Frjáls verslun - 01.03.1991, Page 24
FORSIÐUGREIN
Eimskip er eitt þeirra fyrir-
tækja þar sem gæðastjórnun
hefur verið á döfinni og fjöl-
margir starfsmenn fyrirtækis-
ins vinna nú að þessu verkefni.
M.a. hefur verið skipað gæða-
ráð, sem mótar og kynnir
stefnu félagsins í gæðamálum
og það velur þau gæðaverkefni
sem unnið verður að eftir til-
lögur frá starfsfólki. Við lögð-
um nokkrar spurningar fyrir
Þórð Magnússon, einn fram-
kvæmdastjóra Eimskips.
Hvers vegna var ákveðið að taka
upp gæðastjórnun hjá EIMSKIP?
Kröfur markaðarins um öryggi og
gæði í viðskiptum aukast sífellt og
vaxandi áhersla er lögð á að bæta
stjórnun og skipulag fyrirtækja. Til
að tryggja arðsaman rekstur þurfa
fyrirtæki sífellt að laga sig að breytt-
um kröfum viðskiptavina. Fyrirtæki
um allan heim leggja nú stóraukna
áherslu á gæði og gæðastjórnun.
EIMSKIP starfar í samkeppni
bæði hér á landi og erlendis. Til að
styrkja samkeppnisstöðu sína, bæta
þjónustuna og gera fyrirtækið að
betri vinnustað höfum við ákveðið
að tileinka okkur starfsaðferðir sem
byggjast á gæðastjórnun.
Telur þú að þetta skili fyrirtækinu
VIUUM
BÆTA
ÞJÓNUSTUNA
SEGIR ÞÓRÐUR
MAGNÚSSON
HJÁ EIMSKIP
fjárhagslegum ávinningi og telur þú
að íslensk fyrirtæki geti almennt
notið góðs af gæðastjórnun í sinni
starfsemi?
Meginstjórntæki EIMSKIPS
hafa verið markmiðsáætlanir, fjár-
hagsáætlanir og þau hefðbundnu
kerfi, sem eru burðarrásar í skipu-
lagi og stjórnháttum félagsins. Ætl-
unin er að gæðastjómun bætist við
sem eitt af mikilvægustu stjóm-
tækjum EIMSKIPS.
Gæðastjómun felst fyrst og
fremst í því að stuðla að umbótum í
rekstri, með því að virkja hæfileika
og þekkingu sem flestra starfs-
manna og leysa viðfangsefni á skipu-
lagðan hátt í vinnuhópum. Gæðast-
jómun felst ekki í því að leita að
sökudólgum, heldur að finna þær
starfsaðferðir, sem skila árangri og
leysa vandamál, draga úr kostnaði
og auka tekjumar.
Er ætlunin að fá vottað gæðakerfi
hjá EIMSKIP og þá hvenær?
Það er mjög líklegt að í framtíð-
inni verði gæðastaðlar hluti af samn-
ingum milli viðskiptaaðila. Því er lík-
legt að gæðakerfi verði sett upp í
alþjóðlegum stöðlum í framtíðinni og
þjónusta félagsins verði í samræmi
við slíka staðla.
Á árunum eftir 1950 hélt virk gæðast-
jórnun innreið sína í japanskt efna-
hagslíf. Afleiðingarnar urðu japanska
efnahagsundrið sem allir þekkja.
Stöndum við frammi fyrir öðru eins?
gallar í ljós er úr því bætt og stöðug
vinna fer fram innan fyrirtækisins til
að auka og bæta þau gæði sem að er
stefnt.
ALTÆK GÆÐASTJÓRNUN
Áður var á það minnst að auðlegð
Japana mætti að verulegu leyti rekja
til öflugrar gæðastjórnunar. Goð-
sögnin er sú að þar búi á bak við
ákveðnir eiginleikar japönsku þjóðar-
innar að lúta aga og bera virðingu fyrir
settum reglum. Hvort sem það er
rétt eða ekki liggur fyrir að þeir gengu
í smiðju tveggja virtra bandarískra
sérfræðinga á þessu sviði á árunum
eftir 1950, þeirra Dr. Deming og Dr.
Juran. Þar með var fræðilegur grunn-
ur lagður að gífurlegu átaki Japana í
gæðastjómun, sem hafði þær afleið-
ingar að japanskur iðnaður óx meira
en dæmi em til um í sögunni.
Á vegum Gæðastjórnunarfélags
íslands hefur mikil umræða farið fram
um þessi mál undanfarin ár. Áhugi
24