Frjáls verslun - 01.07.1989, Page 30
FJÁRMÁL
HLUTABRÉFAVIÐSKIPTIÁ ÍSLANDI:
HÁIR RAUNVEXTIR
Greinarhöfundur
Frosti Sigurjónsson er
viðskiptafræðingur og
starfar hjá
Verðbréfamarkaði
Iðnaðarbankans
Þeir sem fjárfestu í hluta-
bréfum Flugleiða fyrir tveim-
ur árum hafa meira en tvö-
faldað eign sína að raunvirði.
Svipaða sögu er að segja um
hlutabréf Eimskips.
í UPPHAFIVAR ENGINN MARKAÐUR
Fyrir áratug þekktu fáir hið rétta
verð hlutabréfa. Þeir hluthafar sem af
einhverjum ástæðum vildu selja
hlutabréf sín áttu erfitt með að finna
kaupanda. Þeir sem keyptu hlutabréf
vildu sjaldnast greiða hátt verð, enda
var óvíst um endursölu bréfanna.
Hlutabréfamarkaðurinn hf.
(HMARK) hóf rekstur haustið 1985.
Hlutabréfamarkaðurinn var tilbúinn
til að kaupa og selja hlutabréf gegn
staðgreiðslu, á því gengi sem hann
auglýsti. í fyrstu var aðeins auglýst
gengi á hlutabréfum Eimskips, Flug-
leiða, Iðnaðarbankans og Verslunar-
bankans. Nú versla Fjárfestingarfé-
lagið og Kaupþing einnig með hluta-
bréf og auglýst er staðgreiðslugengi á
hlutabréfum 10 almenningshlutafé-
laga.
Frá því markaður komst á með
hlutabréf þessara hlutafélaga hefur
verð hlutabréfanna verið að færast
nær raunvirði. Þannig má skýra
mestan hluta þeirrar rniklu verð-
hækkunar sem orðið hefur á hluta-
bréfum frá því að markaður komst á.
RAUNÁVÖXTUN Á HEIMSMÆLIKVARÐA
A súluritinu má sjá hve miklu fjár-
festing í hlutabréfum gat skilað um-
fram almennar verðhækkanir árin
1987 og 1988. Eftirtektarvert er að
raunávöxtun hlutabréfa í Eimskip og
Flugleiðum hefur verið mun hærri en
hinna félaganna. Einnig kemur fram
að raunávöxtun var að jafnaði nokkru
RAUNÁVÖXTUN HLUTABRÉFA
200
150
100
50
0
-50
Miðað við sölugengi hjá HÁMARKI í lok árs, greiddan arð og útgefin jöfnunar-
bréf. Miðað er við lánskjaravísitölu. Ekki er tekið tillit til skattalegra áhrifa.
Raunávöxtun hlutabréfa
árin 1987 og 1988
-17%
ATR EIM FLU HAM HSJ IBA VBA
30