Frjáls verslun - 01.07.1989, Side 53
Hlíðartúnshverfi í
Mosfellsbæ. Þessi
hryggðarmynd blasir
við þeim sem erindi
eiga í fyrirtækin.
Ófrágengnar lóðir,
hálfbyggð hús og bíl-
hræ til skreytinga.
Ætli reksturinn
gangi betur í svona
umhverfi?
að slást í hópinn og reyna því að út-
vega sér lóðir annars staðar. Að því
leytinu til er þetta slæmt fyrir bæjar-
félag eins og okkar og við beinlínis
missum úr bænum þá aðila sem að
öðru leyti hefðu ef til vill kosið að
byggja sig hér upp,“ sagði bæjarstjór-
inn í Mosfellsbæ í samtali.
í Kópavogi reyndist ástandið einn-
ig langt frá því að vera viðunandi. Á
vegum umhverfisráðs bæjarins var á
síðasta ári tekinn upp sá siður að veita
þeim atvinnufyrirtækjum viðurkenn-
ingu, sem sköruðu fram úr hvað varð-
ar gott umhverfi utandyra. Nefndar-
menn lentu hins vegar í nokkrum
vanda með þetta verkefni sitt vegna
þess að mjög erfitt var að finna fyrir-
tæki af þessu tagi. Þó fengu fyrirtæk-
in íspan hf. og Síldarútvegsnefnd við-
urkenningar fyrir gott umhverfi og
eru þau vonandi vel að þeim heiðri
komin.
Blaðamenn Frjálsrar verslunar
fóru ekki varhluta af þessu vandamáli
þegar átti að taka myndir af atvinnu-
fyrirtækjum í Kópavogi í snyrtilegu
umhverfi. Vissulega er ekki drasl á
öllum lóðum en hins vegar langt frá
því að ástandið sé viðunandi. í
stærsta iðnaðar- og þjónustuhverfi
bæjarins, við Smiðjuveg og Skemmu-
veg austast í bænum, er greinilegt að
skussamir verða þess valdandi að
hinir verða samdauna slæmu um-
hverfi.
Á sumum lóðum bílaþjónustufyrir-
tækja í Skemmuhverfinu er bókstaf-
lega stríðsástand. Bflapartasölur eru
einar þrjár í hverfinu og þrátt fyrir
ítrekuð tilmæli og fyrirskipanir heil-
brigðisfulltrúa bæjarins, halda menn
uppteknum hætti og rífa sundur bíl-
hræ úti við götu. Ekki þarf að spyrja
um óþrifin sem af slíku hljótast og því
tjóni sem slíkt framferði hlýtur að
valda öðrum fyrirtækjum. Og eins og
einn rekstraraðili í Smiðjuhverfinu
sagði í samtali við Frjálsa verslun:
„Hér hef ég verið með rekstur í meira
en áratug og ég hef fyrir löngu gefist
upp á því að gera snyrtilegt umhverfis
húsið. Mér er kunnugt um að á veg-
um garðyrkjudeildar og heilbrigðis-
fulltrúa hafa lengi verið uppi hug-
myndir um að fá fyrirtækin hér í
hverfinu til samstarfs um bætt um-
hverfi en ekkert orðið úr fram-
kvæmdum. Það þarf ekki nema einn
eða tvo aðila í götunni til að eyðileggja
slík áform og þeir eru örugglega til.“
Eitt alversta dæmið um hörmulega
umgengni utan dyra í Kópavogi er hjá
fyrirtæki við Dalveg, næst Reykja-
nesbraut. Þar hangir uppi ryðgað
steypusíló af gömlum vana, stein-
steyptar húseiningar liggja eins og
hráviði um svæðið, steypuafgangar
hafa storknað í tonnatali og járnarusli
verið dreift á lóð fyrirtækisins af ótrú-
legri nákvæmni. Þetta fyrirtæki á lóð
að einni íjölförnustu umferðaræð
landsins og þúsundir bfla aka fram hjá
á hverjum degi. Bæjaryfirvöld hyggja
nú á aðgerðir til að taka fyrir þetta
ógeðslega ástand og breyta ásýnd
Kópavogs gagnvart þeim sem leið
eiga sunnan að.
Þarft þú að gera við
steypuskemmdir
eða galla!
Taktu þá eftir að:
PRE-KRETE
fæst nú aftur hjá
Fínpússning s/f
Dugguvogi6
sími32500
53