Frjáls verslun - 01.05.1990, Side 41
Spánarkonungur í heimsókn í íslenskri saltfiskverkunarstöð sumarið 1989. Með honum á myndinni eru Sigurður
Einarsson og Magnús Gunnarsson.
starfað hjá fyrirtæki í Barcelona,
Copesco að nafni, sem er stærsti inn-
flytjandi á saltfiski til Katalóníu.
Haustið 1987 var hann ráðinn til að
vinna fyrir SÍF í Barcelona og í byrjun
þessa árs stofnaði SÍF dótturfyrir-
tæki á staðnum sem er að öllu leyti í
eigu samtakanna.
Solemou segir að íslendingar flytji
allan saltfiskinn til Spánar í gegnum
12-14 innflytjendur. Alls voru þetta
um 10 þúsund tonn í fyrra, að sölu-
verðmæti nærri 50 milljónir USD.
Skrifstofa SÍF í Barcelona tekur við
pöntunum og sér um að saltfiskinum
sé skipað á land í Bilbao. Síðan taka
kaupendurnir við vörunni. Skrifstofan
er í stöðugu sambandi við viðskipta-
vinina og fylgist með markaðinum.
Hún stendur fyrir markaðsrannsókn-
um, stjórnar og samræmir allt kynn-
ingar- og auglýsingastarf SÍF á staðn-
um og gerir söluáætlanir.
Mest er selt af saltfiski á matvöru-
mörkuðum en hann er einnig á boð-
stólum í kjörbúðum og sérverslunum.
Auk þess er mikið selt til veitinga-
húsa.
„Verðið hækkaði talsvert í fyrra,
einkum á stórum fiski,“ segir Soler-
nou, „og það hefur einnig farið upp á
við í ár. Eftirspumin verður að hald-
ast mikil til að hægt sé að selja á þessu
góða verði. Reyndar er eftirspumin
meiri en framþoðið vegna hráefnis-
skorts á íslandi.
Með kynningarstarfi okkar og aug-
lýsingum erum við líka að festa salt-
fiskinn betur í sessi sem lúxusvöru.
Þannig fæst hærra verð. Við komum
nýjum uppskriftum á framfæri og auk-
um áhuga veitingahúsa með ýmsum
hætti fyrir því að hafa saltfisk með
sem fjölbreyttustum hætti á matseðl-
um sínum.
Sem dæmi um það hve hátt verð er
á saltfiski saman borið við aðrar fisk-
tegundir má nefna að í kjörbúð kostar
kíló af tilbúnum saltfiski um 75%
meira en kíló af laxi kostar.“
LINDA SLÓ í GEGN
„í fyrra fékk íslenskur saltfiskur
mjög góða kynningu á Spáni. Við
fundum að sú kynning hjálpaði okkur
mjög og styrkti stöðu okkar. SÍF tók
ákvörðun um að fara út í sjónvarps-
auglýsingar og markvissa kynningu á
íslenskum saltfiski. Atak okkar fór
sérstaklega vel af stað því við fengum
Lindu Pétursdóttur alheimsfegurðar-
drottningu til að koma til Barcelona
og vera við upphaf þessa markaðs-
átaks okkar. Hún stóð sig með mikl-
um ágætum, vakti óskipta athygli og
var hinn glæsilegasti fulltrúi þjóðar
ykkar í hvívetna. Fjölmiðlar fylgdust
með hverju skrefi hennar og íslensk-
ur saltfiskur fékk gríðarlega mikla og
J
41