Frjáls verslun - 01.03.1991, Side 52
Kostnaður við klæðnað stúlkunnar er í báðum tilfellum mjög svipaður og flíkurnar allar mjög vandaðar. Á fyrri myndinni eru gerð
grundvallarmistök í klæðaburði. Ullarjakki og silkiblússa eru of miklar andstæður fyrir utan að annað er köflótt og hitt röndótt.
Jakkinn er of síður fyrir hæð stúlkunnar og sýnast fótleggir því allt of stuttir miðað við búk. Vasar á jakka eru of stórir því þeir draga
athyglina að mjöðmum sem verða of miklar fyrir bragðið. Að sögn Önnu er besta samræmið ef lengd frá hvirfli að neðsta hluta jakka
og þaðan niður á gólf er sú sama. Buxur eru of stuttar og sokkar eiga að vera samlitir buxum og skóm.
Á seinni myndinni er er klæðnaðurinn í fullkomnu samræmi. Hún er ánægð með sjálfa sig, örugg og traustvekjandi. Klæðnaður
stúlkunnar er frá versluninni Sér á laugavegi, og gleraugun frá Linsunni Aðalstræti.
IMYND
KLÆÐNADUR FÓLKS í VIÐSKIPTUM
RJETT VID ÖNNU GUNNARSDÓTTIR LITA- OG FATASTÍLSLEIÐBEINANDA
„í hörðum heimi viðskiptalífs-
ins er ekki svigrúm til að gefa
öllum færi á að sýna hvað í þeim
býr. Oft er það þannig að það eru
fyrstu áhrifin, þ.e. hvernig við
komum öðrum fyrir sjónir, sem
ráða úrslitum um hvort við fáum
tækifærið eða ekki. Það kemur
aldrei annað tækifæri til að
skapa góð „fýrstu áhrif“. Þetta
eru orð Önnu Gunnarsdóttur,
lita- og fatastílsleiðbeinanda.
Anna nam lita- og fatastíl við
The Academy of Colour and
Style í London fyrir tveimur ár-
um og hefur starfað sem fata-
stílsleiðbeinandi síðan, bæði
fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Margir hafa eflaust lent í því að
óska þess að geta spólað til baka og
lagfært fyrstu áhrifm sem þeir höfðu
t.d. á væntanlegan vinnuveitanda.
BLÁTT NAGLALAKK
„Það fyrsta, sem við bjóðum til-
vonandi vinnuveitanda eða viðskipta-
vini upp á, er við sjálf. Varan, fyrir-
tækið og þjónustan koma þar á eftir.
Fjárfestið þess vegna í sjálfum ykk-
ur,“ ráðleggur Anna. „Þegar fram-
kvæmdastjóri tekur umsækjendur í
viðtöl um lausa stöðu, sem margir
umsækjendur eru um, mun hann ör-
ugglega finna einhverjar leiðir sem
geta sparað tíma því í viðskiptum er
tími peningar. Hann mun leita eftir
sýnilegum hæfileikum og eiginleikum
umsækjendanna og flokka þá úr strax
sem honum h'st ekki á. Dæmi, sem
gætu lýst áhrifum umsækjenda á
framkvæmdastjóra, gætu verið:
„Segið manninum í brúnu jakkafötun-
um með fjólubláa bindið að ég sé hætt
(ur) við að ráða í sölumannsstarfið“,
eða, „segið stúlkunni með bláa naglal-
akkið og tyggigúmmíið að búið sé að
ráða í einkaritarastöðuna". Fram-
kvæmdastjórinn hefur misst áhugann
á viðkomandi umsækjendum vegna
útlits þeirra og hátternis og ályktar
sem svo að þeir hafi ekki mikla hæfni
til að selja vöru fyrirtækisins eða vera
góður einkaritari vegna þess að um-
sækjendurnir hafa ekki lært að leggja
rétta áherslu á framkomu sína og útl-
it“.
Það hafa skapast vissar hefðir
TEXTI: SÓLVEIG BALDURSDÓTTIR MYNDIR: GUNNAR GUNNARSSON
52