Frjáls verslun - 01.08.1995, Blaðsíða 29
búðimar opnuðu. Síðan liðu 15 ár þar
til veitingastaður opnaði undir sér-
leyfi en eftir það fjölgaði þeim hægt en
stöðugt.
„Gríðarleg samkeppni ríkir í við-
skiptum og atvinnurekendur standa
frammi fyrir margs konar vandamál-
um. Slæmt fjárhagsástand getur
staðið í vegi fyrir því að áhugasamt og
duglegt fólk fari út í sjálfstæðan at-
vinnurekstur. Einnig getur hræðsla
við sjálfstæðan rekstur komið í veg
fyrir að fólk láti draum sinn um að
verða sjálfs sín herrar rætast. Pen-
ingaskortur getur einnig hijáð þá sem
þegar eru komnir út í avinnurekstur
en vantar að ná til stærri markhóps
með því að opna útibú á nýjum mörk-
uðum. í slíkri stöðu er sérleyfi einn
vænlegasti kosturinn sem býðst. Ein-
staklingurinn er þá hluti af kerfi og
nýtur góðs af þeirri samvinnu sem af
kerfinu stafar. Sérleyfi auðvelda ekki
aðeins stofnun nýrra fyrirtækja held-
ur eru minni líkur á að þessi fyrirtæki
verði gjaldþrota. Reynslan hefur sýnt
að um 70 prósent af nýjum sjálfstæð-
um fyrirtækjum í Bandaríkjunum
enda með gjaldþroti á fyrstu fimm
rekstrarárunum en aðeins 4 prósent
sérleyfisfyrirtækjanna.
Sérleyfi er ein sú öruggasta og um
leið áhættuminnsta leið sem til er
fyrir fyrirtæki að stækka við sig og
einnig fyrir fyrirtæki að lifa af harða
samkeppni. Einstaklingar, sem vilja
kaupa sérleyfi, vita yfirleitt að hveiju
þeir ganga.
Samningi milli sérleyfisgjafa og
sérleyfistaka á að vera þannig háttað
að báðir aðilar hagnist af honum. Sér-
leyfisgjafi hagnast á því að vörur hans
og þjónusta komast til viðskiptavina á
markaðnum og á móti hagnast sér-
leyfistaki á því að selja vörur eða
koma þjónustu til viðskiptavina. Það,
sem gerir þetta samband sérstakt og
um leið árangursríkt, er að báðir aðil-
ar þurfa að leggja sig fram til að árang-
ur náist. Starfi sérleyfisgjafans er
ekki lokið þegar hann skrifar undir
samning við sérleyfistaka heldur
þurfa báðir aðilar að vinna í samein-
ingu til að árangur náist. Gott sam-
starf og atorkusemi af beggja hálfu
eru grundvallarforsendur velgengni,"
segir Guðrún.
FREKARIÚTBREIÐSLA
MARGREYNDS KERFIS
Kostimir við viðskiptasérleyfi
þykja augljósir, bæði fyrir sérleyfis-
gjafa og sérleyfistaka.
Með því að selja sérleyfi fyrir
rekstri sínum er sérleyfisgjafi að
stuðla að frekari útbreiðslu á vöru eða
þjónustu sinni á hagkvæman hátt og
með sem minnstum tilkostnaði og
áhættu. Vexti fyrirtækisins er hraðað
án þess að sérleyfisgjafi þurfi að
leggja vinnu eða fjármagn í hann sjálf-
ur. Sérleyfistaki fjármagnar rekstur-
inn að öllu leyti og er eigandi rekst-
ursins. Meiri líkur eru á að sérleyfis-
taki sem eigandi helgi sig rekstrinum
og leggi sig meira fram en ef hann
væri launaður starfsmaður sérleyfis-
gjafans. Loks skilar sérleyfissamn-
ingur reglulegum greiðslum og hagn-
aði til langs tíma.
Fyrir sérleyfistaka eru helstu kost-
imir þeir að hann veit að hverju hann
gengur. Hann fær heildarkerfi sem
búið er að þróa, reyna og staðla. Búið
er að markaðsreyna vömna/þjónust-
una og sýna fram á að hún virkar. Þá
nýtur sérleyfistaki góðs af ímynd og
viðskiptavild sem er til staðar hjá
neytendum og birgjum. Ekki þarf að
eyða dýrmætum tíma og fjármagni í
að byggja upp ímynd og auglýsa sig og
sérleyfistaki nýtur góðs af beinu og
óbeinu auglýsingaefni sem sérleyfis-
gjafi eða aðrir sérleyfistakar láta frá
sér. Þá skiptir verulegu máli að sér-
þínmiðstöð
í INN- DG ÚTFLUTNIN GI
Sérhæfð þjónusta á
öllum sviðum inn-
og útflutnings
■stvg
TOLLVÖRUGEYMSLAN HF.
Héðinsgata 1-3. 105 Reykjavík. sími: 5813411. fax: 5680211