Frjáls verslun - 01.07.1989, Page 45
• RÆSA BÍLINN
ÚR120 METRA
FJARLÆGÐ
í Bandaríkjunum er kominn á
markaðinn lítill en athyglisverður
hlutur, sem getur komið bíleigendum
vel allan ársins hring. Þetta er firð-
startari, tæki sem ræsir bílvélina,
miðstöðina og útvarpið í bílnum úr allt
að 400 feta eða 120 metra fjarlægð.
Hver kannast ekki við hversu hrá-
slagalegt það getur verið að setjast
upp í kaldan bílinn að vetrarlagi og
bíða eftir því að miðstöðin hitni og
bræði frostrósirnar eða þurrki móð-
una af rúðunum?
Firðstartarinn kemur sér jafn vel
fyrir bandaríska bfleigendur á sumrin
þegar hitinn í bflnum kemst yfir 50
stig í sólskininu og vinylsætin virðast
að minnsta kosti helmingi heitari. Þá
er gott að geta komið að bflnum eftir
að loftkælingin hefur verið í gangi um
stund.
Firðstartarinn er framleiddur hjá
Clifford Electronics í Californíu. Hann
er gerður fyrir allar tegundir bfla sem
hafa sjálfskiptingu og beina innspýt-
ingu eldsneytis. Það var gert af ör-
yggisástæðum því ef unnt væri að
starta beinskiptum bfl gæti illa farið ef
bfllinn hefði verið skilinn eftir í gír.
Firðstartarinn kostar ísettur 550
dollara (um 25 þúsund kr.) í Banda-
rflíjunum. Hann er byggður á út-
varpstíðni líkt og bflskúrshurðaopnar-
ar. Hver startari er sérstaklega stillt-
ur svo aðrir startarar svo og
hurðaopnarar og þráðlausir símar geti
ekki haft áhrif á hann.
Þetta litla tæki getur einnig veitt
bfleigandanum mikið öryggi. Þannig
getur ekki hver sem er stokkið upp í
bflinn og startað. Sá sem ætlar að
ræsa bflinn verður að „slá inn“
ákveðnar tölur eða stafi. Sé það ekki
gert læsist allt í bflnum.
Framleiðandinn segir að það sé
auðveldara fyrir þjófa að vinna
stærsta vinninginn í happdrættinu en
að finna „lykilorð“ firðstartarans.
Aðalhluta firðstartarans er komið
fyrir undir vélarhlíf bflsins og hann er
óvirkur nema vélarhk'fin sé lokuð.
Hinn hlutinn, sem er eins og keðju-
laga lykill, er í vasa eigandans. Á hon-
um er hnappur, sem þrýst er á til að
gangsetja bflinn, og kviknar ljós í
hnappnum þegar vél bflsins fer í gang.
Fari vélin ekki í gang reynir firðstart-
arinn tvívegis aftur en „startar“ aldrei
lengur en 10 sekúndur í senn. Bflvélin
gengur í 10 mínútur eftir að hún var
ræst með firðstartaranum og ef eng-
inn er þá kominn til að „taka við“ af
tækinu drepst á bflnum. Og svona til
að láta vita að allt sé í góðu lagi blikkar
firðstartarinn parkljósunum tvisvar
áður en hann ræsir vélina.
Samkvæmt markaðskönnunum
munu flestir bandarískir bfleigendur
kaupa firðstartarann til að koma að
bflnum heitum á vetuma og svölum á
sumrin. Öryggið, sem firðstartarinn
veitir, er minna atriði í Bandaríkjun-
um. Aftur á móti vilja margir bfleig-
endur erlendis, t.d. í S-Ameríku,
firðstartarann fyrst og fremst af ör-
yggisástæðum.
• FIMM ÁR
í BIÐRÖÐ
Hinn dæmigerði Bandaríkjamaður
eyðir fimm árum ævi sinnar í biðröð-
um, sex mánuðum í kyrrstæðum bfl-
um bíðandi eftir grænu ljósi og tveim-
ur árum í símtöl við alls konar sölufólk
og aðra sem hringja í númer af handa-
hófi.
Þetta kom í ljós í rannsókn sem
Michael Fortino, forstjóri stjórnunar-
fyrirtækis í Pittsburg, og aðstoðar-
menn hans gerðu. Þeir fylgdust með
daglegu lífi hundruða Bandaríkja-
manna víðsvegar um Bandaríkin með
skeiðklukkur í höndunum og byggðu
áætlanir sínar á þeim niðurstöðum
sem þeir skráðu. Ymislegt kom í ljós í
þessari könnun en eftirfarandi niður-
stöður eru valdar af handahófi úr
miklum fjölda atriða:
* Bandaríkjamenn nota um sex ár
ævi sinnar til að borða.
* hjá þeim fer eitt ár í leit að hlutum
sem þeir vita að eru annað hvort á
heimili þeirra eða á skrifstofunni.
* um þrjú ár fara í fundarsetu
* átta mánuðir í að opna alls kyns
póst sem fer beint í ruslafötuna
* Bandaríkjamenn nota 4 ár ævi
sinnar til heimilisverka
„Það sem er mikilsverðast fyrir
hvern einstakling er að sóa ekki tím-
anum heldur gera það sem hugurinn
gimist,“ segir Fortino.
Til þess að komast að raun um hvar
tæki stystan tíma að fá mat á þekkt-
ustu skyndibitastöðum Bandaríkj-
anna heimsótti rannsóknarliðið alla
matsölustaði Wendy’s, McDonald’s
og Burger King í Pittsburg að
minnsta kosti hundrað sinnum hvern
og einn.
Niðurstaðan varð að það tók 46
sekúndur að meðaltali að fá hamborg-
ara, franskar kartöflur og kók hjá
Wendy’s, hálfa aðra mínútu hjá
McDonald’s en þrjár mínútur að með-
altali hjá Burger King.
A.St. Denver, Colorado.
FYRIRXÆKIÐ
■
HYSTEI?
:: ■
SÁ RÉTT1 FYRHt ÞN>
ÍibENZKA QMBÐQSSAbAN «R
KLAPPARSTÍG 29, S. (91) - 2 64 88
45