Frjáls verslun - 01.08.1995, Blaðsíða 40
MARKAÐSMAL
Sagan á bak viö markadsherferöina:
SAMVINNUFERÐIR KYNNA
ÍSLANDSFERÐIR Á ALNETINU
Þúsundir útlendinga ,Kferðasf meö Samvinnuferöum-Landsýn til
Islands á alnetinu í hverjum mánuöi. Arangurinn kemur í Ijós síöar í vetur
raun og veru gerði enginn,
sem stóð að verkefninu, sér
almennilega grein fyrir því
hvaða þýðingu það hafði fyrir Sam-
vinnuferðir-Landsýn að koma sér
fyrir á Intemetinu. Og menn hafa
tæpast gert sér grein fyrir því ennþá,
eftir þá sex mánuði sem innanlands-
deild fyrirtækisins hefur kynnt landið
og þjónustu sína fyrir þeim sem vilja
skoða. Gunnar Rafn Birgisson, for-
stöðumaður innanlandsdeildar Sam-
vinnuferða-Landsýnar, segir meira
að segja erfítt að meta fyllilega hvaða
ávinning það hafi fyrir fyrirtækið „Hitt
er hins vegar ljóst að vefinn okkar,
sem er nánast eins og kynningar-
bæklingur, skoða að meðaltali sex til
sjö þúsund manns á hverjum mánuði,
sem er afar mikið miðað við að bækl-
ingurinn sem við dreifum til erlendra
viðskiptavina okkar er einungis
prentaður í sex þúsund eintökum.“
Af öllum þessum fjölda, sem skoð-
ar vefinn í hverjum mánuði, leita að
meðaltali tveir á dag beint til Sam-
vinnuferða-Landsýnar eftir upplýs-
ingum um ísland og nánari upplýsing-
um um Islandsferðir. Það gera á átt-
unda hundrað fyrirspurnir á ári sem
virðist vera hrein viðbót við þær
fyrirspurnir sem fyrirtækinu berast.
„Framtíðin ein sker síðan út um
ávinningin af vefnum því þótt fólk hafi
áhuga á því sem við og landið höfum
upp á að bjóða kann að líða einhver
tími, jafnvel ár, þar til að það skilar
sér til landsins.
Við höfum hins vegar í auknum
mæli fengið óskir, frá fólki sem hing-
að kemur í stuttar ferðir, um að út-
MYNDIR: BRAGI Þ. JÓSEFSSON
Gunnar Rafn Birgisson, forstöðu-
maður innanlandsdeildar Sam-
vinnuferða-Landsýnar.
vega því gistingu, bflaleigubfla og aðra
þjónustu. Við höfum ekkert gert til að
nálgast þetta fólk og getum ekki
ímyndað okkur hvernig það hefur
frétt af okkur, nema þá í gegnum Int-
ernetið."
160 SÍÐUR
Vefur Samvinnuferða-Landsýnar
er settur upp á afar skemmtilegan
hátt. í fyrstu er gestunum boðið að
velja sér upplýsingar um ákveðna
flokka ferða, til dæmis hótelferðir,
ævintýraferðir og fleira í þá veruna.
Velji viðkomandi ævintýraferðirnar
þá þirtist listi yfir þær ferðir sem þar
eru í boði. Ef viðkomandi gestur
SAGANÁBAK
VIÐ HERFERÐINA
Þorsteinn G. Gunnarsson
ákveður að skoða nánar fjallahjólaferð
um landið, svo dæmi sé tekið, þá birt-
ist á íslandskort á skjánum sem sýnir
leiðina og hvern náttstað. Gesturinn
getur síðan haldið áfram og skoðað
hverja dagleið fyrir sig og fær hann þá
á skjáinn litljósmynd af náttstaðnum
eða fögrum stað sem hjólað er fram-
hjá, ásamt stuttri leiðarlýsingu. Það
er því ljóst að vefurinn er gríðarlega
mikil landkynning.
Að sögn Gunnars Rafns leið ekki
langur tími frá því að ákvörðun var
tekin þar til vefurinn var tilbúinn,
„enda var forvinnan lítil því allt efni lá
fyrir í bæklingnum okkar. Það var því
eftir tveggja til þriggja vikna törn sem
vefurinn var tilbúinn með sínum 160
síðum og 80 ljósmyndum, sumar
þeirra koma reyndar fyrir oftar en
einu sinni.“
í TÆKNIGARÐI0G CHICAGO
Auglýsingastofa Reykjavíkur sá
um uppsetningu vefsins fyrir Sam-
vinnuferðir-Landsýn og að sögn Her-
manns Ottóssonar hjá auglýsinga-
stofunni er vefurinn vistaður á tveim-
ur stöðum, í tölvu Tæknigarðs og
annarri vestur í Chicago í Bandaríkj-
unum. í tölvu Tæknigarðs er vefurinn
hluti af Islandsgátt Auglýsingastofu
Reykjavíkur og vefurinn fyrir vestan
haf er spegill vefsins í Tæknigarði og
breytist sjálfkrafa, verði einhverjar
breytingar gerðar á vefnum í Tækni-
garði. Vefurinn í Chicago er tengdur
beint við háhraðanetið í Bandaríkjun-
um þannig að þjónustan við banda-
ríska notendur er mjög góð.
En það er ekki nóg að setja upp
40