Frjáls verslun - 01.03.1991, Page 23
mikil áhersla er lögð á að gera starfs-
fólkinu ljóst hver tilgangurinn með
gæðakerfinu sé. Nauðsynlegt er að
byrja á því að gera ítarlega lýsingu á
stjórnskipulagi fyrirtækisins þar sem
störf allra starfsmanna eru skilgreind.
Þessu næst er tilnefndur sérstakur
gæðastjóri úr hópi stjórnenda og ber
hann alla ábyrgð á framkvæmd gæða-
kerfisins. Hann ber ábyrgð á því að
hver einasti starfsmaður leggi sitt af
mörkum, en það er einmitt lykilatriði í
því að gæðakerfið virki. Það er svo
byggt upp með því að stýra í einn
farveg öllu því sem hefur áhrif á það
hvort settum gæðakröfum sé náð.
Markmiðið er að auka skilvirkni,
bæta framleiðsluna og um leið hag-
kvæmnina. Þessar reglur eru settar í
eina bók, gæðahandbók.
Rétt innkaup skipta miklu um af-
komu fyrirtækisins. Því er mikilvægt
að tryggja að réttur búnaður verði
fyrir valinu og að efni og þjónusta séu í
samræmi við settar kröfur. Þetta
þýðir stórauknar kröfur til birgja sem
aftur leiðir til keðjuverkunar. Ekki má
nota neinar aðfengnar vörur nema að
undangenginni prófun þar sem þær
uppfylla settar kröfur.
í þessu kerfi er mikil áhersla lögð á
skrifleg verkfyrirmæli í gæðahand-
bókinni. Þau eru gjarnan afrakstur
þróunarstarfs innan fyrirtækisins þar
sem allir starfsmenn hafa lagt sitt af
mörkum til að gera vinnubrögð öguð
og skilvirk en um leið hagkvæm eins
og kostur er. Varðandi stýringu fram-
leiðslunnar er mikilvægt að finna og
afmarka framleiðsluferlin og fara eftir
verkfyrirmælum varðandi fram-
leiðsluaðferðir, t.d. hvaða tæki skuli
nota o.s.frv.
Þegar fullbúin vara liggur fyrir er
nauðsynlegt, samkvæmt ISO 900x
stöðlunum, að sannprófa hana og
færa sönnur á að hún fullnægi settum
kröfum. Niðurstöðurnar eru skjal-
festar svo hægt sé að færa sönnur á
að varan hafi verið skoðuð í þessu
ljósi.
Þessi ströngu gæðakerfi, sem hér
hefur lítillega verið lýst, eru margfalt
flóknari og yfirgripsmeiri en hægt er
að spanna í lítilli grein. Þau ná einfald-
lega til allra framleiðsluþátta og segja
til um hvert einasta atriði sem skiptir
máli á öllu framleiðsluferlinu. Komi
Jóhannes Þorsteinsson hjá Staðlaráði íslands: Með aukinni þátttöku íslendinga í
alþjóðaverslun aukast verulega kröfur um vottuð gæðakerfi hjá íslenskum fýrir-
tækjum og því hljóta æ fleiri að afla sér slíkra gagna.
1
?■
I
HUGSUM
HIUATTRÆNT
notum endurunninn, óbleiktan pappír
ískaup
unnar pappu-svorur.
Pappírinn er óbleiktur,
sýrulaus og hefur
sama geymsluþol
og venjulegur pappír.
býöur fyrsta • Ljósritunarpappír (hvítur og litaður)
flokks endur- • Prentpappír (fyrir matseðla,
nafnspjöld, bœklinga o.s.frv.)
• Umslög • Bréfsefni
• Tölvupappír
Hringið og við sendum
sýnishorn og verðlista.
ÍSKAUP HF
Flókagötu 65, 105 Reykjavík
sími 62 79 50, símbréf 62 79 70