Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1996, Síða 20

Frjáls verslun - 01.07.1996, Síða 20
Jón Ólafsson, stjórnarformaður íslenska útvarpsfélags- ins, mun leiða baráttu Stöðvar 2 við Stöð 3 í vetur. stofu sem styrkir ímyndina því íslendingar eru fréttaþyrst þjóð. Á móti kemur að mjög dýrt er að halda úti góðri fréttastofu. Þá hefur Stöð 2 nýlega endumýjað samninga við sex stórfyrirtæki í kvikmyndaheiminum um einkarétt á sýningum í áskriftarsjónvarpi á íslandi. Það er því ljóst að herbragð íslenska útvarpsfélagsins á næstu mánuðum verður fyrst og fremst vamarleikur, að missa ekki áskrif- endur - halda sínu striki. LYKLAMÁL STÖÐVAR 3 ERU MEÐ ÓLÍKINDUM Það verður að segjast eins og er að myndlyklamál Stöðvar 3 síðastliðna tíu mánuði eru með ólíkindum. Þau er farsi. Stöðugt hefur verið sagt að myndlyklarnir væru að koma en ekkert hefur gerst. Bandaríska fyrirtækið Veltech hefur svikið samninga. Það hefur kostað stöðina stórfé þar sem ekki hefur verið hægt að innheimta áskrift. Fyrir vikið hefur mikill taprekstur síðustu mánuða gengið mjög á hlutafé stöðvarinnar. Vissulega má spyrja sig hvers vegna Stöð 3 hóf rekstur af fullum krafti í fyrrahaust án þess að myndlyklamálin, sjálft lykilatriðið, væru á hreinu - áður en myndlyklarnir væm í hendi og komin reynsla á þá. Bandaríska fyrirtækið Veltech er með myndlykil sem gengur upp í Bandaríkjunum, fjölrásalykil með Pay per view kerfi. Veltech hefur hins vegar ekki tekist aðyfirfæra lausnina á PAL-kerfið sem notast er við í Evrópu. í upphafi töldu Veltech-menn það hins vegar auðvelt. Það hefur Jafet Ólafsson hætti skyndilega í byrjun þessa árs sem framkvæmdastjóri íslenska útvarpsfélagsins. bara ekki gengið upp - og fyrir það hefur Stöð 3 sviðið. Á dögunum rifti síðan Stöð 3 öllum samningum við Veltech og samdi við evrópskt fyrirtæki um myndlykla. Þeir lyklar eru ekki ijölrása. Engu að síður em þeir með Pay per view kerfi sem býður upp á sérstaka bíómynda- og þáttasölu, „myndbandaleigu með heimsendingarþjón- ustu“. Þetta gefur Stöð 3 kost á aukatekjum. Stöðin aug- lýsir þær bíómyndir, sem hún ætlar að sýna í þessu kerfi, og áskrifendur panta síðan í gegnum myndlykilinn þá bíó- mynd sem þeir ætla að sjá. Þessi þjónusta kemur til viðbótar við hefðbundna dagskrá Stöðvar 3. Vert er að minna á að goggunarröð bíómynda er sú að fyrst er hún sýnd í bíó. Síðan líða sex mánuðir áður en hægt er að setja hana á myndbandaleigu og síðan aðrir sex mánuðir áður en hún getur farið í þáttasölu, Pay per view. Loks líða aðrir sex mánuðir áður en hún fer til sýnis í áskriftarstöðvum eins og Stöð 2 og Stöð 3. Ætla má að það komi tiltölulega fljótt í ljós hvort fólk gleypi við þáttasölu Stöðvar 3, Pay per view kerfmu, en ætlunin er að opna fyrir sölu hennar í desember. Forráða- menn stöðvarinnar hafa hins vegar sagt að samkvæmt markaðsrannsóknum sé mikill áhugi á Pay per view kerf- inu og það verði sterkt vopn í því stríði sem blasi við. Engu að síður hefur samkeppnisforskot Stöðvar 3 minnkað til muna við að geta ekki boðið upp á fjölrásamyndlykla. En slíkir lyklar gefa færi á að horfa á mismunandi stöðvar á PAY PER VIEW MYNDLYKILL Helsta vopn Stöðvar 3 virðist liggja í fjölbreyttari myndlykli, svonefndum Pay per view myndlykli, sem gefur færi á sérstakri bíómynda- og þáttasölu þar sem notandinn greiðir fyrir hverja sýningu. En fjölbreyttari myndlykill dugir vart til. Stöð 3 þarf að vera hagkvæmari og betur rekin en Stöð 2 - hafa hlutfallslega færri starfsmenn, betri tæknibúnað og svo framvegis - ætli hún að bíta frá sér af einhverri alvöru. 20

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.