Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1989, Side 44

Frjáls verslun - 01.07.1989, Side 44
NYJUNGAR • NÝTT - JAFNVEL í AMERÍKU Innan skamms koma á markaðinn miklu minni myndbandstæki og myndbandatökuvélar en þekkst hafa til þessa. Sony fyrirtækið hefur skýrt frá því að sérfræðingum þess hafi tek- ist að framleiða drif í slík tæki sem eru u.þ.b. helmingi léttari en þau sem nú eru á markaðnum. Þessi drif eru aðal- hluti allra myndbandstækja og myndbandatökuvéla (camcorder). Nýja drifið, sem gengur undir nafn- inu „FL Mecha“, vegur aðeins 6 úns- ur eða 170 grömm. Það er samsett úr miklu smærri hlutum en áður hafa verið notaðir í slík drif. Þetta hefur í för með sér að minnsta myndbandatökuvélin, sem Sony framleiðir núna og vegur 2.6 pund, „léttist" niður í tæp 2 pund eða um rúm 900 grömm. Sony byrjaði að selja öðrum fram- leiðendum slíkra véla þessi nýju og léttu drif fyrir nokkru síðan fyrir um 500 dollara. Það leiðir til um 10% hækkunar á smásöluverði minnstu myndbandatökuvélanna. Síðar hyggst Sonyfyrirtækið setja þessi nýju drif í myndbönd og myndbanda- tökuvélar sem það framleiðir. • SÍMI - TIL AÐ STILLA MYND- BANDSTÆKID Hvernig líst þér á að grípa nýja gerð af símtæki og „tala við“ mynd- bandstækið þitt ef þú hefur gleymt að stilla það á ákveðna upptöku áður en þú fórst að heiman? Panasonic kynnti nýlega á mikilli vörusýningu í Chicago nýtt tæki, PV-4826, sem gerir þetta mögulegt. Umsjón: Atli Steinarsson, Denver Tækið kostar enn sem komið er 550 dollara eða um 25 þús. ísl.kr. Því er þó spáð að það muni fljótlega lækka í verði. Tækið er tengt við heimasímann þinn en annað minna tæki hefur þú með þér í bílnum - eða í vasanum. Á því eru stafatakkar. Þú getur snúið myndbandsspólunni til baka með því að snerta stafma R-E-W (revind), breytt um rás með því að ýta á C (chanel/rás) og tekið upp með því að ýta á L (lengd upptökutíma) og síðan ákveðið klukkustunda- og eða mín- útufjölda. Ef þú ert ekki viss um að „tóm“ spóla sé í myndbandstækinu þá ýtir þú á T-A-P-E og tækið segir þér hvort svo sé. Tæki þetta er nú væntanlega fáan- legt í flestum tækjabúðum í Banda- ríkjunum. t „HUGBÚNAÐUR" Á MYNDAVÉLAR Komin er á markað ný gerð af Min- olta 35 mm myndavélum, Maxxum 7000i, sem er með innbyggðum tölvukubb sem sjálfkrafa stillir fjar- lægðina og ákveður hvort nota þurfi „flash“. En þar með er ekki öll sagan sögð því við þessa nýju myndavél má einn- ig nota 10 sérstaka „tölvudiska" til að bæta myndgæðin við ýmsar mynda- tökur. Er t.d. hægt að „frysta" mynd- ir af íþróttamönnum í keppni og ná fram ýmsum áhrifum filtera á sjálf- virkan hátt. Markaðsstjóri Minolta fyrirtækis- ins segir að kalla megi þessa aukahluti „hugbúnað“ í stíl við hugbúnað hinna ýmsu tölvukerfa. Á myndavélinni er sérstakt slíður sem tölvudiskamir em settir í (þó aðeins einn í einu) en þeir eru á stærð við frímerki. Hver tölvudiskur kostar á Banda- ríkjamarkaði 29 - 39 dollara eða 1350.- til 1800.- krónur. Nýja mynda- vélin kostar þar 838 dollara eða tæpar 39 þúsund krónur. Meðal möguleikanna sem tölvu- diskarnir skapa er „ævintýraferð" en þá breytist fjarlægðarstillingin á með- an á myndatökunni stendur svo útlit myndarinnar verður „milt og dreym- andi“. Hér er hin nýja Maxxum 7000i. Hún er nett og falleg. Til vinstri má sjá diskaslíðrið. Sá er á vélinni heldur er að setja einn af 10 mögulegum tölvudiskum í vélina Annar tölvudiskur skipar mynda- vélinni að taka myndaröð, 3, 5 eða 7 myndir. Þetta tryggir að að minnsta kosti ein mjög skörp og góð mynd fæst af því sem myndavélinni er beint að. Þriðja tölvudiskinn er gott að nota þegar teknar em andlitsmyndir af fólki. Hann skerpir myndirnar og á sjálfkrafa að gefa þeim hina réttu og ákjósanlegu dýpt. 44

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.