Frjáls verslun - 01.08.1995, Blaðsíða 20
FJARMAL
ÍSLENDINGAR ÖFLUGIR
í framkvæmdastjórninni sitja sex fulltrúar og í fyrsta sinn eiga íslendingar
jpar tvo, þá Jón Sigurðsson aðalbankastjóra og Þorstein. Auk þessa eiga
Islendingar um þessar mundir stjórnarformanninn, Guðmund Magnússon
prófessor. Það er ekki slæmur árangur þar sem íslendingar eiga aðeins
1% hlutafjár í bankanum. Og það vekur líka athygli að rúmlega 10% af
heildarútlánum NIB eru til íslenskra fyrirtækja og stofnana.
lenskir lántakendur verið
níu. Þeim hafi hins vegar
fjölgað jafnt og þétt. Þeir
séu nú 32 en NIB á alls 75
útistandandi lán hér á landi
og heildarupphæðin er rúm-
ir 32 milljarðar króna. Með-
al lántakenda eru ríkissjóð-
ur, fjárfestingalánasjóðir og
bankar, opinber fyrirtæki í
eigu ríkis og sveitarfélaga,
sveitarfélög og í vaxandi
mæli einkafyrirtæki. Á síð-
asta ári lánaði NIB til dæmis
til íslenskra fyrirtækja eins
og Heklu, Ferðamálasjóðs,
Lánasjóðs sveitarfélaga,
Landsvirkjunar, íslenskra
sjávarafurða, Myllunnar-
Brauðs og Lyfjaverslunar
ríkisins.
NAUÐSYNLEGT AÐ
ÍSLENDINGAR STARFI
HJÁ NIB
En kemur það ekki til með að gagn-
ast íslendingum vel á næstu árum að
eiga tvo menn í framkvæmdastjórn
bankans? Verður ekki auðveldara að
fá lán til verkefna?
„Ég held nú reyndar að það sé erf-
itt að gera betur. Frá 1986, eftir að
íslendingar komu fyrst til starfa hjá
Þorsteinn er fæddur og uppalinn á Hofsósi og hóf ungur
störf í Kaupfélagi Austur-Skagfirðinga.
bankanum, hafa lánveitingar til ís-
lands aukist, bæði í krónum talið, og
einnig sem hlutfall af heildarútlánum
bankans. Það er hins vegar alveg ljóst
að það er mikilvægt að íslendingar
eigi starfsmenn í bankanum. Það
spillir heldur ekki fyrir að aðalbanka-
stjórinn er íslenskur. Ég varð var við
það er ég kom fyrst til starfa
að þekking á aðstæðum á ís-
landi var ekki mjög mikil
meðal starfsfólks bankans.
Geta bankans til að meta
verkefni á íslandi var miklu
minni en nú er,“ segir Þor-
steinn.
Hann segir að möguleikar
íslenskra fyrirtækja og
stofnana til að fá lán hjá NIB í
framtíðinni séu síst verri nú
en verið hafi. Og það sama
eigi við á alþjóðlegum fjár-
málamarkaði. Ástandið á
lánamarkaði sé gott fyrir
lántakendur um þessar
mundir og kjörin hafi verið
góð að undanfömu. Það sjá-
ist ekki síst á þeim lánum
sem ríkissjóður íslands hafi
verið að taka að undanfömu.
Þorsteinn segir að í byrj-
un hafi NIB oftast lánað til
ríkissjóðs eða til stofnana
með ábyrgð hans. Með
breyttum markaðsaðstæðum hin síð-
ari ár hafi það færst í vöxt að lánað sé
til fyrirtækja. Yfirleitt séu fyrirtækin
þó með ábyrgðir banka eða annarra
fjármálastofnanna á bak við sig. Bank-
inn sé hugsaður sem nokkurs konar
„heildsölubanki“. Lánin séu yfirleitt
stór og áhættan tiltölulega lítil. Bank-
mitá jjósritarogfaxtæki
i rremsiu roo
HOLL
HÚSBÓNDA
SÍNUM
VEq\\\ Guttormsson-Fjölval hf.
Mörkin 1 • 128 Reykjavík • Símar: 581 2788 og 568 8650 • Bréfsími: 553 5821
20