Frjáls verslun - 01.07.1989, Page 22
FORSIÐUGREIN
mínir til liðs við fyrirtækið. Sveinn er nú útgerðarstjóri
fyrirtækisins og Sturlaugur framleiðslustjóri. Sturlaugur
er viðskiptafræðingur og hefur staðið fyrir tæknilegri upp-
byggingu fyrirtækisins en Sveinn hefur langa reynslu af
útgerð og sú reynsla hefur komið að góðum notum. Það
má því segja að þeir hafi komið inn á réttum tíma. Það
vantaði góða menn.“
VIÐKVÆMT AÐ REKA FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI
En var ekki erfitt fyrir Harald að þurfa allt í einu að fara
deila allri ákvarðanatöku og stjómun með bræðrum sín-
um? „Nei, mér hefur ekki fundist það erfitt og betur sjá
augu en auga. Það er auðvitað mjög viðkæmt að reka
svona fjölskyldufyrirtæki og þess vegna er mikilvægt að
öll verkaskipting sé vel skilgreind og að sá sem fer með
endanlegt ákvörðunarvald njóti fulls trauts allrar fjölskyld-
unnar. Frumkvöðlamir lögðu ríka áherslu á þetta atriði.
Ef fólk stendur ekki saman við rekstur svona fjölskyldu-
fyrirtækis er hætt við að undirstöðurnar gefi sig eins og
dæmin sanna. Það var mikil gæfa að þessu fyrirtæki var
þreytt úr sameignarfélagi í hlutafélag skömmu eftir að afi
dó. Helga systir föður míns sýndi einstaka framsýni með
því að samþykkja þá breytingu.
EKKIAFDREP FYRIR AFÆTUR
Það er alveg ljóst að þetta fyrirtæki verður að halda
áfram að dafna. Ef okkur tekst ekki að láta það dafna mun
það líklega þróast í að verða opnara hlutafélag. Við munum
þá reyna að stýra því hverjir koma hér inn og hvenær það
gerist. En aðalatriðið er að fyrirtækið staðni ekki eins og
iðulega hefur gerst með fjölskyldufyrirtæki þegar þau eld-
ast. Og hér á enginn að koma inn bara vegna þess að hann
er úr ijölskyldunni. Afi lagði ríka áherslu á það að þetta
fyrirtæki væri stofnað sem atvinnufyrirtæki og ætti að
halda áfram sem slíkt en ætti ekki að verða eitthvert
afdrep fyrir afætur.“
Haraldur Sturlaugsson á sjálfur 4 syni og segist ekkert
frekar gera ráð fyrir því að þeir hefji störf hjá fyrirtækinu.
„Eg get alveg hugsað mér að fá þá hér inn en fyrst og
fremst vil ég að þeir finni sinn farveg í lífinu. Ef þeir koma
til liðs við fyrirtækið verða þeir að gera það af áhuga og
ábyrgð en rétt er að hafa í huga að eftir því sem fjölskyldur
stækka verða fleiri sem hafa um það að segja hvemig
fyrirtækin þróast. Hjá okkur er fjórði ættliðurinn nú þegar
orðinn býsna fjölmennur.
Þótt fjölskylduformið hafi hingað til gefist vel í þessu
fyrirtæki skal dag að kveldi lofa,“ sagði Haraldur.
infotec
LETTVIGTAR
LEFAXTÆKI
Á allra færi
Tækið sem opnar smæsta rekstri dyrnar
aðtelefax-tækninni.
Einnig þeim sem eru á ferð og flugi
- og vinna heima.
• Veguraðeins 5 kg
• lOOnúmeraminni
• Sjálfvirk
sendingaskrá
• Pappírsstærð A-4
• Sendirsíðar
• Lás
á auglýsingamóttöku
Kynntu þér kostina. Þeir eru þarna allir.
(ö
HeimilistæKi hf
Tæknideild • Sætúni 8
SÍMI: 69 15 00
ZidehjuntSveigýaHjHe/jih, i sattutÍHjjWK
22