Frjáls verslun - 01.03.1991, Page 14
í ' :
FRETTIR
VOLVO SAMSTEYPAN:
BOTNINUM NAÐISVIÞJOD?
Þann 5. mars sl. var
sameiginlegur ársreikn-
ingur Volvo samsteypunn-
ar fyrir árið 1990 birtur
eftir að hafa verið lagður
fram á aðalfundi í Gauta-
borg. Eins og við var búist
hefur talsverður sam-
dráttur orðið í sölu og
heildarsölutekjur dregist
saman um 4%. Samanlagt
minnkaði salan 1990 um
16% í Bandaríkjunum,
Bretlandi og í Svíþjóð.
Þótt hagnaður sé af öllum
öðrum greinum starfsem-
innar en fólksbílafram-
leiðslu er hann talsvert
minni en árið á undan eða
um 13,7 milljarðar ísl. kr.
(Var 67,6 milljarðar árið
1989). Tap á fólksbíla-
framleiðslunni var um 8,4
milljarðar ísl. kr.
Aðalforstjóri Volvo,
Christer Zetterberg er
þeirrar skoðunar að nú sé
botninum náð í efnahags-
lægðinni, sem staðið hefur
í Svíþjóð, og að þær skipu-
lögðu aðgerðir, sem beitt
hefur verið til að draga úr
reksturskostnaði hjá Vol-
vo, muni skila samsteyp-
unni auknum hagnaði upp
á 29 milljarða ísl. kr. árin
1991 og 1992.
Það er einnig talið ýta
undir bjartsýni hjá stjóm-
endum Volvo að sérstök
upplýsingaherferð og auk-
ið aðhald innan fyrirtækj-
anna, sem hófst sl. haust,
hefur dregið úr strafs-
mannaskiptum og vem-
lega úr fjarvistum starfs-
manna vegna veikinda.
Sænsk tímarit hafa ný-
lega birt myndir af nýja
bílnum, Volvo 850, en
kostnaður við að hefja
framleiðslu hans er þegar
orðinn um og yfir 10
milljarðar ísl. kr. Af mynd-
Hagur Volvo fer batnandi í Svíþjóð.
unum að dæma er bíllinn
gamaldags í útliti, mjög
líkur Volvo 740 nema
minni um sig. Sérfræð-
ingar spá því að Volvo 850
muni ekki fjölga kaupend-
um Volvo bíla heldur nái
hann einungis að höfða til
tryggs kaupendahóps. Ef
svo er em það veruleg
vonbrigði því Volvo 850 er
bíllinn sem átti að marka
kaflaskil hjá Volvo.
I þessu tölublaði
Frjálsrar verzlunar er
fjallað ítarlega um Volvo -
stærsta fyrirtæki á Norð-
urlöndum og kemur þar
ýmislegt fram sem ekki er
fjallað mikið um í fjölmið-
lum dagsdaglega. Meðal
þess sem fjallað er um er
hinn nýi og glæsilegi for-
stjórabíll, Volvo 960.
SAGA FILM hf.:
PETUR H. BJARNAS0N FRAMKVÆMDASTJORI
Pétur H. Bjarnason
hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Saga Film
hf. Hann lauk námi frá
viðskiptadeild Háskóla
íslands árið 1983. Pétur
var markaðsstjóri Hörpu
hf. á ámnum 1984 til
1987 en tók þá við starfi
framkvæmdastjóra hjá
AUK hf., Auglýsingastofu
Krístínar, og gegndi því
starfi þar til í október á
síðasta ári. Þá hóf hann
störf hjá Saga film hf. og
var svo nýlega ráðinn
framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins.
Saga film hf. var stofn-
að árið 1978. Fyrirtækið
hefur á þessum tíma
framleitt nokkur þúsund
sjónvarpsauglýsingar,
framleitt kvikmyndir,
sjónvarpsþætti, kynning-
armyndir og heimildar-
myndir fyrir ýmis fyrir-
tæki og stofnanir. Saga
Film hf. hefur á síðari ár-
um einnig tekið að sér
verkefni erlendis.
Pétur H. Bjarnason fram-
kvæindastjóri Saga Film.
MISTÖK LEIÐRÉTT
í 2. tbl. Frjálsrar versl-
unar urðu þau mistök að
rangt var farið með nöfn
frambjóðenda Sjálfstæð-
isflokksins í Austur-
landskjördæmi í grein um
horfur í komandi kosn-
ingum.
Hið rétta er að Egill
Jónsson skipar efsta sæti
listans og Hrafnkell Jóns-
son er í öðru sæti. Hlutað-
eigandi eru beðnir vel-
virðingar á þessum mis-
tökum.
14