Frjáls verslun - 01.08.1995, Blaðsíða 39
TIU NAUÐSYNLEGIR EIGINLEIKAR LEIÐTOGA
INNRI STYRKUR:
Hugsýn: Snúa metnaði í
veruleika
Sjálfstraust: Trúa á
sjálfan sig
Arangur: Einblína á út-
komuna
Hugrekki: Hvernig taka
eigi áhættu
Heilindi: Skapa trú-
verðugleika
ROBERT HELLER
Bókin The Way to Win.
YTRI STYRKUR:
Hópvinna: Árangursrík
samvinna
Sýnileiki: Sýna gott for-
dæmi
Samskipti: Opnar
boðleiðir
Athygli: Hlusta og svara
Skuldbinding: Fallast á
velgengni
ritstjóri tímaritsins „Management
Today“ og skrifar nú sitt eigið við-
skiptafréttabréf, Letter to Thinking
Managers og kemur það út í hverjum
mánuði.
Will Carling er fyrirliði enska lands-
liðsins í ruðningi (rugby), hann hefur
próf frá háskólanum í Durham og
þjálfun frá hernum, en er nú fram-
kvæmdastjóri hjá fyrirtækinu Insight
Ltd. sem sérhæfir sig í starfsmanna-
stjórnun. Will Carling er reyndar einn
umtalaðasti Bretinn um þessar mund-
ir (og þá er Hugh Grant meðtalinn!),
en hann er meintur fylgisveinn Díönu
prinsessu og hefur verið sagður
einkaþjálfari hennar í líkamsrækt!!!
UPPBYGGING OG EFNISTÖK
Hugmyndin að bókinnni kemur frá
útgefandanum, sem datt í hug að leiða
saman þessa tvo „afreksmenn“ sem
hafa ólíkan bakgrunn en eiga það sam-
eiginlegt að hafa skarað fram úr á sínu
sviði.
Robert Heller leggur til dæmin úr
viðskiptaheiminum en Will Carling
tekur viðtölin við íþróttamennina og
sameiginlega setja þeir kenningarnar
saman. Rauður þráður bókarinnar er
hvatinn og hugsunarhátturinn, sem
liggur til grundvallar árangri afreks-
manna og hvernig hann hefur verið
nýttur í viðskiptaheiminum. Hér fáum
við raunverulegar sögur úr viðskipt-
um og íþróttum og kynnumst sameig-
inlegum aðferðum íþrótta- og við-
skiptamanna til að skara framúr og ná
árangri, enda er undirtitill bókarinn-
ar: Strategies for success in business
and sport.
Það eru 5 innri og 5 ytri þættir (sjá
ramma með bókarkápu) sem hafa allt
að segja um það hvernig þeir sem
skara fram úr hafa nýtt þessa þætti.
Þannig skiptist bókin í 10 efnis-
flokka og samtals 30 kafla og eru
þannig 3 kaflar í hverjum flokki; sá
fyrsti segir sögu frægs íþróttamanns,
annar tekur dæmi úr viðskiptaheimin-
um og sá þriðji er hugleiðingar um
efnisatriðin sem eru til umfjöllunar
hverju sinni.
Bókin segir frá þekktum mönnum
með raunverulegum dæmum úr við-
skiptaheiminum, um hugsunarhátt
fýrirtækja um allan heim og hvað það
var sem gerði það að verkum að þau
náðu lengra en keppinautamir.
Úr heimi íþrótta má nefna tug-
þrautakappann Daley Thompson,
hlauparann Sebastian Coe og knatt-
spyrnusnillinginn Gary Lineker. Úr
viðskiptaheiminum eru tekin dæmi af
fyrirtækjum og þeim sem annað hvort
hafa stofnað þau og/eða hafa veitt
þeim forstöðu eins og Hewlett Pack-
ard, Honda og Sir John Harvey-Jones
og ICI (Imperial Chemical Indust-
ries).
Þrátt fyrir góða bók er hægt að
finna veikan blett á henni og hann
verður til þess að efnistökin verða
einlit: Aðeins 1 kona er nefnd til sög-
unnar, Tracy Edwards fyrir siglingar.
Það er í raun furðulegt að svo sé þar
sem konur hafa verið mjög áberandi í
heimi afreksíþrótta um margra ára-
tuga skeið og einnig er mjög auðvelt
að fmna konur sem skara fram úr í
viðskiptaheimi Breta, í anda bókar-
innar, og skal þar nefna stofnanda
The Body Shop, Anitu Roddick.
UMFJÖLLUN
Hugmyndin að bókinni er bráð-
snjöll, þar sem að ljóst er að ekki eru
eingöngu fjölmargir sameiginlegir
þættir að baki velgengni á þessum
tveimur sviðum (íþróttum og við-
skiptum) heldur eru mjög margir í
viðskiptaheiminum miklir áhugamenn
um íþróttir. Þannig eiga lesendur
mjög auðvelt með að sjá samhengið
og hafa skoðun á efnistökum og
dæmisögunum.
Bókin er eins og best skrifuðu
stjórnunarbækur geta verið; þær
hafa „teoretískan“ grunn, skrifaðan á
mannamáli af sérfræðingum, síðan
eru nefnd raunhæf dæmi úr viðskipta-
lífinu og loks, til þess að stór hluti
almennings (alla vega í íþróttaóðum
löndum eins og Bretlandi og íslandi)
geti haft af henni einhvem skilning, er
stuðst við heim íþróttana. Allir ættu
þannig að hafa af henni einhverja
skemmtun.
39