Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1996, Page 21

Frjáls verslun - 01.07.1996, Page 21
Úlfar Steindórsson hætti nýlega sem sjónvarpsstjóri Stöðvar 3. Hann heldur út til Spánar til að stýra dóttur- fyrirtæki SÍF. Eyjólfur Sveinsson, íyrrum aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar, tók formlega við sem framkvæmdastjóri DV um síðustu áramót. sama tíma, - hægt er að horfa á margar stöðvar í einu á heimilinu svo fremi sem nægilegur fjöldi sjónvarpstækja er fyrir hendi. Þrátt fyrir að Stöð 3 hafi ekki getað ruglað dagskrá sína og innheimt áskriftargjöld frá því hún fór í loftið sl. haust hafa um 28 þúsund heimili fengið aðgang að loftneti frá stöðinni, auk þess er áætlað að um 10 til 15 þúsund heimili til viðbótar hafi aðgang að örbylgjuloftneti og geti náð sendingum stöðvarinnar. Þetta kemur stöðinni mjög til góða í stríði komandi mánuða, sem og að margir hafa horft á dagskrá hennar í marga mánuði - og því þarf ekki að kynna hana jafn mikið. STÖÐ 2 MUN SVflRA AF HÖRKU Ætla verður að íslenska útvarpsfélagið, Stöð 2 og Sýn, með Jón Ólafsson í fararbroddi, muni örugglega ekkert gefa eftir í slagnum við Stöð 3. Tekið verður á af öllu afli. Raunar setti félagið strax í fluggírinn í fyrrahaust, þegar Stöð 3 byrjaði útsendingar, og setti Sýn á fullt skrið. Réð félagið Pál Magnússon tO að stýra Sýn en Páll er með mikla reynslu af sjónvarpsrekstri. Söfnun áskrifta að Sýn sl. vetur var með miklum blóma og ævintýri líkust á tímabili - þegar nokkur þúsund manns gerðust áskrifendur vegna keppni um heimsmeistaratitilinn íþungavigt í hnefaleikum. Á boxaramáli má segja að íslenska útvarpsfélagið hafi unnið fyrstu lotuna í fyrrahaust. Sýn og Stöð 3 eru með tiltölulega keimlíkar dagskrár. Þær bjóða upp á skemmtiþætti, bíómyndir ogíþróttir, auk þess sem áskrift að gervihnattastöðvum er innifalin. Fleiri gervihnattastöðvar fylgja hins vegar Sýn en Stöð 3. Stöð 3 PRÓFANÁM - FRÍSTUNDANÁM Öldungadeild á grunn- og framhaldsskólastigi. Fjölbreytt tungumálanám. Verklegar greinar og myndlistarnámskeið. Námsaðstoð fyrir skólafólk. Kennsla fyrir börn í dönsku, norsku, sænsku, þýsku og leiklist. Sérkennsla í lestri og skrift. Upplýsingar ísímum: 551 2992 og 551 4106. Kennsla fer fram í Miðbœjarskóla, Fríkirkjuvegi 1 og í Mjódd. SVO LENGl LÆRIR SEM LIFIR! 21

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.