtingarmöguleika á
húsakostum jarðanna. Og það
endaði með því að við settum á
stofn eggja- og svínabú sem
hlaut nafni Holtabúið. Þetta
gerðist fyrir um 20 árum eða
árið 1969. í dag er Holtabúið
móðurfyrirtækið en öll hin fyrir-
tækin sem við eigum og rekum
eru raunverulega í eigu Holta-
búsins hf.
UNNUM KAUPLAUST
Ég ætlaði mér að verða flug-
umferðarstjóri. Garðar er lærður prentari og starfaði sem
slíkur er hann keypti með okkur Jóni Ásmundarstaði III.
Og Jón bróðir var að læra tannlækningar þegar kaupin fóru
fram. Við héldum að vísu áfram hver í sínu fagi eftir að við
settum Holtabúið á stofn. Við unnum fulla vinnu annars
staðar en notuðum allar frístundir til að byggja upp búið.
Fyrstu fjögur árin unnum við kauplaust við búið og tókum
ekki krónu út úr fyrirtækinu. Það er ein af aðalskýringum
þess að allt gekk svona hratt fyrir sig hjá okkur í upphafi.
Einnig byggðum við allt upp sjálfir, smíðuðum ný hús og
bættum þau gömlu og spöruðum okkur ómælda fjármuni á
því. Og svo fór að lokum að við hættum allir okkar fyrri
störfum og snerum okkar að fyrirtækinu eingöngu. Við
fundum okkur í þessum rekstri og tókum hann fram yfir
annað.
ALLT SAMEIGINLEGT NEMA KONURNAR
Við vorum auðvitað blankir á þessum árum og sniðum
okkur stakk eftir vexti. Til dæmis bjuggum við allir í sömu
íbúðinni allt til ársins 1975 en þá var orðið þröngt um okkur
þar sem fjölskyldan stækkaði því árið 1975 höfðum við allir
fest ráð okkar og þá byggðum við þrjú hús. Fram að þeim
tíma hafði allt verið sameiginlegt nema auðvitað konumar.
Auk húsnæðis var fjárhagurinn
sameiginlegur og allt til ársins
1980 notuðum við meira að segja
saman eina bifreið.
Með allt þetta í huga má auð-
vitað segja að samstarf okkar
bræðranna hafi verið óvenju
gott. Enda óx fyrirtækið í hönd-
unum á okkur og reksturinn
þandist úr. Það breyttist að vísu
ýmislegt þegar við urðum allir
fjölskyldumenn. En fram að
þessu hefur það legið skýrt fyrir
að allar ákvarðanir í sambandi
við fyrirtækjareksturinn eru
teknar af okkur þremur en ekki á
fjölskyldufundum. Við þrír get-
um rifist og skilið sáttir en það er
ekki víst að makar okkar geti
það. Konurnar vinna að vísu
meira og minna við starfsemina
og taka þannig fullan þátt í
rekstrinum. En ákvarðanatakan
er í höndum okkar bræðranna."
Árið 1984 keyptu þeir bræður
Gunnar Jóhannsson
24