Frjáls verslun - 01.08.1995, Blaðsíða 16
FRETTIR
ÍSLENDINGAR „PENINGALAUSIR"
Vegna þess að íslend-
Hatim A. Tyabji, aðalforstjóri VeriFone, segir
að íslendingar séu tæknisinnaðri en flestar
aðrar þjóðir og geti því orðið fyrsta „peninga-
lausa þjóðfélagið" í heiminum.
Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri Visa
ísland, sýndi það með tölum að íslendingar
eru fljótir að tileinka sér rafræn viðskipti og
greiðslumiðlun.
ingar eru fyrri til en flest-
ar aðrar þjóðir að tileinka
sér nýjungar og alla
tækni, gæti svo farið að
ísland yrði fyrsta pen-
ingalausa þjóðfélagið í
heiminum, sagði formað-
ur og aðalforstjóri Veri-
Fone, Hatim A. Tyabji, á
hádegisverðarfundi sem
Visa ísland hélt á Grand
Hótel Reykjavík á dögun-
um. Yfirskrift fundarins
var Peningalaust þjóðfé-
lag (Cashless society) en
fjallað var um það út frá
nýjungum í rafrænum
viðskiptum og greiðslu-
miðlunum.
Fyrirtækið VeriFone
er leiðandi á sviði raf-
rænna og alþjóðlegra
greiðsluskipta. Það er
stærsti framleiðandi í
heimi á sviði tölvuút-
stöðva (posa) fyrir sölu-
og þjónustustaði og veltir
yfir 20 milljörðum króna
á ári.
Hatim A. Tyabji er há-
menntaður rafmagns-
verkfræðingur, af ind-
versku bergi brotinn en
búsettur í Bandaríkjun-
um. Hann þykir snjall og
er eftirsóttur fyrirlesari.
nashuatec
★ Mest seldu
Ijósrilunarvélar á Islandi!
★ Faxtæki ★ Fjölritar ★ Kjölbinditæki
Verið velkomin i vinningsliðið!
Umboð: Hljómver, Akureyri
Póllinn, Isafirði
Geisli, Vestmannaeyjum
ARMULA 8 - SIMI588-9000
16