Frjáls verslun - 01.08.1995, Blaðsíða 17
FRETTIR
#M
Þú nærð forskoti
þegar tælcnin vinnur meö þér
Níels Einarsson, eig-
andi fyrirtækisins Toll-
meistarinn, hefur skrifað
forritið Bragðaref og er
það nú komið á markað.
Forritið er viðskipta-,
sölu-. lager-, pantana-,
toll- og bókhaldskerfi.
Það er keyrt í Windows
umhverfi.
Níels segir að helstu
kostir forritsins séu
hversu auðvelt sé að læra
á það. „Ég fullyrði að það
tekur notendur ekki
nema um 30 mínútur að
læra að nota forritið án
þess að fyrir sé til staðar
mikil tölvukunnátta hjá
notendum.“
Hönnun forritsins
Bragðarefs hefur tekið 4
ár. „Hver eining forritsins
hefur verið prófuð bak og
fyrir til að útiloka villur.“
Níels er hvað kunnast-
ur fyrir að reka Nýja
dansskólann en Toll-
meistarinn fær mestan
tíma hans núna.
Níels Einarsson, eigandi fyrirtækisins Tollmeistarinn. Fyrir-
tækið hefur nú sett viðskiptaforritið Bragðaref á markað.
CS - PRO tæknin í Ijósritunarvélum er framtíðarlausn
fyrir þá sem vilja bætt afköst í betra umhverfi.
Mikil framleiðni
Sjálfvirk frumritamötun á
mesta, mögulega Ijósritunarhraða
Flokkunar- og heftibúnaður
I sem vinnur hratt og örugglega
MINOLTA
CS-PRO Ijósritunarvélar
Skrefi á undan inn í íramtíðina
KJARAN
SKRIFSTOFUBÚNAÐUR
SlÐUMÚL114, 108 REYKJAVlK, SlMI 5813022
Nýtt viðskiptaforrit:
NÍELS MEÐ BRAGÐAREF
LEIÐRÉTTING
VEGNAKEA
Alvarleg innsláttarvilla var í
nýútkominni bók Frjálsrar versl-
unar, 100 stærstu, varðandi KEA
á Akureyri. Fyrirtækið er sagt
hafa tapað 476 milljónum króna
á síðasta ári fyrir skatta. Hið
rétta er að KEA hagnaðist um 41
milljón fyrir skatta, tekju- og
eignaskatt, og um 16 milljónir
eftir skatta. Um er að ræða af-
komu KEA og dótturfélaga.
Forráðamenn KEA eru beðnir
afsökunar á þessum mistökum.
Vakin er athygli á að þessi villa
kemur fram á mjög áberandi hátt
í grafi á bls. 45 í bókinni sem og á
aðallista á bls. 46.
Vegna þessarar villu breytast
einnig nokkrar aðrar kennitölur
úr rekstrinum. Hagnaður sem
hlutfall af veltu verður 0,2% og
hagnaður sem hlutfall af eigin fé
verður 6,8%. Loks má geta þess
að eigið fé KEA-samstæðunnar í
árslok 1994 nam um 2.365 mill-
jónum og jókst um 2% frá árinu
áður.
17