Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1995, Síða 71

Frjáls verslun - 01.08.1995, Síða 71
FOLK SIGURÐUR ÍSLEIFSSON, ÍSDEKKI Hjá ísdekk hf. vinna aðeins þrír starfsmenn, Sigurður, faðir hans Isleifur og bílstjóri. s en flest hjólbarðaverkstæði á landinu hafa þá til sölu. Við erum með frábæra vöru og reynslan er sú að gæðin auglýsi mest. Þó að Michel- in hjólbarðar séu 20% til 50% dýrari en sóluð eða miðlungsdýr dekk þá taka sífellt fleiri bifreiðaeigendur þau fram yfir vegna gæð- anna,“ segir Sigurður ís- leifsson, sölustjóri ísdekk hf. Sigurður er 33 ára og lauk stúdentsprófi frá Fjöl- brautaskóla Suðurnesja 1983. Að því loknu vann hann í tvö ár við almenn skrifstofustörf á Keflavíkur- flugvelli en hóf síðan störf sem sölustjóri hjá föður sín- um, Isleifi Sigurðssyni, for- stjóra ísdekk hf. „Faðir minn rak hjól- barðaverkstæði í Keflavík í mörg ár og árið 1975 fékk hann einkasöluleyfi á Michelin hjólbörðum hér á landi. Það tók tíma að koma þessu dýra merki inn á markaðinn en 1981 var hlutafélagið ísdekk hf. stofnað. Eftir það hefur verið stanslaus söluaukning og varð hún t.d. um 14% á milli áranna 1993 og 1994. Þrátt fyrir það höfum við feðgar aðeins verið tveir á skrifstofunni og hér starfar einn bílstjóri,“ segir Sigurð- ur. 655.000 DEKKÁDAG Michelin hjólbarða- verksmiðjurnar voru stofn- aðar í Frakklandi árið 1895 og fyrirtækið rekur 70 verk- smiðjur út um allan heim. Michelin er stærsti hjól- barðaframleiðandi í heimin- um í dag, framleiðir um 655.000 hjólbarða á dag. „Við reiknuðum út að það tæki ekki nema um 20 mín- útur að framleiða það magn sem selt er á íslandi á ári,“ segir Sigurður. „En þrátt fyrir smæðina hefur okkur tekist að ná góðum samn- ingum og eru Michelin dekk á betra verði hér en víða í Evrópu. Sala á öðrum dýrari hjólbörðum hér á landi hefur dregist mjög saman og höf- um við getað náð góðum samningum til þess að minnka bilið á milli okkar og þeirra sem eru næst okkur í verði. í gegnum árin höfum við tengst millilager í Frakk- landi og Hollandi en fyrir tveimur árum komumst við í samband við stóran lager í Gautaborg og hafa vöru- sendingar til okkar batnað mikið við það. Við höfum þurft að auka lagerhald mjög vegna þess að dekkjastærð- ir eru mun fleiri nú en þær voru fyrir 15 til 20 árum. Þá voru fimm til sex stærðir al- gengastar en nú eru þær a.m.k. tuttugu. Það hefur færst í vöxt að fólk fái sér vetrardekk án nagla og noti þau síðan sem heilsársdekk. Nýlega setti Michelin á markað nýja gerð hjólbarða, X M+S Alpin, byltingarkennda nýjung með flipamunstri sem heitir Y eftir lögun þess. Það virk- ar þannig að þegar 30% af gúmmíinu hafa eyðst tvö- faldast fjöldi flipanna og þar með er hálfslitið Alpin álíka og venjulegur, nýr, nagla- laus vetrarhjólbarði." ÍÞRÓTTAÁHUGI Eiginkona Sigurðar er Guðbjörg Jóna Pálsdóttir tækniteiknari og eiga þau 11 ára og 6 ára dætur. „Ég er mikill íþrótta- áhugamaður, lék bæði fót- bolta og körfubolta með yngri flokkum í Keflavík og eftir tvítugt var ég í knatt- spyrnuliði Ungmennafélags Njarðvíkur. Ég stunda íþróttir eins og tíminn leyfir held mér enn við í þeirri íþrótt og æfi körfubolta tvisvar í viku með íþróttafé- laginu Létti. Á sunnudags- morgnum hitti ég líka gamla félaga úr Keflavík og við leikum okkur saman í fót- bolta. Talsverður tími fer í það hjá mér að fylgjast með íþróttum í fjölmiðlum og hef ég gaman af því. Ég hef ekki gefið mér tíma í að sinna öðrum áhugamálum enda fer mikill tími hjá mér í vinn- una,“ segir Sigurður. 71

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.