Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1989, Blaðsíða 52

Frjáls verslun - 01.07.1989, Blaðsíða 52
IÐNAÐUR um um úrbætur utandyra er einfald- lega ekki sinnt. Sömu sögu er að segja úr mörgum öðrum atvinnu- greinum þótt sá hluti þessarar sorg- arsögu verði ekki rakinn hér. Hér á eftir er ætlunin að reifa þessi mál nokkuð og staldra fyrst og fremst við iðnfyrirtæki höfuðborgarsvæðis- ins. Við birtum nokkrar myndir frá þeim fyrirtækjum þar sem vel er að verki staðið en einnig af þeim stöðum þar sem niðumíðslan ræður ríkjum. Rætt er við þá aðila sem hafa með þessi mál að gera, m.a. byggingar- fulltrúa, starfsmenn heilbrigðisyfir- valda og forráðamenn bæjarfélaga. EITT FYRIRTÆKI í BÆNUM! Blaðamenn Frjálsrar verslunar lentu í talsverðum vanda þegar átti að festa á filmu nokkur þeirra iðnfyrir- tækja á höfuðborgarsvæðinu þar sem lóðir voru að fullu frágengnar og um- hverfið í samræmi við þær kröfur sem ætti að gera til vinnustaða. í Mosfellsbæ og Kópavogi, svo dæmi séu tekin, tókst að finna eitt fyrirtæki á hvomm stað þar sem hlutirnir voru í lagi. Eftir akstur um iðnaðarhverfi þessara bæja vöknuðu ýmsar spurn- ingar um það sem fyrir augu bar. Hvers vegna er áhugi forráða- manna fyrirtækjanna á bættu um- hverfi svona k'till? Veldur peninga- skortur því að menn láta frágang lóða sitja á hakanum eða er hugarfarið á villigötum? Við bárum þessar spum- ingar undir Pál Guðjónsson bæjar- stjóra í Mosfellsbæ: „Nei, þótt vissulega sé hart í búi hjá mörgum þessara fyrirtækja er í lang- fæstum tilvikum um að kenna skorti á fjármagni. Einatt er það svo að tiltölu- lega lítið kostar að tyrfa lóðir, gróð- ursetja nokkur tré og fegra umhverfið með þeim hætti. Það sem menn virð- ast ekki hafa áttað sig á er sú stað- reynd að bætt aðkoma að fyrirtækj- unum hlýtur að vekja upp jákvæðar kenndir hjá viðskiptavinum og að fjár- festing í bættu umhverfi skilar sér því í beinhörðum peningum. “ Reykjalundur í Mosfellsbæ reynd- ist vera eina fyrirtækið sem bæjar- stjórinn treysti sér til að mæla með til myndatöku af þeim fyrirtækjum þar sem ástandið er viðunandi. Raunar reyndist það vera meira en viðunandi því allt frá stofnun Reykjalundar hafa forráðamenn þar sinnt umhverfinu mjög vel enda eru skilyrði til ræktun- ar í Mosfellsbæ afar góð. Alafoss hefur lengi verið starf- ræktur í Mosfellsbæ og það meira að segja á sömu slóðum og Reykjalund- ur. Því miður er allt aðra sögu að segjaþaðan. Bflastæði eru ófrágengin og lóðin að öðru leyti eins og þegar byggingu verksmiðjuhúsanna lauk fyrir margt löngu. Skammt frá er að finna Hlíðartúnshverfi þar sem Mos- fellsbær hefur úthlutað lóðum undir iðnfyrirtæki. Á næstum hverri lóð blasir rusl við vegfarendum og við- skiptavinum og maður spyr sig hvað valdi. Eru hér einhvers konar æfinga- búðir fyrir skussa í rekstri fyrirtækja eða veldur hinni ömurlegu heildar- mynd hið gamalkunna, að hver dragi dám af öðrum? Páll Guðjónsson sagði Hlíðartúns- hverfið vera iðnaðarhverfi sem bæj- aryfirvöld hefðu átt í mesta basli við um margra ára skeið. Ástandið væri afar slæmt upp til hópa og ítrekaðar tilraunir til að fá menn til að hressa upp á útlit fyrirtækjanna hefðu borið lítinn sem engan árangur. Á vegum bæjarins færu fram lóðahreinsanir öðru hvoru en jafnharðan sækti í sama farið. „Auðvitað eiga fyrirtæki í iðnaði hér misjafnlega erfitt uppdráttar en eitt er víst að sú mynd sem blasir við þeim sem þangað eiga erindi er ekki líkleg til að glæða viðskiptin. Um leið veldur slæmt iðnaðarhverfi því að ný- ir aðilar hafa takmarkaðan áhuga á því Hellulagning jarðvinna Tökum að okkur hellulagningu og hitalagnir, jarðvegsskipti, moldarkeyrslu, skjólveggi, kanthleðslur o.m.fl. í sambandi við lóðina, garðinn eða bílastæðið. Einnig viðgerðir og smíði á grindverkum. Bjóðum upp á greiðslukjör. Valverk hf. ® 985-24411 á daginn eða 52678 Vörubílar til hverskonar flutninga Útvegum fyllingarefni. Önnumst jarövegsskipti. Timavinna ákvæðisvinna. Vörubílastöðin Þróttur Simi 25300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.