Frjáls verslun - 01.08.1995, Blaðsíða 49
mætir á frumsýningar stóru leikhús-
anna og Óperunnar og er tíðir gestir á
hvers konar tónleikum, málverka-
sýningum og yfirleitt alls staðar þar
sem listagyðjan er dýrkuð í einni eða
annarri mynd. Heimildir Frjálsrar
verslunar herma að af listgreinunum
sé tónlist, nánar tiltekið óperur, í
hvað mestu uppáhaldi hjá Gunnari og
hafa á síðari árum aðrar listgreinar
vikið fyrir henni.
ALINN UPP Á MELUNUM
Gunnar Magnús ólst upp vestur á
Melum á árunum eftir stríðið þegar
glæsileg íslandsmet og afrek voru
unnin í frjálsum íþróttum á Melavell-
inum og kalda stríðið geisaði í heimin-
um eins og Þórbergur gerði ódauð-
legt í Sálminum um blómið en sögu-
svið þeirrar bókar er einmitt við
Hringbraut og Mela. Gunnar ólst upp
við leiki í fjöru og dúfnarækt eins og
dæmigert borgarbam en á sumrum
var hann áhvítbotna gúmmískóm í
sveit að Hurðarbaki í Reykholtsdal í
Borgarfirði hjá Bjarna bónda Þor-
steinssyni og Sigríði Sigurjónsdóttur
í Verslunarskólanum lauk fékkst hann
lítiUega við kennslu í Hagaskóla.
Tónlistin varð Gunnari snemma
hugstæð en hann lagði stund á píanó-
nám í æsku og þótti nokkuð liðtækur
píanónemandi þótt enginn hafi hann
heyrt snerta píanó nú um árabil. Hann
var og virkur meðlimur í Lúðrasveit
Vesturbæjar, einni fyrstu drengja-
lúðrasveitinni sem sett var á stofn, og
lék þar á túpu og vakti verðskuldaða
athygli fyrir tök sín á þessu háværa og
dimmraddaða liljóðfæri. Úr Lúðra-
sveit Vesturbæjar fóm Gunnar og
túpan upp í Lúðrasveit Reykjavíkur
þar sem hann lék um nokkurra ára
skeið.
Tómstundir Gunnars fara að stór-
um hluta í tónlist og hesta. Tónlistar-
innar nýtur hann í Óperunni og víðar
en eins og fram hefur komið er hann
virkur óperugestur á fleiri en einn
hátt.Hann og kona hans eiga fjóra
hesta og hesthús í Víðidal sem taka
mikinn tíma. Þau hjónin eru félagar í
óformlegum klúbbi hestamanna sem
farið hefur í nokkrar lengri hestaferð-
ir á summm, einkum í slagtogi við
Jóhannsson athafnaskáld, sem oft er
kenndur við Ásmundarstaði, og Þor-
stein Ingólfsson, sendiherra í Bmss-
el. Þessir eru allir aldavinir.
„Gunnar er fylginn sér og fær oft
góðar hugmyndir sem hann sleppir
ekki frá sér af fyrr en hann sér þær
verða að veruleika. Hann er traustur
og áreiðanlegur, kröfuharður á sjálfan
sig og aðra og metnaðargjam fyrir
hönd þess fyrirtækis sem hann vinnur
fyrir,“ sagði Hjörtur Hansson, bróðir
hans, í samtali við blaðið.
„Hann Gunnar er ákaflega sjarmer-
andi maður og kúltíveraður í allri
framkomu. En það er rétt að láta það
ekki villa sér sýn því hann er mjög
ákveðinn og kröfuharður. Ég myndi
segja að hann væri afar fágaður harð-
jaxl. Hann kann öðmm betur að
skamma menn þannig að undan svíði
án þess að vera persónulega ósvíf-
inn,“ sagði maður sem hefur þekkt
Gunnar lengi á vettvangi viðskipta-
lífsins.
Gunnar er sagður góður mann-
þekkjari í vinnu og óragur við að láta
menn bera ábyrgð á einstökum verk-
LÆRÐI SNEMMA AÐ BJARGA SÉR
Gunnar varð snemma liðtækur í viðskiptum enda átti sonur einstæðrar móður í
Vesturbænum ekki alltaf vasapening og lærði því snemma að bjarga sér. En
Gunnar missti föður sinn þegar hann var aðeins 6 ára. Þeir bræður bjuggu til
póstkort og seldu í búðir og Gunnar leigði tækjasal í Tívolíinu í Vatnsmýrinni þegar
hann var aðeins sextán ára og rak fyrir eigin reikning.
sem voru kunningjar foreldra Gunn-
ars. Gunnar lagði stund á íþróttir í
æsku og á unglingsárunum. Hann lék
knattspyrnu og körfubolta með KR
og þótti nokkuð efnilegur körfubolta-
maður en lagði iðkun þeirrar skanka-
löngu íþróttar á hilluna eftir meiðsli.
Gunnar varð snemma liðtækur í
viðskiptum enda átti sonur einstæðr-
ar móður í Vesturbænum ekki alltaf
vasapening og lærði því snemma að
bjarga sér. Þeir bræður bjuggu til
póstkort og seldu í búðir og Gunnar
leigði leikjasali í Tívolíinu í Vatnsmýr-
inni þegar hann var aðeins sextán ára
og rak fyrir eigin reikning. Meðfram
skólanum á sumrin fékkst Gunnar við
margvísleg störf bæði síldarat á
Seyðisfirði, vann í banka, seldi bíla og
fékkst við margt fleira. Þegar náminu
hinn rómaða hestamann Einar Bolla-
son, frumkvöðul ferðamennsku á
hestbaki. Helstu kunningjar Gunnars
í röðum hestamanna eru t.d. Valur
Valsson bankastjóri og Eggert
Hauksson, forstjóri í Plastprent og
Sveinn R. Eyjólfsson stjómarformað-
ur Frjálsrar fjölmiðlunar.
Þau hjónin hafa áhuga á útiveru og
ferðalögum og eiga sumarhús á Þing-
völlum sem þau sækjast eftir að
dvelja í. Þar iðka þau gönguferðir um
nágrennið og slaka á fjarri skarkala
borgarlífsins.
Gunnar Magnús er félagi í Rotary-
klúbbi Reykjavíkur og hefur mætt
nokkuð reglulega þar á fundi.
Meðal helstu vina Gunnars má
nefna Ólaf Baldur Ólafsson útgerðar-
mann í Miðnesi í Sandgerði, Gunnar
efnum og gefa þeim lausan tauminn
en fylgjast samt með án þess að það
líti út eins og afskipti. Þetta kunna
margir að meta en þó eru ekki allir
sem þola slík vinnubrögð. Það fylgir
nefnilega sá böggull skammrifi, að
rétt eins og Gunnar Magnús gleymir
aldrei að hrósa mönnum fyrir það sem
honum finnst vel gert, þá er hann
óhræddur við að láta menn hafa það
óþvegið ef þeir standa ekki undir
þeirri ábyrgð sem þeim er falin. Við
slík tækifæri segir hann mönnum til
syndanna skýrt og skorinort og lýsir
fufiri ábyrgð á hendur þeim. Þetta
þola ekki allir og því eru menn mis-
jafnlega hrifnir af Gunnari sem yfir-
manni eins og við er að búast.
Samstarfsmenn Gunnars segja að
hann sé gífurlega fylginn sér og