Frjáls verslun - 01.05.1990, Blaðsíða 52
FLUGMAL
w
„1 LIF ¥ UM 1A GÆÐUM 0G
$1 ERI m Fll 0“
- SEGIR PÉTUR EIRÍKSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRIHJÁ FLUGLEIÐUM
Eftir mikinn samdrátt í Atl-
antshafsfluginu á síðustu árum
hafa Flugleiðir hf. nú opnað
þriðju flugleiðina til Bandaríkj-
anna. Félagið hefur nú hafið flug
til Baltimore og Washington á
einn nútímalegasta flugvöll
Bandaríkjanna, BWI í Maryland
fylki. Margir telja að framtíð fé-
lagsins og möguleikar á áfram-
haldandi starfsemi standi og
falli með Atlantshafsfluginu.
Ef fyrirtækið nær að reka hina nýju
flugleið til Baltimore með hagnaði þá verð-
ur það meiriháttar vendipunktur í sögu
Flugleiða, sem sýnir að forráðamenn
fyrirtækisins veðjuðu á réttan hest þegar
þeir ákváðu að endumýja þotuflotann.
Blaðamaður Frjálsrar verslunar fór til
Baltimore og var viðstaddur þegar flug-
vallaryfirvöld og ráðamenn í Maryland
buðu Flugleiðir velkomnar á ný á BWI
flugvöllinn 7. maí síðastliðinn. Að auki
TEXTI: BJARNI BRYNJÓLFSSON
52
ræddi Frjáls verslun við Pétur Eiríksson,
framkvæmdastjóra markaðssviðs hjá
Flugleiðum, um möguleikana, sem nýi
flugvélaflotinn gefur félaginu í Atlantshafs-
fluginu, um betri leiðir í flugrekstri og hina
nýju flugleið til Baltimore og Washington.
„Við vomm komnir með mjög óhag-
kvæman flota og höfðum í rauninni staðn-
að. Þannig að við sáum fram á að ef við
ætluðum okkur að vera samkeppnisfærir
við önnur flugfélög í Atlantshafsfluginu
hvað farþegafjölda varðaði þyrftum við að
bjóða sífellt lægri fargjöld. Og með þess-
um lágu fargjöldum var í rauninni ekki
nokkur leið að halda uppi rekstri á DC8
vélunum, sem vom mjög óhagkvæmar og
eldsneytisfrekar," sagði Pétur Eiríksson,
markaðsstjóri Flugleiða, þegar blaðamað-
ur Frjálsrar verslunar ræddi við hann í
Baltimore fyrir skömmu.
Pétur Eiríksson er bjartsýnn á að félag-
inu takist að hasla sér völl í Bandaríkjunum
á ný eftir mikinn samdrátt. „Við ákváðum
að draga saman seglin, minnka fyrirtækið
og endurskoða allt sem við vorum að gera.
Þess vegna stöðvuðum við starfsemi okk-
ar í Chicago, Boston og Baltimore. Síðan
þetta gerðist höfum við unnið að því að
endurskipuleggja fyrirtækið gjörsamlega.
Mesti niðurskurðurinn var í Atlantshafs-
fluginu einfaldlega vegna þess að þar var
mesta tapið á flugrekstrinum. Til þess að
geta stundað flugrekstur þarf flugfélag að
vera af ákveðinni stærð og íslenski mark-
aðurinn er í raun allt of lítiU fyrir flugfélag.
Við urðum því að byggja á erlendum mörk-
uðum og fannst upplagt að nýta okkur
þessi dýrmætu leyfi sem við eigum hér í
Bandaríkjunum."
Hvers vegna veljið þið þetta svæði,
BWI, Baltimore og Washington DC?
„Valið stóð um Chicago, Boston,
Cleveland og Baltimore. Við höfum rétt-
indi til að fljúga á alla þessa staði. Við
afskrifuðum Cleveland mjög fljótt og síðan
afskrifuðum við Chicago. Þar eru nú þegar
24 flugfélög, sem fljúga til V-Evrópu.
Þegar okkur gekk sem best í Chicago voru
aðeins fáein flugfélög, sem flugu þangað,
og á tímabili vorum við eina félagið þar.
Samkeppnisstaðan hafði breyst verulega í
Chicago. í Boston var nákvæmlega það
sama upp á teningnum. Við höfum alltaf
reynt að velja flugvelli, sem fáir fljúga til og
þar sem samkeppni er í lágmarki.
Ástæðan fyrir því að við völdum Baltimore
er fyrst og fremst sú að hingað flýgur
aðeins eitt flugfélag frá Evrópu, þ.e. TWA
frá London. Hollenska flugfélagið KLM
fetar núna í fótspor okkar og hefur flug frá
Baltimore til Amsterdam. Að auki er BWI
gífurlega góður innanlandsflugvöllur hér í
Bandaríkjunum. Hér getum við boðið upp
á fleiri tengiflug innan Bandaríkjanna en á
nokkrum öðrum flugvelli, sem við áttum
kost á að nota. Hér í Baltimore eigum við
kost á því að stórauka þjónustu við þá
farþega, sem ætla að halda áfram með
flugi innan Bandaríkjanna. Og við reiknum
með því að um 40% farþeganna, sem
koma til með að fljúga með okkur séu að
fara eitthvað áfram. Við höfum komið á