Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1991, Qupperneq 52

Frjáls verslun - 01.03.1991, Qupperneq 52
Kostnaður við klæðnað stúlkunnar er í báðum tilfellum mjög svipaður og flíkurnar allar mjög vandaðar. Á fyrri myndinni eru gerð grundvallarmistök í klæðaburði. Ullarjakki og silkiblússa eru of miklar andstæður fyrir utan að annað er köflótt og hitt röndótt. Jakkinn er of síður fyrir hæð stúlkunnar og sýnast fótleggir því allt of stuttir miðað við búk. Vasar á jakka eru of stórir því þeir draga athyglina að mjöðmum sem verða of miklar fyrir bragðið. Að sögn Önnu er besta samræmið ef lengd frá hvirfli að neðsta hluta jakka og þaðan niður á gólf er sú sama. Buxur eru of stuttar og sokkar eiga að vera samlitir buxum og skóm. Á seinni myndinni er er klæðnaðurinn í fullkomnu samræmi. Hún er ánægð með sjálfa sig, örugg og traustvekjandi. Klæðnaður stúlkunnar er frá versluninni Sér á laugavegi, og gleraugun frá Linsunni Aðalstræti. IMYND KLÆÐNADUR FÓLKS í VIÐSKIPTUM RJETT VID ÖNNU GUNNARSDÓTTIR LITA- OG FATASTÍLSLEIÐBEINANDA „í hörðum heimi viðskiptalífs- ins er ekki svigrúm til að gefa öllum færi á að sýna hvað í þeim býr. Oft er það þannig að það eru fyrstu áhrifin, þ.e. hvernig við komum öðrum fyrir sjónir, sem ráða úrslitum um hvort við fáum tækifærið eða ekki. Það kemur aldrei annað tækifæri til að skapa góð „fýrstu áhrif“. Þetta eru orð Önnu Gunnarsdóttur, lita- og fatastílsleiðbeinanda. Anna nam lita- og fatastíl við The Academy of Colour and Style í London fyrir tveimur ár- um og hefur starfað sem fata- stílsleiðbeinandi síðan, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Margir hafa eflaust lent í því að óska þess að geta spólað til baka og lagfært fyrstu áhrifm sem þeir höfðu t.d. á væntanlegan vinnuveitanda. BLÁTT NAGLALAKK „Það fyrsta, sem við bjóðum til- vonandi vinnuveitanda eða viðskipta- vini upp á, er við sjálf. Varan, fyrir- tækið og þjónustan koma þar á eftir. Fjárfestið þess vegna í sjálfum ykk- ur,“ ráðleggur Anna. „Þegar fram- kvæmdastjóri tekur umsækjendur í viðtöl um lausa stöðu, sem margir umsækjendur eru um, mun hann ör- ugglega finna einhverjar leiðir sem geta sparað tíma því í viðskiptum er tími peningar. Hann mun leita eftir sýnilegum hæfileikum og eiginleikum umsækjendanna og flokka þá úr strax sem honum h'st ekki á. Dæmi, sem gætu lýst áhrifum umsækjenda á framkvæmdastjóra, gætu verið: „Segið manninum í brúnu jakkafötun- um með fjólubláa bindið að ég sé hætt (ur) við að ráða í sölumannsstarfið“, eða, „segið stúlkunni með bláa naglal- akkið og tyggigúmmíið að búið sé að ráða í einkaritarastöðuna". Fram- kvæmdastjórinn hefur misst áhugann á viðkomandi umsækjendum vegna útlits þeirra og hátternis og ályktar sem svo að þeir hafi ekki mikla hæfni til að selja vöru fyrirtækisins eða vera góður einkaritari vegna þess að um- sækjendurnir hafa ekki lært að leggja rétta áherslu á framkomu sína og útl- it“. Það hafa skapast vissar hefðir TEXTI: SÓLVEIG BALDURSDÓTTIR MYNDIR: GUNNAR GUNNARSSON 52
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.