Frjáls verslun - 01.08.1995, Blaðsíða 46
NÆRMYND
Gunnar M. Hansson, forstjóri Nýherja, í nærmynd Frjálsrar verslunar:
FÁGAÐUR
HARÐJAXL
Gunnar þykir gífurlega fyiginn sér í viðskiptum og stefnufastur. Sem
stjórnandi er hann sagður kunna öðrum mönnum betur að „kalla menn
inn á teppiðu ánþess að undan svíði
unnar M. Hansson, forstjóri
fyrirtækisins Nýherja, hefur
um árabil verið meðal áber-
andi manna í íslensku viðskiptalífi.
Hann hefur stýrt stórum fyrirtækjum
og látið nokkuð til sín taka í félagslífi
tengdu viðskiptalífmu. Nú síðast ber-
ast þær fréttir að Nýherji sé einn
stærsti þátttakandinn í Stöð 3, nýrri
sjónvarpsstöð sem fer senn að birtast
á skjám landsmanna.
Gunnar Magnús Hansson fæddist
13. júlí árið 1944 og telst því fæddur
undir áhrifum Krabbamerkisins.
Þann dag er Margrétarmessa sem
kennd er við heilaga Margréti frá
Antiokkíu sem komst í tölu dýrlinga
fyrir dyggðir og hreinlífi. Himnarýnar
segja að það sé viðkvæmt og skiln-
ingsríkt fólk, greint og gáfað en hlé-
drægt. Það er sagt um Krabbafólk að
það, í líkingu við einkennisdýr merk-
isins, fari ekki alltaf beina leið að settu
marki heldur gangi jafnvel aftur á bak
og út á hlið en þótt stefnan virðist
skrýtin veit Krabbinn ávallt hvert
hann ætlar sér.
Gunnar Magnús er af íslenskum
embættismannaættum. Móðir hans
var Guðrún Hafstein fædd 1919 í
Þórshöfn í Færeyjum. Foreldrar
hennar voru Gunnar Magnús Haf-
MYNDIR: BRAGI P. JÓSEFSSON
Nafn: Gunnar Magnús Hansson.
Starf: Forstjóri Nýfierja.
Aldur: 51 árs.
Fjölskylduhagir: Kvæntur Gunnhildi Sigurbjörgu
Jónsdóttur og eiga þau tvö börn.
Foreldrar: Hans fldolf Hjartarson og Guðrún Hafstein.
Áhugamál: Hestamennska og tónlist.
Stjórnandi: Fylginn sér og stefnufastur.
stein, bankastjóri í Þórshöfa, og
Nielsina Hafstein húsmóðir en Gunn-
ar Hafstein var bróðir Hannesar, ráð-
herra og skálds.
Faðir Gunnars var Hans Adolf
Hjartarson, framkvæmdastjóri í
Reykjavík en hann lést þegar Gunnar
var aðeins sex ára og það kom því í
hlut móðurinnar að ala bömin upp.
Gunnar á einn bróður, tveimur ár-
um yngri, sem heitir Hjörtur og er
verkfræðingur. Gunnar Magnús
NÆRMYND
eftir
Pál Ásgeirsson
gekk menntaveginn til stúdentsprófs
í Verslunarskólanum og útskrifaðist
þaðan 1965. Þaðan lá leiðin í Háskóla
íslands til náms í viðskiptafræði sem
lauk 1969. Þaðan lá leið Gunnars til
IBM á íslandi. Árið 1973 var haldið
utan til starfsþjálfunar og síðan starfa
hjá risafyrirtækinu IBM sem aðallega
er frægt fyrir framleiðslu á tölvum og
var á þessum tíma í fararbroddi á því
sviði í heiminum.
Fyrst dvaldist Gunnar í höfuð-
stöðvum IBM í Danmörku í eitt ár en
þá lá leiðin til Parísar þar sem hann
starfaði í höfuðstöðvum IBM í
Evrópu hjá IBM í rúm tvö ár, frá 1974
til 1976, en þá fluttist hann aftur heim
til íslands og gerðist sölustjóri hjá
IBM á íslandi. Því starfi gegndi hann
til 1982. IBM á íslandi var upphaflega
stofnað 1967 og fyrsti forstjóri þes
var Ottó A. Michelsen en fyrirtæki
hans Skrifstofuvélar hafði áður verið
umboðsaðili fyrir IBM. Gunnar varð
síðan forstjóri IBM á íslandi 1982 og
stýrði því fyrirtæki allt til 1992. Þá
urðu þáttaskil í rekstrinum sem
tengdust endurskipulagninu IBM um
allan heim. 2. aprfl 1992 var Nýherji
hf. stofnaður. Hluthafar voru IBM í
Danmörku, Draupnissjóðurinn, Vog-
un hf. nokkrir stjómendur IBM á ís-
46