Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1989, Blaðsíða 18

Frjáls verslun - 01.07.1989, Blaðsíða 18
FORSIÐUGREIN kallar á heildaryfirsýn og uppgjörsreglu. í þessu getur falist mikil hætta,“ sagði Reynir Kristinsson rekstrarráð- gjafi. „En þótt fjölskylduformiö geti komið sér vel fyrir fyrir- tæki á meðan þau eru í uppbyggingu hljóta vel rekin fjölskyldufyrirtæki, sem hafa vaxið og þanist út, að breyt- ast í almenningsfélög," sagði Reynir ennfremur. Ámi Vilhjálmsson prófessor sagðist telja fjölskyldu- formið getað lifað góðu lífi í framtíðinni þrátt fyrir fjölgun almenningsfélaga. „Smáatvinnurekstur mun lifa samhliða stærri fyrirtækjum og það má segja að fjölskylduforminu henti þeim vettvangi ágætlega,“ sagði Árni að lokum. HEKLA HF.: ÓVISSA UM FRAMTÍÐINA Ingimundur Sigfússon. Hekla hf. er nokkuð sérstakt fjölskyldufyrir- tæki að því leyti til að öll fjögur börn stofnandans og frumkvöðulsins, Sigfúsar Bjarnasonar, taka fullan þátt í rekstrinum. Elsti sonurinn, Ingi- mundur, hefur verið forstjóri fyrirtækisins síðan faðir hans lést árið 1967. „Þátttöku okkar bræðranna í rekstri fyrirtækisins má líkja við samfellda þróun. Við erum nánast fæddir inn í fyrirtækið og upphaf afskipta okkar af fyrirtækinu miðast vart við ákveðin tímamörk. Og við erum ekki bara þrír bræðurnir í fyrirtækinu því systir okkar starfar hér einnig,“ sagði Ingimundur Sigfússon í samtali við Frjálsa verslun. Ingimun- dur og bræður hans, þeir Sverrir Sigfússon og Sigfús Sigfússon, eiga og reka Heklu hf. ásamt systur sinni Margréti Sigfúsdóttur. ÖLL SYSTKININ STARFANDI „Ég held að faðir minn hafi ávallt verið hlynntur því að við störfuðum við fyrir- tækið. Og einhvern veginn gekk það eftir. Mér var snemma hlýtt til fyrirtækis- ins og var aldrei mótfallinn því að eyða öllum mínum starfskröftum í uppbygg- ingu þess. Hins vegar lærði ég lögfræði og gat alveg hugsað mér að starfa sem slíkur um tíma. En eftir að ég lauk lögfræðiprófinu lagði faðir minn hart að mér að hefja hér störf og ég gat ekki sett mig á móti þeirri beiðni. Og eftir á að hyggja sé ég ekki eftir því að hafa farið að ósk hans,“ sagði Ingimundur. Aðspurður sagði Ingimundur þau systkinin aldrei hafa haft horn í síðu fyrirtækisins. Vissulega hafi rekstur fyrir- tækisins tekið mikinn tíma frá fjölskyldulífínu og stundum hafi stressið verið mikið en þrátt fyrir það hafi foreldrum þeirra tekist að tengja þau við reksturinn á jákvæðan máta. „Sú ímynd sem við höfðum af Heklu hf. var mjög jákvæð enda gekk fyrirtæk- ið vel í höndum föður míns.“ Sverrir Sigfússon bróðir Ingimundar var aðeins um tvítugt þegar hann hellti sér út í reksturinn, þá nýútskrif- aður úr Verzlunarskólanum. Hann er nú einn af fram- kvæmdastjórum fyrirtækis- ins sem og Sigfús Sigfússon, sem var 25 ára þegar hann hóf fullt starf hjá Heklu. Sig- fús lærði viðskiptafræði í Bandaríkjunum og vann um tíma hjá ÍSAL og er því sá eini af þeim bræðrum sem starfað hefur annars staðar en hjá fyrirtækinu. Margrét Sigfúsdóttir bjó í útlöndum um tíma en byrjaði að starfa hjá Heklu um leið og hún flutti aftur til landsins. Hún sér nú um rekstur raftækja- verslunarinnar. SAMSTARFIÐ GOTT „Það er skemmst frá því að segja að samstarf okkar systkina hefur lánast ein- 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.