Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1991, Síða 50

Frjáls verslun - 01.03.1991, Síða 50
BILAR Hækkun afturhlutans gefur bílnum nýtískulegri svip, á þátt í því að bíllinn eyðir innan við 10 lítrum á hundraðið á langkeyrslu með því að minnka vindviðnám, stækkar farangursrýmið úr 389 í 405 lítra og lækkar þröskuld- inn um 12 sm. getur undirritaður staðfest að þessi búnaður virkar ótrúlega vel. AKSTU RSEIGINLEIKAR Volvo 960 er, sem betur fer að mati undirritaðs, með vélina frammi í og drifið á afturhjólunum. Þessari grundvallarhönnun fylgja vissir ókostir sem sjálfskiptingin (W-pró- grammið) og sjálfvirkra driflæsingin draga verulega úr þannig að kostirnir verða miklu meiri, a.m.k. í bíl af þess- ari stærð og þyngd. Kostirnir eru fyrst og fremst þægilegri hreyfingar bílsins, fyrirfram ákveðin hegðun undir miklu álagi, minna veghljóð og þægilegra stýri. í 960 er nýi liðöxullinn að aftan sem kom fyrst í 760 bflnum. Liðöxullinn, gagnstætt stífa afturöxlinum sem er áfram í 940 bflnum, gefur hvoru aftur- hjóli sjálfstæða fjöðrun og um leið aukið veggrip á miklum hraða. Gormaíjöðrun er á fram- og afturhjól- um. Með liðöxlinum verða hreyfingar bflsins þægilegri, einkum fyrir far- þega í aftursæti. Volvo 960 er með þessa dæmi- gerðu evrópsku aksturseiginleika og minnir að mörgu leyti á nýja BMW 520 og 525. Volvoinn er þó heldur mýkri. Það finnst greinilega þegar ek- ið er á litlum hraða á slæmu malbiki. Hafi Volvo einhvem tímann þótt leið- inlegur í stýri þá er 960 algjör undan- tekning - þessi bfll er rásfastur og stöðugur, stýrið er „hæfilega þungt“ án þess að vera þungt eða of létt og bfllinn snýr á hring með innan við 10 metra þvermáli sem er betra en ger- ist með marga minni bfla. Veltistýri og margvíslegir stillimöguleikar á framstólum gera það að verkum að mjög vel fer um bflstjórann sem getur ekið um langan veg án þess að þreyt- ast. LÚXUSINNRÉTTING Volvo 960 fæst með tvenns konar innréttingu, annars vegar skinn- klæddri en hins vegar plussklæddri. Framstólarnir eru með upphituðum sessum og fást með hand- eða rafstill- ingu. Rafknúin sóllúga er staðalbún- aður ásamt gífurlega öflugu mið- stöðvar- og kælikerfi sem hægt er að láta halda stöðugu völdu hitastigi í bflnum á sjálfvirkan hátt. Með bflnum kemur hljómflutnings- kerfi, m.a. með diskaspilara (6 diska geymsla í skottinu), sem mér fróðari menn um þess háttar búnað sögðu frábært. Mælaborðið er nýtt af nál- inni. í fljótu bragði er ekki að sjá mik- inn mun á því og mælaborðinu í 760. Hins vegar er munurinn mikill þegar það er borið saman við mælaborðið í 740, sérstaklega eru Knurnar ávalari og mýkri. SAMKEPPNIN Volvo 960 mun keppa á markaðn- um við BMW 600/700 og Mercedes- Benz 300. í fljótu bragði kann verðið að virðast svipað. Við nánari skoðun kemur í ljós að Volvo 960 er með alls konar aukabúnað innifalinn í verði sem greiða verður fyrir sérstaklega í öðrum bflum. í því sambandi má nefna sóllúgu, ABS-bremsur, driflæsingu, 4ra gíra sjálfskiptingu, veltistýri, sjálfvirkan hraðastilli, skinnáklæði, upphituð sæti, innbyggðan loftpúða í stýrishjóli, sem blæs upp við árekst- ur, innbyggðan bamabflstól í afturs- æti, álfelgur o.fl. T.d. lætur nærri að fullbúinn Volvo 960 fáist fyrir svipað verð og greiða þarf fyrir „fokheldan" Mercedes-Benz 300. Nú er rætt um „innrás“ Japana á sk. lúxusbflamarkað, sérstaklega í Bandaríkjunum. Bæði Toyota og Nissan bjóða nú bfla sem margir bfla- sérfræðingar telja að gefi Mercedes- Benz ekkert eftir hvað gæði snertir. Um réttmæti þess mats má sjálfsagt deila. A hinn bóginn er ljóst að jap- anskir fjöldaframleiðendur vandaðra „vísitölubfla" standa að því leyti verr að vígi en Volvo að þeir eiga eftir að skapa réttu ímyndina - þeir eiga eftir að sannfæra kaupendur lúxusbfla um að japanskur bfll geti verið eftirsókn- arverður sem stöðutákn. Volvo hefur verið stöðutákn svo árum skiptir, að vísu dálítið mismunandi mikið eftir löndum og ef til vill eftir þjóðfélags- hópum. Aftur á móti hefur Volvo alltaf vantað herslumuninn til þess að vera talinn fullgildur keppinautur á markaði fyrir lúxusbfla. Með 960 er enginn vafi á því að Volvo fyllir þann flokk. Að mati undirritaðs er enginn vafi á því að Volvo 960 mun reynast skæður keppinautur m.a. vegna þess að tæknilega fullkomnari forstjórabfl er vandfundinn fyrir 4 milljónir króna, bfllinn er mjög rúmgóður og þægileg- ur, sænsk smíði og tækni eru viður- kenndar fyrir gæði, Volvo er í farar- broddi hvað varðar umferðaröryggi og umhverfisvemd, þjónusta er fáan- leg um allt land og endursöluverð Volvo bfla er með því hæsta sem ger- ist. 50

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.