Frjáls verslun - 01.08.1995, Síða 54
í París er fjöldi kaffi- og veitingahúsa sem sérstaklega gera út á ferðamenn.
Enda sagði þekktur hugsuður að þeim sem leiðist í París leiðist lífið.
Frakkar sjálfir eru frægir kaffihúsa-
unnendur.
Erlend veitingahús:
FIMM GÓDIR í PARÍS
Sigmar B.
m Hauksson skrifar
| reglulega um
' þekkta erlenda
B bisncssveitinga-
I stadi í Frjúlsa
B vcrslnn.
París hefur löngum verið kölluð
höfuðborg sælkeranna. í París eru
12.000 veitingastaðir svo allir ættu að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi. En
París er ekki öll þar sem hún er séð.
París skiptist í tvennt, áin Signa renn-
ur sem kunnugt er í gegnum borgina.
í daglegu tali borgarbúa er því talað
um hægri og vinstri bakkann. Þá er
París skipt í 20 hverfí Arrondisse-
ments. Öll eru þessi hverfi ólík og
sérstakt andrúmsloft ríkjandi í hverju
þeirra. í París er engin eiginleg mið-
borg. Flestir ferðamenn ganga um
Latínuhverfið eða Quartier Latin,
Saint-Germain strætið, glæsilegasta
breiðstræti heims Champs Élysées
og Montmartre hverfið, sem er
svæðið í kringum Sacre Coeur kirkj-
una. Ekki má gleyma Marais hverf-
inu, en þar er nýja Parísaróperan, og
þá er svæðið í kringum gömlu óper-
una vinsælt á meðal ferðamanna.
Já, París er ein vinsælasta höfuð-
borg heimsins. 60 miljónir erlendra
ferðamanna heimsækja Frakkland ár-
lega og flestir dvelja í París um tíma.
Á þeim stöðum sem ferðamenn heim-
sækja helst er fjöldi kaffi- og veitinga-
húsa sem sérstaklega gera út á ferða-
menn. Flestir eru þessir staðir ákaf-
lega lítið spennandi með þó örfáum
undantekningum. Margir ferðamenn
kvarta því yfir því að þeir hafi ekki
fundið góðan veitingastað í París,
þrátt fyrir nokkra leit. Hér er líkleg-
ast átt við ekta rómantískan Parísar-
stað eins og fólk þekkir úr kvikmynd-
um. Veitingastað þar sem hægt er að
fá franskan mat; snigla, lauksúpu,
gæsalifur, humar soðinn í rauðvíni og
góða andasteik, punkturinn yfir i-ið er
svo flaska af góðu víni og biti af ljúf-
fengum osti. Vissulega eru margir
svona staðir til í París, en þá getur
verið erfitt að finna fyrir ókunnuga,
þar sem þeir eru oft ekki nálægt hin-
um vinsælu ferðamannastöðum.
í þessum pistlum mínum um er-
lenda veitingastaði hef ég jafnan
aðeins fjallað um einn ákveðinn stað.
Að þessu sinni ætla ég að segja frá
fimm veitingastöðum sem eru víðs-
vegar um París og allir þeirra tiltölu-
lega nálægt þekktum stöðum í borg-
inni. Þessir staðir eiga það sameigin-
legt að þar ríkir ekta Parísarstemmn-
ing, og þar er hægt að fá góðan,
franskan mat á sanngjömu verði.
Helsti kostur þessara staða er þó sá
að þar er mikið úrval af góðum vínum
og þau er flest öll hægt að fá í glasa-
tali, sem er mikill kostur. Ekki er
sami matseðillinn á öllum stöðunum
þótt hann sé svipaður. Aðaláherslan
er lögð á franskan sveitamat. Nefna
mætti gæsalifur, grænmetissúpu,
góð pate, önd steikta í eigin feiti sem
kallast „Confite Canard". Mikið úrval
L’Ecluse Grands - Augustine 15, Quai Des Grands - Augustins. Sími 46 33 58 74 L’Ecluse Francois ler 64, Rue Francois. Sími 47 20 77 09 L’Ecluse Madeleine 15, Place Madeleine. Sími 42 65 34 69 L’Ecluse Les Halles Rue Mondetour. Sími 40 41 08 73 L’Ecluse Bastille 13, Rue De La Roquette. Sími 48 05 19 12
54