Frjáls verslun - 01.08.1995, Blaðsíða 48
NÆRMYND
SLEPPIR EKKI GÓÐRI HUGMYND
„Gunnar er fylginn sér og fær oft góðar hugmyndir sem hann sleppir ekki hendinni
af fyrr en hann sér þær verða að veruleika. Hann er traustur og áreiðanlegur,
kröfuharður á sjálfan sig og aðra og metnaðargjarn fyrir hönd þess fyrirtækis sem
hann vinnur fyrir. “ - Hjörtur Hansson, bróðir Gunnars.
Eftir nám í viðskiptafræði við Háskóla íslands árið 1969 hóf Gunnar störf
hjá IBM á íslandi. Árið 1973 hélt hann utan til starfsþjálfunar og síðar starfa
hjá IBM. Fyrst var hann í eitt ár hjá IBM í Danmörku en þaðan lá leiðin til
Parísar þar sem hann starfaði í höfuðstöðvum IBM í Evrópu í rúm tvö ár, frá
1974 til 1976. Þá fluttist hann til íslands og gerðist sölustjóri hjá IBM á
Islandi.
landi og síðast en ekki síst Óli Kr.
Sigurðsson heitinn, sem oftast var
kenndur við Olís, en hann hafði eign-
ast Skrifstofuvélar Gísla J. Johnsen
hf. þegar það fyrirtæki varð gjald-
þrota. Þar lágu leiðir Skrifstofuvéla
og IBM saman á ný og hringurinn
lokaðist aftur. Nýherji er afar öflugt
fyrirtæki sem hefur keypt nokkur
önnur fyrirtæki á undafömum árum
og er starfrækt á fjórum stöðum í
Reykjavík.
Gunnar er kvæntur Gunnhildi Sig-
urbjörgu Jónsdóttur skólasafnskenn-
ara. Hún er dóttir Brynhildar Þor-
steinsdóttur húsmóður og Jóns S.
Loftssonar forstjóra en þau Gunnar
kynntust þegar þau voru saman í
Verslunarskólanum. Þau eiga saman
tvö böm. Guðrún Björk f. 1967 er
kerfisfræðingur og Hilmar f. 1971 við-
skiptafræðingur.
Gunnar hefur látið nokkuð til sín
taka í félagsmálum. Hann sat í stjóm
Körfuknattleikssambands íslands en
hann þótti liðtækur körfuboltamaður
á yngri árum, enda hávaxinn í rúmu
meðallagi. Hann var í stjórn Félags
viðskipta- og hagfræðinga 1972 til ’73
og sat í stjóm íslensk- Ameríska við-
skiptaklúbbsins frá 1984 og í vara-
stjórn Verslunarráðsins frá 1984 til
’86 og í framkvæmdastjórn sama ráðs
1986 til 1988. Hann var gjaldkeri
Krabbameinsfélags íslands 1986 til
1991.
Gunnar hefur skrifað tvær
kennslubækur í bókfærslu fyrir
grunn- og framhaldsskóla ásamt Jóni
G. Zoega og einnig skrifaði hann
kennslubókina Hvað er tölva? sem
kom út 1977 og margir þekkja.
Enn er ótalið að Gunnar hefur verið
varaformaður Styrktarfélags ís-
lensku Óperunnar frá 1988 en hann
hefur tekið mjög virkan þátt í lista- og
menningarlífinu á undanfömum árum
og er ótvírætt í hópi þess fólks sem
stundum er í gamni kallað „Frumsýn-
ingarmafían. “ Eins og nafnið bendir til
er þetta sá hópur fólks sem jafnan
48