Frjáls verslun - 01.08.1995, Blaðsíða 36
MARKAÐSMAL
Haukur Þór Hauksson, Borgarljósum.
um, Tommaborgara. Tommaborgur-
um var mjög vel tekið og áður en
varði voru útibúin orðin sjö í Reykja-
vík og nágrenni. En erfitt reyndist að
reka svo mörg útibú og var því farið út
í að selja sérleyfi.
„Samningur var gerður. Akveðið
var að sérleyfisgjafar greiddu
ákveðna prósentu af veltu til sérleyf-
isgjafa og jafnframt var ákvæði í
samningunum sem skyldaði sérleyf-
istaka til að kaupa allar vörur og hrá-
efni í gegnum sérleyfisgjafa. Þar sem
vörurnar voru ekki endilega seldar á
hagstæðustu kjörum reyndist fyrir-
komulagið of dýrkeypt fyrir sérleyf-
istaka. Sýnir þetta dæmi að nauðsyn-
legt er að huga að hag sérleyfistaka
og að sérleyfisgjafi reyni ekki að
hagnast á honum. Hagur beggja
byggist á því að sérleyfistaki hafi
rekstrargrundvöll til að skila hagnaði
og reynslan sýnir að til langs tíma
hagnast báðir aðilar með góðri og
traustri samvinnu. Sérleyfisfyrir-
komulagið er skynsamleg leið til
markaðsfærslu á vörum og þjónustu.
Ábyrgur sérleyfistaki skilar meiri
hagnaði í rekstri en launaður starfs-
maður. Hagkvæmara er að deila
ábyrgð og fjárfestingu á fleiri aðila,“
segir Guðrún.
Veitingastaðurinn Pizza 67 hefur
fært út kvíarnar með sölu sérleyfa
víðs vegar um landið, t.d. til Keflavík-
ur, Akraness, Akureyrar, Ólafsvíkur
og Selfoss.
BORGARUÓS-KEÐJAN
Eitt athyglisverðasta sérleyfisfyr-
irkomulagið á innlendum markaði er
Borgarljóskeðjan. 1979 stofiisetti
Haukur Þór Hauksson verslun í
STYRKURINN LIGGUR í VÖRUNNI
„ Við komumst fljótt að því að það þýðir ekki að þvinga menn til
neins. Styrkur okkar liggur fyrst og fremst í vörunni. “
- Haukur Þór Hauksson, Borgarljósum.
ALLTAF TILBÚINN
„Það er aldrei friður og maður verður alltaf að vera tilbúinn. Ég hef
nokkrum sinnum þurft að fara frá gestum heima á laugardagskvöldi
þar sem fólk hefur boðað forföll og allt vitlaust að gera. Okkur finnst
þetta vera töluvert meiri vinna en við áttum von á. “
- Steindór I. Ólafsson, Pizza Hut.
JÖFN SALA
„Þeir sem ætla að komast í uppgrip á stuttum tíma ættu að snúa sér
að einhverju öðru. Þetta er enginn vertíðarbisness.“
- Kjartan Örn Kjartansson, McDonalds.
VÖRUMERKI ERU STERK
„ Vörumerki eða Brand recognition verða alltaf sterkari
og sterkari og þess vegna hefur þekktum veitingastaðakeðjum eins
og KFC, McDonalds og Pizza Hut tekist að hasla sér völl
um allan heim.“
- Skúli Þorvaldsson, Dominos.
36